Fiskifréttir


Fiskifréttir - 30.08.1996, Síða 8

Fiskifréttir - 30.08.1996, Síða 8
8 FISKIFRÉTTIR föstudagur 30. ágúst 1996 Túnfiskveiðar TUraunaveiðar japanskra línuveiðiskipa: 800þús. króna blá- uggatúnfískur veiddist innan landhelginnar — ísienskir eftirlitsmenn fylgdust með túnfiskveiðunum Stærsti túnfiskur veiðiferðarinnar, 337 kfló að þyngd, veiddist innan íslensku landhelginnar Myndir/Fiskifréttir: Hörður Andrésson Tilraunaveiðar tveggja jap- anskra túnfiskveiðiskipa nú í ágústmánuði hafa staðfest að bláuggatúnfiskurinn, sem er einhver dýrasti matfiskur í heimi, gengur í einhverjum mæli inn í íslensku landhelg- ina. Túnfiskveiðiskipið Ryuo Maru fékk stærsta túnfisk veiðiferðarinnar í íslenskri landhelgi. Sá var 264 sentím- etrar á lengd og vóg hann 337 kíló. Miðað við meðalverð á frystum bláuggatúnfiski á Japansmarkaði í fyrra, 2400 kr/kg, var verðmæti fisksins ríflega 800 þúsund krónur. Túnfiskveiðarnar f íslensku landhelginni voru stundaðar sam- kvæmt samningi á milli Hafrann- sóknastofnunar og japanska út- gerðarfyrirtækisins og með leyfi sjávarútvegsráðuneytisins. Tveir íslenskir eftirlitsmenn voru um borð í skipunum, Hafsteinn Aðal- steinsson skipstjóri á Kristrúnu RE og Hörður Andrésson líffræð- ingur hjá Hafrannsóknastofnun, og fylgdust þeir með veiðunum frá 1. ágúst sl. og þar til um síðustu helgi. Að sögn Harðar Andréssonar, sem var um borð í Ryuo Maru, hafa japönsku skipin leyfi til veiða innan landhelginnar til loka októ- ber nk. en ákveðið var að hætta tilrauninni að sinni vegna óhag- stæðra skilyrða en halda henni áfram ef skilyrði breytast á næstu vikum. — Sjávarhiti var mun óhagstæð- ari nú en bæði í fyrra og hittifyrra að því leyti að sjórinn var kaldari nú, segir Hörður en hann upplýsir að við veiðarnar séu notaðar flot- girnislínur og er línan 72 mílur á lengd. Þegar línunni hefur verið komið fyrir við baujur er lengd á milli enda um 55 mílur. 3000 krók- ar eru á línunni og eru 43 metrar á milli króka. Þegar búið er að leggja línuna eru krókarnir á dýpi frá 30- 40 metrum og niður á um 140 metra dýpi. — Við byrjuðum veiðarnar vest- ur af Irlandi en Japanirnir voru ekki ánægðir með aflabrögðin þar og við færðum okkur því norðar og vestar og enduðum inni í íslensku landhelginni. Veiðin þar virðist heldur lakari en úti af Irlandi, segir Hörður. Línan dregin um borð í Ruyo Maru Hólf fyrir línuna Gert að túnfiskinum. Sporðurinn er skorinn af og stungið er á hálsæð fisksins. Til þess að flýta fyrir því að honum blæði út er sjó dælt inn í tálknin. Smokkfiskur er notaður sem beita og fer beitningin fram á milliþilfari. Línan er lögð aftur úr skipinu og dregst hún frá milliþilfarinu eftir rörunum sem sjást á myndinni Þótt nú sé búið að sýna fram á að bláuggatúnfiskurinn gangi inn í landhelgina þá segir Hörður að ýmislcgt þurfi að skoða áður en til veiða Islendinga gæti komið, s.s. arðsemi veiða og tækni og hugsan- legt samstarf við aðrar þjóðir um veiðarnar. Þá hafa íslensk skip ekki yfir að ráða nógu öflugum búnaði til frystingar og geymslu á fiskinum um borð í skipunum. — Japanirnir heilfrysta túnfisk- inn í blásurum við 50-60 gráðu frost í einn sólarhring en að því búnu er fiskurinn „glasseraður" og síðan geymdur í 50 gráðu frosti í frystilestum. Islensk skip hafa sennilega ekki nógu öflugar frysti- pressur til þess að hægt sé að með- höndla túnfiskinn á þennan hátt en það er forsenda þess að hátt verð fáist fyrir fiskinn á Japansmarkaði, segir Hörður. Hörður segir að viðmót jap- önsku sjómannanna gagnvart hon- Ryuo Maru í höfn í Reykjavík um hafi komið honum skemmti- lega á óvart. — Ég var dálítið stressaður fyrir túrinn vegna þess að ég vissi ekki að hverju ég gengi en það kom á daginn að þessar áhyggjur voru óþarfar. Áhöfnin var mjög af- slöppuð og ég fékk aðgang að öll- um gögnum og tækjum um borð. Þannig gat ég tengt fartölvuna beint við GPS-staðsetningartæki skipsins og plottað alla leiðina. Hörður telur ekkert óeðlilegt við það að íslensk skip skuli ekki hafa orðið vör við túnfisk innan landhelginnar á undanförnum ár- um. Hafa verði í huga að hafsvæð- ið syðst og í suðausturhorni land- helginnar hafi verið lítið kannað. Þá sé túnfiskurinn gríðarlega kraftmikill og hraðsyndur og hann hafi því örugglega átt auðvelt með að forðast togveiðarfæri. Eina leiðin til þess að ná honum sé að veiða hann á flotlínu en shkar veið- ar hafi einfaldlega ekki verið stundaðar af Islendingum á þessu svæði. — Það var greinilegt að jap- önsku sjómennirnir áttu von á betri afla en reyndin varð á. Ryuo Maru er nokkurs konar frumherji á túnfiskveiðunum á norðurslóð- um en skipið kom fyrst upp að ís- lensku landhelginni árið 1994 og hefur orðið vel ágengt sunnan landhelginnar, segir Hörður Andrésson.

x

Fiskifréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fiskifréttir
https://timarit.is/publication/1594

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.