Fréttablaðið - 06.11.2021, Síða 2
Stærsta Covid-bylgjan til þessa
bth@frettabladid.is
STÉTTARFÉLÖG Viðar Þorsteinsson,
fyrrverandi framkvæmdastjóri hjá
Eflingu, segist kominn í fjölmiðlafrí.
Viðar slæst í hópinn með Sólveigu
Önnu Jónsdóttur, fyrrverandi for-
manninn Eflingar, sem hefur ekki
veitt fjölmiðlum viðtöl eftir að hún
sagði af sér í vikunni. Viðar sagði
starfi sínu lausu degi síðar.
RÚV hefur greint frá bréfum frá
starfsfólki Ef lingar þar sem mest
óánægja er sögð með stjórnunar-
hætti Viðars. Er nefnt sem dæmi
að hann hafi sagt upp starfsmanni,
rúmföstum í öndunarerfiðleikum
vegna Covid.
Þegar leitað var viðbragða Viðars
kvaðst hann kominn í fjölmiðlafrí.
Sólveig Anna hefur eingöngu tjáð
sig opinberlega á Facebook eftir að
hún sagði af sér. n
Viðar í Eflingu
líka í fjölmiðlafrí
birnadrofn@frettabladid.is
COVID-19 Frá og með deginum í
dag er aftur grímuskylda á Íslandi.
Skylt er að vera með grímu innan-
dyra þar sem ekki er hægt að tryggja
eins metra nálægðarmörk milli
einstaklinga sem ekki eru í nánum
tengslum, einnig á viðburðum þar
sem gestir sitja í bókuðum sætum.
Nálægðarmörk og grímuskylda
á ekki við um börn fædd 2006 eða
síðar. Starfsfólki sem veitir ein-
staklingsbundna þjónustu sem
krefst nándar, til dæmis hárgreiðslu,
er ekki skylt að bera grímu, grímu-
skylda er á viðskiptavinum.
Miðvikudaginn 10. nóvember
taka gildi hertar sóttvarnareglur
hérlendis sem fela meðal annars í
sér 500 manna samkomutakmark-
anir og styttri opnunartíma veit-
inga- og skemmtistaða, sem hafa þá
heimild til að hafa opið til klukkan
ellefu á kvöldin. n
Aftur grímuskylda
Svandís Svavars-
dóttir heil-
brigðisráðherra
Núverandi bylgja Covid-19 er sú stærsta til þessa á Íslandi. Þetta kom fram hjá Þórólfi Guðnasyni sóttvarnalækni á upplýsingafundi almannavarna í gær. Á
fundinum varaði Þórólfur við því að neyðarástand kunni að skapast á sjúkrahúsum landsins nema gripið verði til ráðstafana til að ná smitunum niður. Benti
hann í því samhengi á stöðuna í Evrópuríkjum á borð við Rúmeníu. Landspítalinn var færður á hættustig í gær vegna fjölda smita. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Samkvæmt nýrri greinargerð
eftir Kristínu I. Pálsdóttur
hafa margar konur sem dvelja
í neyðarskýlum misst trú á
réttarkerfinu og leita því ekki
réttar síns í gegnum dóms-
kerfið. Endurmeta verði
þjónustuna í samræmi við
nýja þekkingu og áherslur.
birnadrofn@frettabladid.is
SAMFÉLAG „Mikilvægt er að hafa
í huga að konur sem lenda í heim-
ilisleysi eru fjórum sinnum líklegri
en aðrar konur til að hafa upplifað
ofbeldi í nánum samböndum og að
heimilisleysi er oft bein afleiðing af
því,“ segir í greinargerð um heimilis-
lausar konur og ofbeldi.
Greinargerðin er unnin af Krist-
ínu I. Pálsdóttur, framkvæmda-
stjóra Rótarinnar, félags um velferð
og lífsgæði kvenna.
Í greinargerðinni sem kynnt var á
fundi ofbeldisvarnarnefndar segir
að konur sem leita í Konukot, neyð-
arskýli fyrir húsnæðislausar konur,
hafi f lestar átt erfiða æsku, orðið
fyrir áföllum í lífinu og að margar
þeirra eigi einnig við geðræn vanda-
mál að stríða.
Þá segir að bakland kvennanna
sé lélegt og að f lestar þeirra neyti
áfengis og /eða vímuefna. Heimilis-
leysi kvenna sé mannréttindabrot
og rétturinn til fullnægjandi hús-
næðis sé viðurkennd mannréttindi.
„Ofbeldi í nánum samböndum er
það mannréttindabrot sem konur
verða oftast fyrir og algengasta
ástæðan fyrir heimilisleysi kvenna,“
segir í greinargerðinni.
„Í fáum hópum kvenna er að
finna hærra hlutfall þolenda kyn-
bundinnar áreitni, ofbeldis og þess
valdaleysis sem hlýst af mismunun
kynjanna, en á meðal kvenna með
vímuefnavanda,“ segir áfram í
greinargerðinni. Vankantar séu á
ofbeldis- og kynferðisbrotakærum
sem venjulega kærist sjálf krafa
í heimilisof beldismálum. Gestir
neyðarskýla og þau sem séu heim-
ilislaus njóti ekki þeirra réttinda,
jafnvel þó að maki þeirra sé gerandi.
„Konurnar þurfa því að kæra sjálf-
ar og taka þá áhættu sem því fylgir.
Þær konur sem dvelja í neyðarskýli
hafa oft misst trú á „kerfinu“ og sjá
það ekki sem farveg fyrir réttlæti sér
til handa og því er það mjög sjald-
gæft að konur í þessari stöðu leiti
réttar síns í gegnum dómskerfið.“
Halldóra R. Guðmundsdóttir,
forstöðukona Konukots, segist
þekkja vel hversu óalgengt það sé
að konurnar í Konukoti leiti réttar
síns. Engir karlar fái að koma inn í
Konukot svo að þar hafi „heimilis-
of beldismál“ ekki komið upp, það
hafi þó gerst á lóðinni.
Í greinargerðinni segir að endur-
meta þurfi þjónustu við þann hóp
sem sæki Konukot og önnur úrræði
fyrir heimilislausa í samræmi við
nýjustu þekkingu og áherslur um
mannréttindi og skaðaminnkun.
„Við vitum að hjúkrunarheimili
er á dagskrá fyrir þennan hóp, en að
okkar mati vantar einnig öryggis-
neyðarskýli, sem dómsmálaráðu-
neyti kæmi að rekstrinum á, og
kvennaathvarf fyrir konur með
vímuefnavanda.“ n
Kynbundið ofbeldi gæti
verið orsök heimilisleysis
Engir karlar fá að koma inn í Konukot. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Halldóra R. Guð-
mundsdóttir,
forstöðukona
Konukots
Konur sem leita í
Konukot, neyðarskýli
fyrir húsnæðislausar
konur, hafa flestar átt
erfiða æsku og orðið
fyrir áföllum í lífinu.
gar@frettabladid.is
DÓMSMÁL Þrír lykilstarfsmenn
hjá flugfélaginu Play þurfa ekki að
mæta í vitnaleiðslur fyrir dómi,
eins og félag Michele Ballarin
hafði krafðist. Vildi lögmaður Ball-
arin leiða þremenningana til vitnis
vegna meints hvarfs f lugrekstrar-
handbóka úr þrotabúi WOW. Taldi
hann þeim hafa verið stolið.
Dómarinn í Héraðsdómi Reykja-
ness segir í úrskurði að ekki sé
skýrt í beiðni lögmanns Ballarin
að hverjum dómsmál sem hann
kynni að höfða, myndi beinast.
Fyrir dómi hafi lögmaðurinn full-
yrt að það væri af og frá að það yrðu
þremenningarnir heldur yrði það
vinnuveitandi þeirra, Fly Play.
„Allt að einu verður í ljósi þess
sem fyrir liggur um málsatvik að
telja að varnaraðilar [þremenning-
arnir] séu í þeirri aðstöðu að ekki
sé loku fyrir það skotið, þrátt fyrir
tilvitnaða yfirlýsingu, að þeir geti
orðið aðilar að væntanlegu dóms-
máli,“ segir dómarinn. n
Vitnaleiðslum um
WOW air hafnað
2 Fréttir 6. nóvember 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ