Fréttablaðið - 06.11.2021, Side 28
Ég hætti að
geta farið
út úr húsi.
Ég lokaði
mig inni og
leið eins og
að allir
sæju ein-
hverja
ofbeldis-
manneskju
í mér.
Birgitta Jónsdóttir, fyrrver-
andi þingmaður og stofnandi
Pírata, lifir undir fátæktar-
mörkum. Hún leggur spilin
á borðið í uppgjöri við erfiða
reynslu. Tilbúin að takast á
við nýja framtíð.
Sól skín á glugga Mokka þegar
við mælum okkur mót. En
við hefjum sögu í húminu.
Það kom fram í Lifðu núna
árið 2019 að þú lifðir við
kröpp kjör. Lifirðu undir fátæktar-
mörkum?
„Já, eins og er. Ég er að klára síð-
asta mánuðinn minn hjá VIRK og fæ
um 220.000 krónur í styrk á mánuði.
Ég seldi íbúðina og fékk milligjöf
sem ég hef notað til að brúa bilið. Ég
er samt ekki að svelta.“
Þurftirðu að selja íbúðina vegna
fjárhagserfiðleika?
„Já. Það er allt í lagi, ég hef aldrei
gefið mikið fyrir efnisleg gæði og
hef aldrei átt mikla peninga en ég
hef eignast mikinn tíma upp á síð-
kastið sem ég hef reynt að nota vel.“
Löng og ströng áfallasaga
Áfallasaga Birgittu er löng. Manns-
hvörf, sjálfsvíg og veikindi hafa
varðað lífsbrautina eins og hún
hefur áður rætt á opinberum vett-
vangi.
„Þessi tími undanfarið var ekki
fyrsti stóri lærdómurinn, mér hefur
alla tíð verið gefið ótrúlega ríkt líf
af reynslu og ég hef reynt að taka þá
reynslu með mér inn í opinber störf.
Ég er þannig manneskja að ég get
ekki barist bara fyrir mér. Ég verð
líka að berjast fyrir öðrum.“
Vinsælasti flokkur landsins
Birgitta lenti í kulnun eða „burnout“
eins og hún kallar það en áður hafði
hún unnið þrotlaust árum saman
og sigrarnir voru margir. Hún sett-
ist á þing árið 2009 með stofnun
Borgarahreyfingarinnar. Árið 2012
tilkynnti hún um stofnun Pírata.
Píratar fengu í fyrstu þingkosn-
ingum 5,1 prósent en urðu skömmu
síðar vinsælasta stjórnmálahreyf-
ing landsins. Í apríl 2015 mældust
Píratar í skoðanakönnun MMR
með 32 prósenta fylgi. Birgitta var
mjög áberandi á þessum tíma, bæði
innan sem utan landsteinanna.
Margir þökkuðu fylgismælingarnar
og jákvætt viðmót fjölmargra lands-
manna gagnvart Pírötum ekki síst
frammistöðu hennar.
„Auðvitað er alveg ljóst að þessi
f lokkur hefði aldrei komist inn á
þing ef ég hefði ekki leitt hann,“ segir
Birgitta.
Sjálfstæðismenn fóru á taugum
„En í dag hef ur gr unnurinn
gleymst,“ bætir hún við og minnir
á að aðaltilgangurinn með stofnun
f lokksins hafi verið tillaga um að
styrkja fjórða valdið, fjölmiðla, svo
þeir gætu flutt viðkvæmar fréttir af
málum sem valdhafar vilja ekki að
séu fluttar.
„Það var meginmarkmiðið með
stofnun Pírata. Svo lendum við í því
að þessi f lokkur verður rosa vin-
sæll. Í heilt ár mældumst við stærsti
f lokkurinn í skoðanakönnun, það
var í fyrsta skipti sem Sjálfstæðis-
f lokkurinn upplifði raunverulega
ógn og þetta fór rosalega í taugarnar
á þeim, þeir urðu mjög hræddir,“
segir hún, hnykkir hárinu til og hlær.
Tilkynnt að tíminn væri liðinn
Hvað gerðist í aðdraganda þeirrar
ákvörðunar að þú ákvaðst að segja
skilið við stjórnmálin?
„Þegar til óvæntu kosninganna
2017 kom, reyndi ég mjög mikið að
fá Katrínu [Jakobsdóttur] og fleiri
til að skipa bráðabirgðastjórn og
klára fjárlögin.“ Hún heldur áfram:
„En það voru þarna Halldór Auðar
og fleiri sem höfðu verið í borgar-
stjórn. Þeir sögðu að ég hefði verið
á þingi tvö kjörtímabil, þeir tóku
með kjörtímabilið sem ég hafði
setið fyrir annan flokk. Þeir sögðu
að í stefnu Pírata segði að ég gæti
ekki farið oftar fram.“
Eyddi árum í að hugsa:
Hvað gerði ég rangt?
Birgitta segist fyrst nú hafa fengið áfallahjálp, en saga hennar er mörkuð mannshvörfum og miklum áskorunum. Hún
segist ótrúlega þakklát fyrir að Píeta samtökin séu til. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Björn
Þorláksson
bth
@frettabladid.is
Var þér tilkynnt þetta með sam-
tali?
„Nei, þetta var bara sett fram á
Pírataspjallinu á Facebook að ég
gæti ekki haldið áfram. Ég hefði
auðvitað getað tekið þennan slag
en komst að þeirri niðurstöðu að
ég gæti ekki haldið áfram þing-
mennsku þar sem eitthvert x hlut-
fall af flokknum vildi ekki hafa mig
áfram.“
Ætlaði að starfa með grasrótinni
Hvernig upplifun var það fyrir stofn-
anda flokksins að vera ýtt út?
„Ég var tilbúin að stíga til hliðar,
ég var búin að vera í 400 prósenta
vinnu árum saman og hafði náð
meiri árangri í alþjóðastarfi en
kannski allir aðrir þingmenn nema
kannski Ólafur Ragnar Grímsson. Ég
hugsaði: Ókei, ég vinn bara áfram í
grasrótinni og hjálpa til við kosn-
ingabaráttuna.
En það hafði skapast einhver
valdabarátta og ég er engin valda-
baráttutýpa,“ bætir hún við. Það hafi
farið illa í suma Pírata þegar erlendir
fjölmiðlar höfðu þrástagast á að hún
væri leiðtogi Pírata og forsætisráð-
herraefni þótt hún hefði sagt þess-
um fjölmiðlum að flokkurinn væri
með flatan strúktúr.
„Þau fóru fram á þegar ég var í
stjórnarmyndunarviðræðum með
óreyndu fólki í þingflokknum að ég
skrifaði þessum fjölmiðlum og segði
þeim að ég væri ekki leiðtogi. Það
var alls konar svona skrýtin dýna-
mík sem ég upplifði sem hreinan
tittlingaskít. Við höfðum fengið svo
sterkt umboð, margir áttuðu sig ekki
á hvað ég þurfti að hafa mikið fyrir
því að fá stjórnarmyndunarumboð-
ið, það þurfti að sannfæra Benedikt
[Jóhannesson í Viðreisn] og fleiri.“
Heiðurssætið fauk eftir hálftíma
„Ég eyddi tveimur árum í að hugsa:
Hvað gerði ég rangt?
En það varð allavega ljóst að ég
passaði ekki lengur inn í þennan
hóp,“ segir Birgitta.
Þú sagðir að þú hefðir ætlað að
vinna í grasrótinni. Hvað gerist svo?
„Ég dreg mig út úr kosningabarátt-
unni en svo fara að gerast alls konar
skrýtnir hlutir. Alexandra Briem
hringir í mig og býður mér heiðurs-
sæti á lista sem ég þigg. Svo hringir
hún hálftíma seinna aftur og segir
þá að hún hafi ekki mátt bjóða mér
sætið, allt í einu átti Elísabet Jökuls
að fá heiðurssætið og ég hvergi á
lista.“
Höfnun? Áfall?
„Mikil höfnun og ég varð ringluð,
því enginn sagði upphátt við mig:
Við viljum ekki hafa þig með. En
mér var ekki falið neitt hlutverk í
kosningabaráttunni þannig að ég
fór að hugsa að það væri sennilega
best að ég myndi draga mig alveg út.
Ég trigg eraði greinilega fólk.“
Vænd um ofbeldi
Veistu af hverju þetta fór svona?
„Nei, ég veit ekki enn af hverju.
Það eru margir sem hafa reynt
að fá svör frá Helga Hrafni um af
hverju hann vændi mig um að vera
ofbeldismanneskja. Ég var vænd um
að vera ofbeldismanneskja og það
fékk mikið á mig því ég er búddisti
og stunda prógramm sem gengur út
á að maður gangist við misgjörðum
ef þær verða.“
Hvað áttu við?
„Þetta sem Þórhildur Sunna dró
fram á þessum fundi og ég hafði
beðist afsökunar á, ég tek ákveðið
spor strax. Síðan bað ég hana líka
afsökunar fyrir framan þingflokk-
inn.“
Las í óleyfi trúnaðargögn
Til hvers ertu að vísa?
„Á lokadögum þingsins var verið
að klára mjög hratt alls konar mál og
meðal annars ríkisborgaramál. Það
er oft þannig að þeir sem sækja um
ríkisborgararétt setja sig í samband
við þingmenn, þeir hafa kannski
lent í einhverju svona rugli, ekið of
hratt, fengið einn punkt eða vita
ekki eitthvað og biðja um skilning.
Þessi hafði átt íslenska dóttur og
alltaf lent á milli einhvern veginn.
Ég var eitthvað að hugsa og reyna að
hjálpa honum en sá að nafnið hans
var komið en svo var eins og að það
væri eitthvert annað nafn og ég hélt
að það væri einhver misskilningur
og þá stóð á borðinu taskan hennar
Þórhildar með skjölunum um
hverjir þetta voru. Ég kíkti á það af
því að atkvæðagreiðsla var að byrja
og hún var föst á fundi. Ég átti auð-
vitað ekki að gera þetta, þetta voru
trúnaðargögn.“
Birgitta segist hafa reynt að bæta
fyrir brot sitt.
„Ég baðst afsökunar, bæði Þór-
hildi Sunnu og þingf lokkinn og
reyndi að bæta fyrir en hún upp-
lifði að ég hefði brotið á henni og ég
gengst við því. En þetta er eina málið
þar sem ég veit til að ég hafi gert eitt-
hvað af mér.“
Flati strúktúrinn ekki gallalaus
Það virðist reyna á Birgittu að rifja
þetta upp. Við súpum á kaffinu í
vaxandi kliði en nokkrum spurn-
ingum er kannski enn ósvarað.
Nú voru Píratar stofnaðir með
flatan strúktúr að leiðarljósi …
„… já, að minni tillögu.“
Upplifðirðu á þessum tíma að
kannski hefði verið betra þrátt fyrir
allt að hafa fastara skipulag?
„Já, í retróspekt held ég að fólk sé
ekki tilbúið fyrir flatan strúktúr.“
Myndirðu orða það þannig að
hinum flata strúktúr hefði tekist að
fremja ákveðið valdarán á þessum
tíma?
„Nei, alls ekki. Minn tími var
28 Helgin 6. nóvember 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ