Fiskifréttir


Fiskifréttir - 30.05.1997, Síða 13

Fiskifréttir - 30.05.1997, Síða 13
FISKIFRÉTTIR föstudagur 30. maí 1997 13 Skipið, sem útgerð Geira Péturs ÞH á Húsavík keypti í Færeyjum seint á síðasta ári, hefur nú breyst úr saltfiskskipi í rækjufrystitog- ara. Breytingarnar voru gerðar hjá Slippstöðinni hf. á Akureyri og voru í stórum dráttum í því fólgnar að sett var í skipið rækjuvinnslu- lína og frystikerfi auk þess sem lest- in var endurnýjuð. Skipið fór á rækjuveiðar í síðustu viku. Að sögn Sigurðar Olgeirssonar útgerðarmanns Geira Péturs ÞH var sett í skipið ný tvöföld rækju- vinnslulína frá Carnitech, m.a. tveir rækjuflokkarar af nýrri gerð, sem geta flokkað rækjuna í sex flokka í stað fimm áður. Þetta er nýjung sem ætlunin er að prófa um borð í Geira Pét- urs ÞH áður en hún fer í frekari framleiðslu. Þá er í skipinu tvöfa- ldur suðurpottur fyrir rækju þannig er að hægt er að sjóða tvo flokka samtímis. Um borð eru tveir lá- réttir plötufrystar og einn lausfrystir en hann getur fryst um eitt tonn á klukkustund. Heildarfrystigeta skipsins mun vera a.m.k. um 30 tonn á sólar- hring. Frystibúnaðurinn í skipinu, sem allur er nýr, er frá Kælingu hf. og sáu starfsmenn fyrirtækisins um niðursetningu hans, lögðu lagnir og fleira. Auk starfsmanna Slipp- stöðvarinnar og Kælingar komu ýmsir aðrir verktakar á Akureyri að verkinu. Meðal annars var allt hreinsað innan úr lestinni og hún einangruð og klædd frá grunni, sem var mikið verk. Þá má nefna að sett var í skipið nýtt, öflugt þvottakerfi fyrir vinnsludekkið frá Isaco hf. Bætt var við nokkrum nýjum tækjum í brúna. Frá R. Sigmunds- syni hf. kom Kaijo höfuðlínusjá, Sodena Turbo veiðitölva, Leica GPS-CSI DGPS, Kelvin Hughes VHF GMDSS, Magnaphone Standard C tæki, Lokata neyðar- bauja og Navtex tæki. Þá var settur í skipið Scanmar höfuðlínumælir frá Ismar hf. Botn skipsins var sandblásinn og málaður, svo og allt innan dekks, en áður en skipið kom til landsins hafði það verið málað að utan í Færeyjum. Notuð var Hempels málning frá Slippfé- laginu Málningarverksmiðju. Veiðiréttur á Reykjaneshrygg og í Smugunni Sigurður Olgeirsson keypti tog- arann á nauðungaruppboði í Fær- eyjum fyrir 192 milljónir króna en ekki liggur fyrir ennþá hvað breyt- ingarnar hafa kostað endanlega. Meðan skipið var í færeyskri eigu var það á saltfiskveiðum, aðallega í Barentshafi. Það var smíðað í Vogi í Færeyjum árið 1989 og hét Sverri Ólason. Togarinn er 40.65 m langur, 8,5 m breiður, knúinn 1500 kw Wartsila aðalvél og með 26 tonna togspil. Tilgangur útgerð- arinnar með skipakaupunum var fyrst og fremst sá að fá stærra afkastameira skip en gamla Geira Péturs ÞH sem nú hefur verið seld- ur til Noregs. Kvóti Geira Péturs ÞH á yfirstandandi fiskveiðiári er 1.349 þíg-tonn, þar af 1.125 tonn úthafsrækja og 92 tonn grálúða. Fráfarandi Geiri Péturs ÞH hét áður Skúmur GK og hafði veiði- reynslu á úthafskarfa sem kemur útgerðinni nú til góða þegar út- hafskarfanum hefur verið skipt milli skipa. Geiri Péturs ÞH fékk 255 tonna úthafskarfakvóta sem I skipinu er fullkomin rækjuvinnslulína frá Carnit- ech, m.a. tveir rækjuflokkarar af nýrri gerð. Geiri Péturs ÞH. (Myndir/Fiskifréttir: Hafþór Hreiðarsson). Geirí Péturs ÞH gerður að rækjufrystitogara Úr sjó til sælkera í glæsilegum og vönduðum umbúðum frá Kassagerð Reykjavíkur. Hjá Kassagerðinni hefur átt sér stað áratuga þróunarstarf við gerð margskonar fiskumbúða. Hönnun og önnur sérfræðiþjónusta á staðnum. Hafið samband og við leysum vanda- málin fljótt og vel. KASSAGERÐ REYKJAVIKUR HF VESTURGARÐAR 1 104 REYKJAVlK SfMI 55 38383 BRÉFASÍMI 55 38598 Óskum eigendum og áhöfn g og gengis með skipið Skipið er búið: KAIJO höfuðlínusjá - SODENA Turbo 2000 - LEICA GPS - CSI DGPS - Kelvin Hughes VHF GMDSS - MAGNAPHONE Standard C- LOKATA neyðarbauju og Navtex ætlunin er að breyta í aðrar teg- undir. Þá hafði Skúmur GK einnig drjúga veiðireynslu í Smugunni í Barentshafi sem mun væntanlega nýtast Geira Péturs ÞH þegar Smuguveiðarnar verða kvótasett- ar í framtíðinni. Skipstjóri á Geira Péturs ÞH er Olgeir Sigurðsson. Fréttir R.SIGMUNDSSON ehf. SIGUNGA - OG FISKILEITARTÆKI TRYGGVAGÖTU 16 101 R. SÍMI: 562 2666, FAX: 562 2140 Vír sem þú getur treyst! Brunton Shaw er leiðandi fyrirtæki í víraframleiðslu með áratuga reynslu að baki. Brunton Shaw framleiðir togvír, snurpuvír, vinnsluvír, grandaravír og kranavír. Hægt er að velja á milli venjulegs og samanþjappaðs (dæform) vírs. Brotþol samanþjappaða vírsins er mun hærra en brotþol venjulegs vírs sem er jafn að sverleika. Vírinn frá Brunton Shaw er enskur hágæðavír og hverri afgreiðslu getur fylgt vottorð um rannsókn og prófun. BBUNTON SHBUIIIMITÉI) Áratuga reynsla í notkun Brunton Shaw vírsins hér á landi gerir hann að vír sem þú getur treyst. V O RUHUS IS íslenskar sjávarafurðir hf. VORUHUS IS - HOLTABAKKA V/HOLTAVEG - 104 REYKJAVIK UMBÚÐIR - REKSTRARVÖRUR -VEIÐARFÆRI - SÍMAR 568 1050 OG 581 4667, FAX 581 2848

x

Fiskifréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fiskifréttir
https://timarit.is/publication/1594

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.