Fréttablaðið - 06.11.2021, Blaðsíða 4
Reykjavík þurfi að brjóta
nýtt land en þétta líka
áfram byggð. Opnun
Mannvirkjaskrár til bóta.
bth@frettabladid.is
HÚSNÆÐISMÁL Fréttablaðið greindi
frá því í gær að fasteignasalar á
höfuðborgarsvæðinu hefðu aldrei
séð eins fáar íbúðir til sölu. Þær eru
sjöfalt færri en um mitt ár í fyrra,
hlaupa á örfáum hundruðum.
Sigurður Ingi Jóhannsson, sam-
göngu- og sveitarstjórnarráðherra,
telur að íbúðaskorturinn sé eitt
dæmi um að þörf sé á sameiningu
málaf lokka húsnæðismála undir
einn hatt.
„Ja, klárlega skortir yfirsýn,“ segir
Sigurður Ingi. „Það skortir samtal
milli skipulags og bygginga. Ein
leið til þess gæti verið að koma yfir-
stjórn á einn stað.“
Mannvirkjaskrá sem var opnuð
í gær, rafrænn gagnagrunnur, er
dæmi um mikilvæga úrbót, að sögn
Sigurðar Inga. Í nýju gáttinni verði
meðal annars hægt að fylgjast með
einstökum eignum, sveitarfélögum,
eftirliti og byggingartíma. Óheppi-
legt sé að einn málaflokkur, hús-
næðismál, hafi dreifst á tvö til fjögur
ráðuneyti.
„Þetta er vandamál og afleiðing-
arnar geta orðið alvarlegar eins og
við sjáum núna í íbúðamálunum,"
segir Sigurður Ingi. „En það má ekki
gleyma að í kringum höfuðborgina
er mikil uppbygging."
Fasteignaverð þýtur upp á sama
tíma og lítið er að hafa fyrir þá sem
leita að húsnæði til kaups. Sigurður
Ingi er ekki eini ráðherrann sem
hefur áhyggjur af stöðunni.
Ásmundur Einar Daðason, félags-
og barnamálaráðherra, var við-
staddur opnun Mannvirkjaskrár.
„Sú uppbygging sem þarf að fara
fram á suðvesturhorninu er gríðar-
leg,“ segir hann.
Skortur á íbúðum hafi vegna verð-
hækkana og húsnæðiseklu aukið
byggð í nálægum sveitarfélögum á
suðvesturhorninu. Borgin þurfi að
vinna að tveimur leiðum samtímis.
„Það er bæði hægt að þétta byggð
og skipuleggja ný svæði,“ segir
Ásmundur Einar. „Önnur sveitar-
félög í kringum Reykjavík hafa
brotið land og það þarf líka að gera
það í Reykjavík.“
Sigurður Hannesson hjá Sam-
tökum iðnaðarins segir að hraða
þurfi skipulagsmálum hjá sveitar-
félögum, gefa út fleiri leyfi og koma
fleiri verkefnum af stað.
„Auðvitað stendur það atvinnulífi
fyrir þrifum ef allir hafa ekki þak
yfir höfuðið,“ segir Sigurður.
Bæjarstjóri Reykjanesbæjar,
Kjartan Már Kjartansson, segir
að allt húsnæði seljist nú í Reykja-
nesbæ um leið og það komi á mark-
að. Sama á við um mörg sveitarfélög
víða um land þótt suðvesturhornið
sé heitast.
Ein ástæða húsnæðiseklunnar er,
að sögn Kjartans, sú að margir inn-
f lytjendur hafi áður búið í ósam-
þykktu og óviðunandi húsnæði.
Nú séu þeir vonandi flestir komnir
í betra skjól.
Kjartan segir það sína skoðun að
sveitarfélögum beri skylda til að
útvega þeim sem vilji búa innan
þeirra nægt húsnæði. n
Það skortir samtal milli
skipulags og bygginga.
Ein leið til þess gæti
verið að koma yfir-
stjórn á einn stað.
Sigurður Ingi
Jóhannsson,
samgöngu- og
sveitarstjórn-
aráðherra
100% RAFMÖGNUÐ
ÍTÖLSK HÖNNUN
ÍSBAND FRUMSÝNIR FYRSTA FALLEGA
RAFMAGNSSMÁBÍLINN FIAT 500e.
6. NÓVEMBER KL. 12-16
UMBOÐSAÐILI FIAT Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR
S. 590 2300 • FIAT.IS • ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-17 • LAUGARDAGA 12-16
TÍMALAUS ÍTÖLSK HÖNNUN
MEÐ ALLT AÐ 460 KM DRÆGNI.
Ráðherrar sammála um að mikill
skortur á íbúðum sé alvarlegur vandi
Kjartan Már
Kjartansson,
bæjarstjóri
Reykjanesbæjar
Frá opnun
Mannvirkjaskrár
í gær. Í skránni
verður hægt að
skoða fjölda
íbúða í byggingu
eftir byggingar-
stigi.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
birnadrofn@frettabladid.is
REYKJAVÍK Aðgerðaáætlun Reykja-
víkurborgar gegn of beldi var lögð
fram á síðasta fundi of beldisvarna-
nefndar þar sem samþykkt var að
kynna áætlunina á vefnum Betri
Reykjavík og kalla eftir ábending-
um. Frestur til að skila inn umsögn-
um eða ábendingum er til og með
19. nóvember næstkomandi.
Aðgerðaáætlunin er unnin af
of beldisvarnanefndinni og sam-
kvæmt upplýsingum á vef borgar-
innar er hún sett fram til að fá „yfir-
sýn yfir þau fjölmörgu verkefni sem
borgin sinnir í vinnu gegn of beldi.“
Þá er henni einnig ætlað að vera
vegvísir í baráttunni gegn of beldi
og tryggja að þau verkefni sem til-
greind eru séu framkvæmd.
Í drögum að áætluninni eru til-
greindar 32 aðgerðir sem snúa
meðal annars að barnavernd,
vændi og mansali og samstarfi
til ef lingar öryggis á skemmti-
stöðum. n
Kynntu aðgerðir
gegn ofbeldi
Aðgerðaáætlunin er unnin af ofbeld-
isvarnarnefnd Reykjavíkurborgar.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
kristinnpall@frettabladid.is
RAFÍÞRÓTTIR Ólafur Hrafn Stein-
arsson, formaður Raf íþrótta-
samtakanna, áætlar að rúmlega
hundrað milljónir manna fylgist
með úrslitaleiknum í World Cham-
pionship í tölvuleiknum League
of Legends, sem fer fram í Laugar-
dalshöll um helgina. Með því
lýkur dvöl rafíþróttaliða sem hafa
undanfarinn mánuð verið á Íslandi
og keppt í stærsta móti ársins í
einum vinsælasta tölvuleik heims.
Í úrslitaleiknum mætast kínverska
liðið EDward Gaming og DAMWON
Gaming frá Suður-Kóreu og verður
sýnt frá leiknum á nítján mismun-
andi tungumálum víðs vegar um
heiminn.
Ólafur segir að síðustu ár hafi
yfirleitt rúmlega hundrað millj-
ónir manna fylgst með úrslita-
leiknum og sé því hægt að búast
við sambærilegum áhorfenda-
fjölda í ár. Þá sé von á athöfn í
borgum í Kína og Suður-Kóreu í
tengslum við úrslitaleikinn þar
sem fólk komi saman til að fylgjast
með úrslitaleiknum. n
Hundrað milljónir horfa á úrslitaleik í Reykjavík
Á keppnisstað í Laugardalshöll.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
birnadrofn@frettabladid.is
VINNUMARKAÐUR Launagreiðend-
um sem skráðir eru í viðskiptahag-
kerfið hér á landi fjölgaði um 501 frá
því í september 2019 þar til í sept-
ember á þessu ári. Nú eru skráðir
launagreiðendur 15.477 talsins.
Launagreiðendum með í það
minnsta fimmtíu launþega fækk-
aði um nítján talsins á umræddu
tímabili, en á sama tíma fjölgaði
launagreiðendum með færri en tíu
launþega um 524. Í byggingarstarf-
semi og mannvirkjagerð fjölgaði
launagreiðendum um 200, eða tæp
sjö prósent.
Launagreiðendum í ferðaþjón-
ustu fjölgaði um 15,6 prósent á milli
ára og voru í september á þessu ári
534 talsins. n
Fleiri smærri
launagreiðendur
4 Fréttir 6. nóvember 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ