Fréttablaðið - 06.11.2021, Page 8
Lögmaður segir að farið hafi
verið fram úr hámarksfang
elsisrefsingu þegar maður var
dæmdur til langrar fangelsis
vistar fyrir ítrekaðan akstur
eftir sviptingu ökuréttar.
arib@frettabladid.is
DÓMSMÁL Gunnar Ingi Jóhanns
son lögmaður segir að farið hafi
verið fram úr hámarksrefsingu
þegar Kristján Már Guðnason var
dæmdur í fangelsi fyrir að aka
sviptur ökuréttindum.
Líkt og sagði frá í blaðinu í gær
var Kristján Már dæmdur í 15
mánaða óskilorðsbundið fangelsi
í Héraðsdómi Suðurlands fyrir að
aka sviptur ökuréttindum. Hann
varði sig sjálfur. Brotin áttu sér stað
áður en dómur féll í Landsrétti fyrir
sams konar umferðarlagabrot, þar
sem Kristján var líka dæmdur í 15
mánaða óskilorðsbundið fangelsi.
Gunnar Ingi segir að Kristjáni
hafi verið dæmdur hegningarauki
í hinum nýja dómi héraðsdóms.
Vart sé hægt að lesa dóminn öðru
vísi en að 15 mánuðirnir í héraðs
dómi bætist sem hegningarauki við
það 15 mánaða fangelsi sem Krist
ján var dæmdur í í Landsrétti fyrir
þremur vikum.
„Í dómi Héraðsdóms Suðurlands
er vísað í þann dóm og bent á að
þau brot sem hann er sakfelldur
fyrir séu framin fyrir dóm Lands
réttar og því eigi að dæma honum
hegningarauka. Hegningarauki
er sérstakt ákvæði í almennum
hegningarlögum sem segir að ef
verið er að dæma mann í öðru máli,
sem er framið fyrir uppkvaðningu
annars dóms, eigi að dæma honum
refsingu eins og málin hefðu verið
dæmd saman, þá er bætt við refs
inguna,“ segir Gunnar Ingi.
„Ég er ekki viss um að, ef þessi
mál hefðu verið dæmd saman í
fyrra málinu, hann hefði fengið
tveggja og hálfs árs óskilorðsbund
ið fangelsi fyrir sviptingarakstur.
Hámarksfangelsi við sviptingar
akstri er samkvæmt umferðarlög
um tvö ár. Það er ekki hægt að sjá
annað en að farið hafi verið fram úr
hámarksfangelsisrefsingu fyrir brot
af þessu tagi.“
Gunnar Ingi segir þetta einnig
varhugavert þar sem dæmt sé sam
kvæmt dómvenjum. „Dómvenja er
ógagnsætt fyrirkomulag, það er úti
lokað fyrir almenna borgara að vita
hvaða refsingu þeir gætu átt von á
samkvæmt dómvenju. Það er hægt
að fletta upp almennum hegningar
lögum, en ekki dómvenjum.“
Kristján hyggst áfrýja dómnum,
nú með hjálp lögfræðings.
„Ef hann vill ekki sitja 30 mánuði
í fangelsi þá hlýtur hann að vilja fá
álit Landsréttar á því hvort hann
hefði fengið 30 mánaða óskilorðs
bundið fangelsi ef það hefði verið
dæmt fyrir öll þessi brot í einu lagi
og hvort það sé innan marka laga,“
segir Gunnar Ingi. n
benediktboas@frettabladid.is
GRINDAVÍK „Það var alveg spenna í
loftinu þegar lóðin var tilkynnt og
fólk fór að standa upp til að draga
spil,“ segir Atli Geir Júlíusson, sviðs
stjóri skipulags og umhverfissviðs
Grindavíkur, en 27 umsóknir bár
ust um sjö lausar lóðir sem bærinn
úthlutaði í Víðigerði.
Vegna fjöldans var dregið um
hæsta spilið og fékk sá lóðina sem
dró það hæsta. Ásinn var hæstur.
„Eignarhaldsfélagið Normi dró
níu, Grindin dró fimmu, Einherjar
ehf. drógu drottningu, HK verk ehf.
dró ás og H.H. Smíði ehf. dró sexu,“
segir í fundargerðinni, sem lýsir
útdrættinum eins og um íþrótta
kappleik sé að ræða. Enda voru spil
in sem notuð voru til að draga um
lóðirnar fornfrægur stokkur, gefinn
út 2002 af íþróttahetjum bæjarins.
„Þetta eru merkilegar myndir af
merkilegum íþróttahetjum. Helgi
Jónas Guðfinnsson, Ólafur Örn
Bjarnason, Scott Ramsey og Páll
Axel Vilbergsson, svo nokkrir séu
nefndir,“ segir Atli.
Þegar verktakar höfðu dregið spil
sýndu þeir byggingarfulltrúa og
lögfræðingi sviðsins spilið áður en
haldið var aftur til sætis. „Einhvern
veginn verðum við að útdeilda lóð
unum,“ segir Atli. „Sumir voru að
draga kóng og héldu að lóðin væri
kominn í hús en svo dró sá næsti
ás. Þetta var alveg smá spenna.“
Það gerðist í úthlutun um Víðigerði
2931 þar sem Guðmundur Ragnar
Ragnarsson dró drottningu, Grind
in dró kóng en Eignarhaldsfélagið
Normi dró ás.
Atli segir að áhuginn á lóðunum
hafi ekkert endilega komið sér á
óvart, enda Grindavík mikil para
dís fyrir börn og fullorðna. Stefnt er
að úthlutun í desember á 77 lóðum
í svokölluðu Hlíðahverfi og býst Atli
alveg við álíka stuði og stemningu
við þann útdrátt – þar sem aftur
verður notast við spilin góðu.
„Það verður vonandi úthlutað í
desember og þetta gefur góð fyrir
heit. Ég er mjög spenntur að fara að
úthluta fleiri lóðum. Þetta var mjög
skemmtilegt enda fjölmennt og góð
mennt,“ segir Atli Geir Júlíusson.n
Það er útilokað fyrir
almenna borgara að
vita hvaða refsingu
þeir gætu átt von á
samkvæmt dómvenju.
Gunnar Ingi
Jóhannsson
lögmaður
Sannkölluð
Matarupplifun og viðburðir
vítt og breitt um Vesturland
Matarhátíð á Hvanneyri
13. nóvember 13 -17
í nóvember!
VEISLA Á VESTURLANDI
Ásinn gerði útslagið í æsispennandi
spiladrætti um lóðir í Grindavík
Farið yfir hámarksrefsingu
Lausleg talning sýnir að Kristján hafi sautján sinnum verið refsað fyrir um-
ferðarlagabrot á tuttugu árum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Spilin sem notuð voru við lóðaút-
hlutun í Grindavík og verða líklega-
lega notuð við úthlutun í desember.
Atli Geir Júlíus-
son, sviðsstjóri
skipulags- og
umhverfissviðs
Grindavíkur
8 Fréttir 6. nóvember 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ