Fréttablaðið - 06.11.2021, Side 20
Í kvöld verður frumsýnd
í Þjóðleikhúskjallaranum
sýningin Sjitt, ég er 60+, þar
sem Örn Árnason á sviðið
ásamt píanóleikaranum Jónasi
Þóri Þórssyni og veltir fyrir sér
hækkandi aldri.
bjork@frettabladid.is
Einn okkar allra ástsælasti
leikari, Örn Árnason, varð
sextugur rétt fyrir Covid,
bjó til sýningu um tíma-
mótin, en viti menn, síðan
hafa liðið tveir afmælisdagar til við-
bótar.
„Sýningin hét Sjitt, ég er sextugur
en hún átti að fara á svið fyrir Covid
og síðan þá hef ég átt tvö afmæli og
þess vegna heitir hún „Sjitt, ég er
60+“,“ útskýrir hann.
„Einhverra hluta vegna hef ég aldr-
ei leitt hugann að því að maður gæti
staðið í þeim sporum að eiga bara
fimm ár eftir í eftirlaunaaldur,“ segir
hann hvumsa. „Fyrir mér er gamalt
fólk alltaf 12-15 árum eldra en ég er!“
Gamall hljómar svo gamalt
Örn segist í sýningunni velta fyrir
sér orðinu „gamall“, en til séu alls
konar skemmtilegri orð yfir það að
aldurinn færist yfir.
„Gamall hljómar eitthvað svo …
gamalt!“ segir hann í léttum tón.
Örn lofar því að söngurinn verði
ekki langt undan, en eins og oft áður
verður Jónas Þórir honum til halds
og trausts í þeim efnum. Í sýning-
unni horfist Örn í augu við sjálfan sig
og ferilinn og er bæði á persónulegu
og léttu nótunum.
„Það verða alls konar endurlit sem
enginn hefur heyrt, en engar lyga-
sögur,“ segir hann og hlær. „Bara
heiðarlegur og sannur eins og menn
eiga að vera. Og fagna því að geta
alltaf verið: Á besta aldri,“ segir hann
að lokum. n
Sjitt – ég er sextíu plús
Örn Árnason getur loksins haldið upp á sextugsafmæli sitt með sýningu, tveimur árum síðar. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Það er
frekar eldra
fólkið sem
fast er í
viðjum
vanans.
Ekki er allt
sem sýnist.
n Í vikulokin
Ólafur
Arnarson
Við mælum með
BJORK@FRETTABLADID.IS
Sólveig Anna Jónsdóttir, sem
hrökklaðist úr formennsku hjá Efl-
ingu um síðustu helgi, hefur rekið
róttækari verkalýðsbaráttu en sést
hefur í áratugi. Rétt eins og flokks-
bróðir hennar, Gunnar Smári Egils-
son, hafnar hún málamiðlunum og
rekur í reynd ekki verkalýðs- eða
réttindabaráttu heldur stéttastríð
ættað frá næstliðinni öld.
Sólveig Anna hefur unnið mark-
visst gegn atvinnulífinu og raunar
stillt atvinnulífinu og launþegum
Verður Gunnar Smári næsti formaður Eflingar?
upp sem fullkomnum andstæðum
með andstæða hagsmuni á öllum
sviðum, sem er sannarlega breyt-
ing frá þeirri þróun sem hér hafði
átt sér stað allt frá Þjóðarsáttinni
1990. Með tilkomu Sólveigar Önnu
virtist sem átök á vinnumarkaði
væru óumflýjanleg. Orðræðan var
skýr: atvinnurekendur væru arð-
ræningjar sem kúguðu starfsfólk
og ekkert nema barátta og samstaða
launþega gæti brotið kúgunina á
bak aftur. Var þetta mjög í takt við
málflutning Sósíalistaflokks Gunn-
ars Smára fyrir þingkosningarnar í
september. Á tímabili virtust bæði
Gunnar Smári og Sólveig Anna hafa
góðan byr í segl sín.
En ekki er allt sem sýnist. Sósíal-
istaflokkurinn náði ekki á þing og
ekki ríkir friður um Sólveigu Önnu.
Hún virðist sek um sömu kúgun og
ógnarstjórn og hún sakar atvinnu-
rekendur um. Allt sprakk innan frá
vegna þess að starfsfólki hennar
ofbauð hroki og yfirgangur.
Vonandi lærir verkalýðshreyf-
ingin af óförum Sólveigar Önnu
og fer með skynsamlegar kröfur
inn í kjarasamninga á næsta ári.
Ekki eru forsendur til annars eftir
miklar launahækkanir á liðnum
misserum.
Ætli næsti kjörni formaður Efl-
ingar verði svo Gunnar Smári Egils-
son, sem var lykilmaður á bak við
kjör Sólveigar Önnu 2018 og hefur
stundum verið talinn skuggastjórn-
andi þar? n
Jólum í skókassa
Verkefnið Jól í skókassa er í fullum
gangi þar sem innpakkaðir skó-
kassar með leikföngum, skóladóti,
fötum, snyrtivörum og nammi frá
íslenskum fjölskyldum eru sendir
til að gleðja börn í Úkraínu. Tekið er
við kössum á Holtavegi 28 til og með
13. nóvember. Allar nánari upplýs-
ingar má finna á Facebook-síðu Jóla
í skókassa og á kfum.is/skokassar.
Njálu á hundavaði
Dúettinn Hundur í óskilum ræðst í
sýningu sinni á Nýja sviði Borgar-
leik hússins á einn hornstein
íslenskrar menningar – sjálfa Njálu.
Félagarnir fara sjálfir með öll hlut-
verk og glæða söguna fersku lífi og
húmor. Það þarf djúpan skilning á
verkinu til að gera svo beitt grín sem
engum dylst að þeir Hjörleifur og
Eiríkur búi yfir. Þeir sem aldrei hafa
lesið Njálu ættu að skilja söguna og
dýpt hennar og hinir sem þekkja vel
læra klárlega eitthvað nýtt. n
T inna Hallgrímsdóttir er nafn sem
þú, lesandi góður, ættir að leggja
á minnið. Hinn 27 ára formaður
félags ungra umhverfissinna hefur
sannarlega látið að sér kveða
undanfarið og ef við erum heppin er hún rétt
að byrja. Félagið sem nú telur um 1.200 með-
limi hefur vakið mikla athygli undanfarið
og ekki síst í aðdraganda nýliðinna alþingis-
kosninga, þar sem félagið lét hanna kvarða til
að meta umhverfis- og loftslagsmál í stefnu
allra stjórnmálaf lokka.
Tinna segir í viðtali hér í blaðinu að hennar
tilfinning sé að yngri kynslóðin sé ekki
hrædd við breytingar þær sem nauðsyn-
legar séu til að sporna við hlýnun jarðar. Það
er frekar eldra fólkið sem fast er í viðjum
vanans. Sem finnst það vera að fórna miklu
með því að stíga skref í átt að umhverfis-
vænni lífsstíl. En hverjir þurfa svo að eiga við
af leiðingarnar? Jú, einmitt yngri og komandi
kynslóðir! Því ættum við sem eldri erum og
vanafastari að skammast okkar til að opna
augun og eyrun. n
Opnum augu og eyru
20 Helgin 6. nóvember 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
6. nóvember 2021 LAUGARDAGURHELGIN FRÉTTABLAÐIÐ