Fréttablaðið - 06.11.2021, Side 37
Við leitum að öflugum og framsýnum stjórnanda til að byggja
upp nýtt stefnumarkandi svið sem hefur það hlutverk að
stýra og þróa eignasafn FSRE með hliðsjón af þörfum
ríkisins, bæta gæði aðstöðu og lækka kostnað við rekstur
eignasafnsins.
Meðal lykiláherslna á næstu misserum verður innleiðing
langtímaáætlana um nýtingu og þróun eignasafnsins sem
og þróun og innleiðing viðmiða í ólíkum eignaflokkum á
grundvelli verndargildis eigna og þróunar samfélagsstærða.
FRAMKVÆMDASTJÓRI
LEIGUÞJÓNUSTU
Helstu verkefni og ábyrgð
Við leitum að öflugum og lausnamiðuðum stjórnanda til
að byggja upp nýtt svið Leiguþjónustu sem hefur það
hlutverk að leigja út, viðhalda og reka viðeigandi aðstöðu
fyrir ríkisaðila með hagkvæmni, sjálfbærni og ánægju og
þarfir notenda að leiðarljósi.
Meðal lykiláherslna á næstu misserum verða þróun
þjónustuleiða og lausna sem styðja við aukna skilvirkni
í opinberri þjónustu um leið og leitast verður við að
hámarka nýtingu eigna.
Ábyrgð á og eftirfylgni með þjónustuupplifun viðskiptavina
Samskipti við ráðuneyti, stofnanir og aðra hagsmunaaðila
í tengslum við leigusamninga og þarfir þeirra fyrir
aðstöðu á hverjum tíma
Ábyrgð á gerð og eftirfylgni áætlana vegna viðhalds
og rekstrar aðstöðu
Þróun og veiting notendaráðgjafar um nýtingu og
bætta aðstöðu
Þróun aðstöðutengdrar þjónustu í húsnæði ríkisaðila
s.s. vegna búnaðar, stoðþjónustu og stafrænna innviða
Stjórnun og ábyrgð á daglegum rekstri, mannauðsmálum
og nýsköpun sviðsins og stafrænni þróun þess
Áætlanagerð, stefnumótun og þátttaka
í framkvæmdastjórn FSRE
Stefnumörkun, fjármögnun og þróun eignasafns
FSRE í samvinnu við fjármála- og efnahagsráðuneytið
Ábyrgð á stýringu eignasafns, frumgreining og mat
á fjárfestingakostum, hagkvæmniútreikningar og
ákvörðun leigugjalds
Ábyrgð og umsjón með kaupum og sölu fasteigna
FSRE og öflun ytri leigusamninga
Þróun og innleiðing framkvæmda- og fjárfestingaáætlunar
ríkisins í samvinnu við fjármála- og efnahagsráðuneytið
Samskipti við ráðuneyti, stofnanir og aðra hagsmunaaðila
vegna stefnumörkunar
Stjórnun og ábyrgð á daglegum rekstri, mannauðsmálum
og nýsköpun sviðsins sem og stafrænni þróun þess
Áætlanagerð, stefnumótun og þátttaka
í framkvæmdastjórn FSRE
FRAMKVÆMDASTJÓRI
EIGNA- OG AÐSTÖÐUSTÝRINGAR
Helstu verkefni og ábyrgð
www.fsre.is
Viltu móta framtíðina
með okkur?
FSRE
UMSÓKNARFRESTUR ER TIL OG MEÐ 22. NÓVEMBER
Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf.
Nánari upplýsingar veita Thelma Kristín Kvaran, thelma@intellecta.is, og Helga Birna Jónsdóttir, helga@intellecta.is, í síma 511 1225
FRAMKVÆMDASÝSLAN
- RÍKISEIGNIR
Framkvæmdasýslan og
Ríkiseignir sameinuðu nýverið
krafta sína undir heitinu
Framkvæmdasýslan-Ríkiseignir
(FSRE). Sameinuð stofnun
þróar og rekur aðstöðu á
vegum ráðuneyta, stofnana
og annarra ríkisaðila og gegnir
með því mikilvægu hlutverki
í þjónustu við borga rana.
Eignasafn FSRE samanstendur
af 530 þúsund m² húsnæðis
í 380 eignum auk um 300 jarða
og landsvæða.
Um þessar mundir vinnum við að
um 130 þróunarverkefnum sem
snerta flest svið man nlífsins;
s.s. heilbrigðis- og velferðarmál,
men ningu, menntun, löggæslu,
dómskerfi, náttúru og friðlýst
svæði.
Framundan eru spennandi tímar
í þróun sameinaðrar stofnunar.
Við leitum því að jákvæðu
og drífandi fólki sem hefur
brennandi áhuga á að taka
þátt í vegferðinni með okkur.
Mest lesna atvinnublað Íslands*
Atvinnublaðið
Sölufulltrúar: Hrannar Helgason, hrannar@frettabladid.is 550 5625, Arna Rut Kristinsdóttir, arnarut@frettabladid.is 550 5621
*Neyslukönnun Gallups 2018, allt land, 18-80 ára