Fréttablaðið - 06.11.2021, Page 39
RÁÐGJÖF RÁÐNINGAR RANNSÓKNIR
Að gera betur í dag en í gær
er drifkraftur nýrra hugsana
og betri árangurs.
Starfsmenn eru lykill
að árangri allra fyrirtækja.
Rannsóknir auka þekkingu
og gera ákvarðanir markvissari
Intellecta ehf. Síðumúla 5 108 Reykjavík 511 1225 intellecta.is
Intellecta er sjálfstætt þekkingarfyrirtæki stofnað árið 2000. Við vinnum með stjórnendum
við að auka árangur, bæta rekstur og efla stjórnun. Ráðgjafar Intellecta hafa sterkan faglegan
bakgrunn og víðtæka alþjóðlega reynslu. Þennan grunn notum við í samvinnu við viðskiptavini
til að móta hugmyndir sem skipta máli og í innleiðingu lausna sem skila árangri.
Mannauðsstjóri
Hafnarfjarðarbær leitar að metnaðarfullum og kraftmiklum einstaklingi í starf mannauðsstjóra.
Mannauðsstjóri leiðir daglegan rekstur ásamt uppbyggingu og þróun mannauðsmála í samstarfi við
stjórnendur. Mannauðsstjóri stýrir teymi mannauðsráðgjafa og hefur yfirumsjón með mannauðsstefnu
sveitarfélagsins. Starfið tilheyrir stjórnsýslusviði og er næsti yfirmaður sviðsstjóri stjórnsýslu. Um fullt
starf er að ræða.
Nánari upplýsingar veita Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) og
Helga Birna Jónsdóttir (helga@intellecta.is) í síma 511 1225.
Umsóknarfrestur er til og með 22. nóvember 2021. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja
starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist
í starfi. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við BHM. Vakin er athygli á stefnu
Hafnarfjarðarbæjar um að jafna hlutfall kynja í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika
samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi, meistarapróf eða
sambærilegt nám skilyrði
• Starfsreynsla á sviði stjórnunar og mannauðsmála
• Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu og á sviði
vinnuréttar er æskileg
• Þekking og reynsla af úrvinnslu tölfræðilegra gagna
um mannauðsmál er kostur
• Leiðtogahæfni og reynsla af breytingastjórnun
• Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
• Frumkvæði, sjálfstæði og skipulagshæfni
• Mjög góð íslenskukunnátta í ræðu og riti og góð
enskukunnátta
• Þróun og eftirfylgni mannauðsstefnu og þeim hluta
mannréttinda- og jafnréttisstefnu sem snýr að starfsfólki
• Ráðgjöf og stuðningur við stjórnendur og starfsfólk í
mannauðsmálum
• Stýring verkefna innan mannauðsteymis
• Ábyrgð á mannauðsferlum, þróun þeirra, samræmingu,
innleiðingu, þjálfun og umbótum
• Fræðsla og starfsþróun fyrir stjórnendur og starfsfólk
• Ýmiskonar upplýsingamiðlun til starfsfólks
• Framkvæmd og eftirfylgni vinnustaðagreininga
• Umsjón og ábyrgð á jafnlaunavottun og jafnlaunastaðli
Menntunar- og hæfniskröfur:Helstu verkefni og ábyrgð:
Hafnarfjarðarbær er þriðji stærsti bær landsins. Framsækið sveitarfélag sem byggir á fjölskylduvænu umhverfi,
fyrirmyndarþjónustu og öflugu atvinnulífi. Hjá Hafnarfjarðarbæ starfa liðlega 2.000 manns. Áhersla er lögð á að hjá
bænum starfi fólk sem getur veitt bestu þjónustu sem völ er á af þekkingu, ábyrgð og metnaði. Nánari upplýsingar um
Hafnarfjarðarbæ má finna á www.hafnarfjordur.is.