Fréttablaðið - 06.11.2021, Page 33
KYNN INGARBLAÐ
ALLT
LAUGARDAGUR 6. nóvember 2021
Kal Penn með nýju bókina sína.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
oddurfreyr@frettabladid.is
Leikarinn Kal Penn, sem er lík-
lega frægastur fyrir hlutverk sitt í
Harold & Kumar-kvikmyndunum,
sagði frá því nýlega í viðtali við
People-tímaritið að hann væri
samkynhneigður og trúlofaður
maka sínum til ellefu ára. Hann
opnaði sig um ástarlífið vegna
útgáfu sjálfsævisögu sinnar, You
Can’t Be Serious.
Penn segist alltaf hafa verið
opinn varðandi kynhneigð sína
við fólk sem hann á í samskiptum
við og hann sé spenntur fyrir því
að segja lesendum frá sambandi
sínu, en að hans nánustu séu ekki
hrifin af sviðsljósinu.
Uppgötvaði kynhneigðina seint
Í bókinni segir Penn meðal annars
frá fyrsta stefnumóti hans og unn-
ustans, sem heitir Josh. Hann skildi
ekkert í því að Josh vildi horfa á
bíla keyra í hringi í NASCAR-kapp-
akstrinum og var viss um að þetta
myndi ekki ganga, en tveimur
mánuðum síðar voru þeir svo allt
í einu farnir að horfa á NASCAR á
hverjum sunnudegi.
Penn sagði líka að hann hefði
uppgötvað kynhneigð sína frekar
seint og að fólk áttaði sig á henni á
ólíkum tímaskeiðum lífsins.
Hann segist þakklátur fyrir að
hafa fengið mikinn stuðning frá
sínum nánustu og bætti við í gríni
að þegar þú sért búinn að segja
indverskum foreldrum að þú ætlir
að gerast leikari, séu öll samtöl
eftir það auðveld. ■
Kal Penn kom út
úr skápnum
Katrín Garðarsdóttir, aðstoðarverslunarstjóri hjá Hrafnhildi, segir gefandi að hjálpa viðskiptavinum að finna réttu jólagjöfina fyrir makann. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Jólagjöfin fæst hjá Hrafnhildi
Hjá Hrafnhildi er hægt að ganga að því vísu að finna ótal margt freistandi og fallegt í mjúka
pakkann til heittelskaðra kvenna, mæðra, dætra, systra eða vinkvenna. Þar er nostrað við
hvern jólapakka og þaulvanar afgreiðsludömur hjálpa til við að velja réttu gjöfina. 2
T A R A M A R
Tuttugu alþ jóðleg verðlaun
Endurmótaðu húðina með lífvirkum
efnum úr náttúru Íslands