Fréttablaðið - 06.11.2021, Page 38
Verkefnastjóri
Marine Stewardship Council (MSC) leitar að metnaðarfullum einstaklingi í stöðu verkefnastjóra í Norður-Atlants-
hafsteymi félagsins með aðsetur á Íslandi. Vinna viðkomandi mun aðallega vera fyrir aðila á Íslandi, Færeyjum,
Grænlandi en einnig að hluta fyrir norska aðila. Að auki felur starfið í sér viðamikil samskipti við aðrar skrifstofur
MSC víða um heim. Verkefnin eru m.a. að vinna að framgangi MSC í samstarfi við hagsmunaaðila ásamt því að
byggja upp og viðhalda þverfaglegum samböndum.
Ítarlegri upplýsingar um starfið og MSC má finna á www.intellecta.is.
Nánari upplýsingar veita Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) og
Helga Birna Jónsdóttir (helga@intellecta.is) í síma 511 1225.
Umsóknarfrestur er til og með 17. nóvember 2021. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja
starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir hæfni viðkomandi sem nýtist í starfi. Starfsferilskrá og
kynningarbréfi þarf að skila inn á ensku. Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað að
ráðningu lokinni. Við hvetjum alla áhugasama aðila, óháð kyni, að sækja um.
• Háskólagráða í sjávarútvegsfræði, umhverfis- og auðlinda-
fræði eða sambærilegt nám tengt náttúruauðlindum,
sjálfbærni eða umhverfisstjórnun. Meistaragráða er kostur
• Framúrskarandi samskiptahæfni, metnaður og drifkraftur
• Skipulagshæfni og geta til að vinna bæði sjálfstætt og í teymi
• Þekking á sjálfbærni og umhverfisvottunum er kostur
• Reynsla af sambærilegu starfi er kostur
• Reynsla af verkefnastjórnun og áætlanagerð
• Reynsla af kynningum og framsetningu efnis
• Reynsla af því að starfa með hagsmunaaðilum tengdum
sjávarútvegi
• Framúrskarandi hæfni í íslensku og ensku í töluðu og rituðu
máli. Kunnátta í norsku eða öðru Norðurlandatungumáli er
skilyrði
• Vinna að framgangi MSC á Norður-Atlantshafssvæðinu
• Kynna virði MSC vottunar fyrir nýjum hagsmunaaðilum
ásamt því að aðstoða og styðja við núverandi aðila
• Skipuleggja fundi MSC ásamt öðrum viðburðum á
vegum stofnunarinnar
• Þróa og útbúa kynningarefni MSC fyrir hagsmunaaðila
á Norður-Atlantshafssvæðinu
• Hafa umsjón með rafrænum fréttabréfum
• Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur:Helstu verkefni og ábyrgð:
Hefur þú ástríðu fyrir umhverfismálum og sjálfbærni hafsins og áhuga á að vinna í
þverfaglegu og alþjóðlegu sjávarútvegsteymi MSC?
Intellecta ehf. Síðumúla 5 108 Reykjavík 511 1225 intellecta.is
Intellecta er sjálfstætt þekkingarfyrirtæki stofnað árið 2000. Við vinnum með stjórnendum
við að auka árangur, bæta rekstur og efla stjórnun. Ráðgjafar Intellecta hafa sterkan faglegan
bakgrunn og víðtæka alþjóðlega reynslu. Þennan grunn notum við í samvinnu við viðskiptavini
til að móta hugmyndir sem skipta máli og í innleiðingu lausna sem skila árangri.
Árangur fyrirtækja ræðst af þekkingu,
getu og reynslu starfsmanna.
Hver einstök ráðning er mikilvæg
fjárfesting og er hagur bæði fyrirtækis
og viðkomandi einstaklings að vel
takist til.
Hafðu samband við okkur og sjáðu
hvað við getum gert fyrir þig.
RÁÐNINGAR