Fréttablaðið - 06.11.2021, Blaðsíða 36
Meðal-
aðdáandi
Árstíða er
enda 34 ára
karlmaður
sem býr í
Dortmund
eða San
Diego.
Ragnar Ólafsson
Jóhanna María
Einarsdóttir
johannamaria
@frettabladid.is
Hljómsveitin Árstíðir gefur
út tvær nýjar plötur, Pendúl
nú í nóvember og Blik næsta
vor. Tónlistin á plötunum
tveimur var öll samin á
Covid-tímum síðustu tvö
ár. Bandið skipa þeir Ragnar
Ólafsson, Daníel Auðunsson
og Gunnar Már Jakobsson.
Árstíðir var stofnuð árið 2008 í
fjármálakreppunni sem er flestum
enn fersk í minni. „Við erum í raun
fyrsta alvöru kreppubandið enda
var bandið stofnað í sama mánuði
og bankarnir hrundu. Kjarninn í
bandinu erum við þrír stofnendur
hljómsveitarinnar, ég, Daníel og
Gunnar. Á tímabili vorum við
flestir sex samtals í bandinu og
meðal annars sellóleikari og fiðlu-
leikari. Strengjahljóðfæri eru enn
stór hluti af okkar hljóm og eru
jafnan selló- og fiðluleikari með
okkur á sviði,“ segir Ragnar.
Ólíkar áttir sem sameinast í ein-
lægum rödduðum söng
Meðlimirnir þrír koma úr mis-
munandi áttum en eru allir
lagahöfundar í hljómsveitinni.
Upphaflega einblíndi hljómsveitin
á órafmagnaða tónlist. „Við spil-
uðum allir á gítar og lékum okkur
að því að radda söng. Núna spila
ég á píanó á tónleikum. Sjálfur
kem ég úr rokkáttinni úr böndum
á borð við Ask the Slave. Þá hef
ég komið fram með Sólstöfum og
Sign. Gunnar er með raddaðan
söng í blóðinu og tók þátt í upp-
setningu á söngleik í menntaskóla.
Hann spilar á baríton gítar, milli-
stig klassísks gítars og bassa, sem
gefur bandinu sérstakan hljóm.
Daníel er svo gítarleikari af lífi og
sál. Við tveir sameinumst í sam-
eiginlegri aðdáun á poppböndum
sem nýta raddaðan söng eins og
Simon & Garfunkel og Bítlunum.
Þetta er frjótt samstarf og hefur
líklega aldrei verið frjórra en núna
eftir þennan blessaða faraldur,“
segir Ragnar.
Hvað er það sem veitir ykkur
innblástur?
„Það er klárlega eyjan okkar sem
fyllir okkur innblæstri. Á fyrstu
plötunni okkar sáum við að öll
lögin okkar fjölluðu sjálfkrafa
um árstíðirnar á Íslandi, veðrið,
birtuna, myrkrið og fleira. Þannig
kom nafnið á sveitinni.“
Íslenski sálmurinn sem kom
hljómsveitinni á kortið
Árstíðir fékk gífurlega athygli
víða um heim þegar myndband af
þeim að syngja íslenskan sálm á
lestarstöð fór eins og eldur í sinu
Pendúll og Blik – tvær hliðar á sama tímabili
Frá vinstri:
Gunnar Már,
Daníel, Sakaris
Emil Joensen,
pródúsent
bandsins, og
Ragnar eru hér
staddir í hljóð-
veri á Granda.
Fréttablaðið/
Eyþór Árnason
Strákarnir í
stúdíóinu.
Fréttablaðið/
Eyþór
á YouTube. „Frá því 2011 höfum
við aðallega einbeitt okkur að
því að spila og túra erlendis og
er stærsti aðdáendahópurinn
okkar frá Þýskalandi. Árið 2013,
þegar við vorum á tónleikaferða-
lagi í Þýskalandi, enduðum við á
að syngja sálminn Heyr himna
smiður á lestarstöð í Wuppertal.
Myndbandið af þessum gjörningi
okkar fór út um allan heim og í
kjölfarið opnuðust margar dyr
fyrir okkur í tónlistarbransanum.“
Síðan þá hefur þetta aldagamla
íslenska lag ferðast víða og birst
í ýmsum sjónvarpsseríum og
fleiru. „Það er heiður fyrir okkur
að kynna íslenska menningu fyrir
heiminum á þennan hátt, þó svo
lagið hafi lítið með okkar tónlist
að gera, annað en að vera raddaður
flutningur.“
Ragnar viðurkennir að þeir séu
allir komnir með smá leiða á sálm-
inum enda hefur himnasmiðurinn
fylgt þeim lengi. „Það er þó þannig
að ef við erum í fallegum kirkjum
með góðan hljómburð, þá skiptir
ekki lengur máli hversu oft maður
er búinn að syngja Heyr himna
smiður, hann á alltaf við.“
Opna hjörtun upp á gátt
„Raddaður söngurinn sameinar
okkur þrjá og við hikum aldrei við
að sýna brothættu hliðina á okkur
sjálfum. Líklega er það ástæða þess
að annað hvort elskar fólk okkur
eða þolir okkur ekki. Það er óvana-
legt í popptónlistarheiminum að
sjá þrjá stráka syngja svona vært og
opna hjörtu sín upp á gátt.
Við höfum aldrei reynt að vera
kúl á sviðinu. Tilfinningin ræður
í tónlistinni og tengir okkur
við aðdáendur okkar. Við erum
engir kórdrengir, eiginlega langt
frá því, en við getum vel sungið
eins og kórdrengir. Maður myndi
halda að hljómsveit þar sem þrír
drengir opna hjarta sitt í rödd-
uðum söng, myndi helst höfða til
kvenna, en tölfræðin segir okkur
að fleiri karlar hlusta á okkur en
konur. Meðalaðdáandi Árstíða
er enda 34 ára karlmaður sem
býr í Dortmund eða San Diego,“
segir Ragnar og hlær. Hann bætir
þó við að aðdáendahópurinn sé
mjög fjölbreyttur og í Rússlandi sé
hópurinn almennt yngri.
Vetur og sumar fæddust í
faraldri
Hljómsveitin sat ekki auðum
höndum í faraldrinum heldur
samdi um 30 lög sem hún gefur út
á tveimur plötum, Pendúl og Bliki.
„Undanfarin ár höfum við verið
duglegir að gefa út plötur og koma
fram erlendis. Þegar faraldurinn
skall á stöðvaðist allt og okkar
helsta tekjulind hvarf. Á vissan
hátt vorum við að semja okkur
frá ástandinu. Við skilgreindum
okkur sem fjölskyldu, enda unnið
saman í rúmlega þrettán ár og
orðnir eins og hálfgerðir bræður.
Hljómsveitin og fjölskyldur okkar
var faraldurskúlan okkar.
Við höfum setið á tónlistinni
eins og ormar á gulli og núna
þegar lítur út fyrir það ætli að létta
á ástandinu, ætlum við að gefa
efnið út og kveðja faraldurinn
með stæl. Efnið sem við sömdum
er af ýmsum toga, sumt er á
íslensku, annað á ensku. Þetta
skiptist líka þannig að íslensku
lögin eru þyngri og dramatískari
og ensku lögin bjartari og léttari.
Því lá beint við að skipta efninu
upp í tvær plötur: Pendúll inni-
heldur íslensk lög sem passa við
vetrarmyrkrið og kemur út í nóv-
ember. Blik kemur svo út í maí sem
á vel við. Þetta eru eins og bróðir
og systir.“
Skynjun tímans og brenglun var
þeim sérlega hugleikin
Næstu mánuðir fara í að klára að
vinna Blik og halda áfram að þróa
konseptið á bak við plöturnar. „Við
byrjuðum á því að þróa konsept-
veröldina með aðdáendum okkar
í samstarfi við hinn kynngi-
magnaða fjöllistamann Pieter
Hoekstra. Heildarhugmyndin er
um það hvernig fólk skynjar tíma.
Þegar við vorum að semja í faraldr-
inum voru allir dagar svo lengi að
líða. Samt leið tímabilið ótrúlega
hratt. Upplifun okkar á tímanum
brenglaðist og það fannst okkur
áhugavert að vinna með. Við
báðum aðdáendur okkar að deila
með okkur tímahugleiðingum
sínum. Þá höfum við soðið okkar
eigin pælingar og aðdáenda okkar
niður í veigamikið konsept sem
birtist í umslagaverkunum sem
fylgja plötunum tveimur. Pendúll
vísar svo auðvitað í tíma, sem og
nafnið Blik, samanber augnablik.
Svo hafa báðir titlarnir auðvitað
mun fleiri skírskotanir.“
Markmið söfnunarinnar náðist á
einungis fjórum dögum
„Okkar tekjur koma mestmegnis
úr því að túra en það var auðvitað
ekki möguleiki í faraldrinum. Við
stofnuðum því til hópsöfnunar
fyrir mánuði síðan til að koma
plötunum tveimur út. Það kom
okkur skemmtilega á óvart að ná
markmiðinu á fjórum dögum.
Í dag erum við búnir að skjóta
langt yfir markið sem við settum
okkur og höfum því sett okkur
aukamarkmið. Að taka upp enn
aðra plötu með rödduðum lögum
á borð við Heyr himna smið og
fleiru. Okkur hefur lengi langað til
að gera þetta og aðdáendur okkar
hafa beðið um þetta lengi. Núna
höfum við tækifæri til þess.
Svona hópsöfnun er mjög góð
leið til að fjármagna plötuútgáfu,
sérstaklega í kjölfar samkomu-
takmarkana. Tónlistarmenn
eru orðnir sligaðir eftir farald-
ursástandið, enda er erfitt fyrir
móralinn og egóið að fá ekki að
spila fyrir lifandi áhorfendur. Með
þessu fáum við smá búst og vitum
að við eigum enn þá erindi við
hlustendur okkar.
Svo er planið að fara í tveggja
vikna tónleikaferðalag um Evrópu
í desember að fylgja Pendúl eftir.
Þetta verður okkar fyrsta tónleika-
ferðalag síðan 2019, en vissulega
spiluðum við á nokkrum erlendum
festivölum í sumar.“ Hópsöfnun-
inni lauk 1. nóvember en það
verður enn hægt að kaupa plöt-
urnar sjálfar í forsölu á vefsíðunni.
Svo spilum við í Fríkirkjunni 30.
desember eins og hefð er fyrir hjá
okkur,“ segir Ragnar að lokum. n
100% náttúruleg
hvannarrót
60 HYLKI FÆÐUBÓTAREFNI
hvannarrót
Leyndarmál
hvannarrótar
Loft í maga?
Glímir þú við
meltingartruflanir?
Næturbrölt
Eru tíð þvaglát
að trufla þig?
Fæst í næsta apóteki, heilsuvöru-
verslun, Hagkaupum og Nettó.
4 kynningarblað A L LT 6. nóvember 2021 LAUGARDAGUR