Fréttablaðið - 06.11.2021, Blaðsíða 34
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr
Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Björn Víglundsson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann
Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir,
ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
„Hvort sem það er fyrir systur,
dóttur, móður eða betri helming-
inn, þá aðstoðum við þig við að
finna hina fullkomnu gjöf sem
hittir beint í mark,“ segir Katrín
Garðarsdóttir, aðstoðarverslunar-
stjóri hjá Hrafnhildi.
Nú er verslunin hjá Hrafnhildi
á Engjateigi komin í jólabúning og
hvarvetna má sjá fallega gjafavöru
í jólapakkana.
„Leðurhanskar eru alltaf vin-
sælir til gjafa, sem og silkislæður,
ullartreflar, hlýjar peysur, skart og
önnur smávara,“ upplýsir Katrín.
Hún bendir jafnframt á að
verslunin sé komin með öfluga
vefverslun, hjahrafnhildi.is.
„Þar getur fólk pantað jóla-
gjafirnar í rólegheitunum heima
og látið okkur um að pakka þeim
inn og merkja, og senda jafnvel
beint til viðtakenda,“ segir Katrín
um vefverslunina.
Náttföt vinsælasta jólagjöfin
Undanfarin ár hafa þýsk náttföt
frá Ringella, Féraud og Rösch
slegið í gegn hjá Hrafnhildi.
„Þýsku náttfötin eru vönduð og
á hagstæðu verði,“ segir Katrín um
náttfötin, sem flest eru úr nátt-
úruefnum, svo sem viskós, bómull
og módal. Náttkjólarnir kosta
frá 9.980 krónum og náttfötin frá
12.980 krónum.
„Margir af okkar viðskiptavin-
um kaupa sér ný náttföt á hverri
aðventu, sem gjöf frá mér til mín,
enda fátt betra en að skríða upp í
brakandi ferskt rúm í nýjum nátt-
fötum á aðfangadag,“ segir Katrín.
„Eins má gera ráð fyrir að
heimagallar verði vinsælir í ár og
hefur úrvalið sjaldan verið eins
gott og fyrir þessi jól. Heimgall-
arnir eru Covid-áhrif sem nú
koma fram í tískunni því öll okkar
helstu vörumerki eru með heima-
galla á boðstólum fyrir veturinn.
Á toppnum trónir fallegt, svart
merínó-ullarsett frá Stenströms.“
Fyrir betri helminginn
Katrín segir f lesta þekkja vel
hversu mikill höfuðverkur getur
verið að finna réttu jólagjöfina
fyrir makann.
„Öll viljum við standa okkur og
gera vel, og þetta getur verið örlít-
ið stress á aðventunni. Áhyggj-
urnar eru þó ástæðulausar því við
hjá Hrafnhildi erum þaulvanar í
að aðstoða fólk við að kaupa gjöf
fyrir betri helminginn.“
Algengt sé að hlý yfirhöfn
eða falleg silkiskyrta verði fyrir
valinu.
„Við höfum einnig tekið eftir
því að eiginmennirnir eru farnir
að koma til okkar að skoða Sten-
ströms-vörur fyrir konurnar sínar,
enda hafa þeir margir hverjir góða
reynslu af skyrtum og peysum frá
Stenströms. Ullar-ponsjó og silki-
skyrtur frá Stenströms hafa verið
vinsælar jólagjafir en það nýjasta í
vetur eru síð, stönguð dúnvesti og
dúnúlpur. Þeir sem treysta sér alls
ekki til að velja geta andað léttar,
því gjafakortin okkar eru einnig
vinsæl gjöf. Þau gilda allan ársins
hring og renna ekki út,“ segir
Katrín.
Gjafainnpökkun
Öllum gjöfum sem keyptar eru hjá
Hrafnhildi er pakkað inn í fallegar
gjafaöskjur.
„Nostrað er við hvern einasta
pakka, enda skiptir heildarupplif-
unin máli,“ segir Katrín. ■
Hjá Hrafnhildi er á Engjateig 5 í
Reykjavík. Sími 581 2141. Skoðið
vefverslunina hjahrafnhildi.is
Glæsilegir skór og töskur hitta alltaf í mark sem jólagjöf. Þýsku náttfötin frá Ringella, Féraud og Rösch hafa undanfarin ár verið afar vinsæl í jólapakkana. Þau eru vönduð og á hagstæðu verði.
Verslunin hjá Hrafnhildi er komin í jólabúning. Þar má finna endalaust úrval af fallegum jólagjöfum við allra hæfi. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Hlýjar yfirhafnir og ullarkápur eru kærkomin jólagjöf.
Geggjaðir upp-
reimaðir skór
Nero Giardini.
Skvísulegir hælaskór frá Nero
Giardini eru gjöf sem gleður.
Flestir þekkja vel
hversu mikill
höfuðverkur getur verið
að finna réttu jólagjöfina
fyrir makann. Áhyggj-
urnar eru þó ástæðu-
lausar því við hjá Hrafn-
hildi erum þaulvanar í
að aðstoða fólk við að
kaupa gjöf fyrir betri
helminginn.
Katrín Garðarsdóttir
Leðurhanskar eru glæsileg jóla-
gjöf sem kemur sér vel í vetur.
2 kynningarblað A L LT 6. nóvember 2021 LAUGARDAGUR