Fréttablaðið - 06.11.2021, Síða 41
hagvangur.is
Robert Bosch Power Tools leitar að starfsmanni í nýtt starf viðskiptastjóra
á Íslandi. Viðskiptastjóri ber ábyrgð á sölu á rafmagnsverkfærum og
tengdum vörum til fagmanna og einstaklinga í framkvæmdum.
Viðskiptastjóri mun starfa sem sérfræðingur í sölu og er í beinum
samskiptum við fagaðila í byggingariðnaðinum og endursöluaðila Bosch
á Íslandi. Helstu verkefni eru heimsóknir á byggingarsvæði, verkstæði
og í verslanir þar sem tengiliðir eru innkaupafólk, verkstjórar, fagmenn,
verkefnastjórar og verslunarstjórar.
Leitað er að árangursdrifnum starfsmanni sem er tilbúinn til að bæta
stöðugt söluhæfileika og þekkingu sína á vörum Bosch. Viðskiptastjóri
mun fá til umráða bíl, síma og tölvu. Í boði eru föst laun auk
árangurstengingar.
Starfinu fylgja ferðalög, fyrst um sinn um Ísland en síðar bætast við
söluferðir til Færeyja og Danmerkur. Starfsmaður þarf því að vera
sveigjanlegur varðandi vinnustundir, þar sem gistinætur erlendis eru
um 20 á ári.
Helstu verkefni:
• Að drífa áfram sölu með öflun nýrra viðskiptavina og að viðhalda
núverandi viðskiptasamböndum
• Tilboðsgerð
• Undirbúningur og framkvæmd vörusýninga og annarra viðburða
• Að aðstoða samstarfsaðila í smásölu við vöruþjálfun, vörukynningar
og aðstoð við viðburði
• Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur:
• Iðnmenntun er mikill kostur eða reynsla úr byggingariðnaði
• Góð þekking á rafmagnsverkfærum og tengdum vörum
• Reynsla af sölustörfum
• Sjálfstæð vinnubrögð, skipulag og frumkvæði
• Gott vald á íslensku og ensku
• Dönskukunnátta er mikill kostur
• Góð almenn tölvukunnátta
• Kunnátta í Microsoft Office, einkum Excel og Power Point
• Hæfni í mannlegum samskiptum
Umsóknarfrestur er til og með 21. nóvember nk.
Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is.
Nánari upplýsingar veita:
Yrsa Guðrún Þorvaldsdóttir,
yrsa@hagvangur.is
Gyða Kristjánsdóttir,
gyda@hagvangur.is
Árið 1886 stofnaði Robert Bosch véla- og
rafmagnsverkstæði í Stuttgart. Það var upphafið
að alþjóðlega fyrirtækinu Bosch. Frá upphafi
hefur nýsköpunarkraftur og samfélagsleg ábyrgð
einkennt fyrirtækið. Í dag rekur Bosch Group
460 fyrirtæki um allan heim í 60 löndum og
landsvæðum og er í samstarfi við þjónustuaðila á
um 150 landsvæðum. Dönsk aðalskrifstofa Robert
Bosch A/S er í Ballerup en í dag vinna um 700
starfsmenn hjá Bosch á fjórum viðskiptasviðum:
Hreyfilausnir, iðnaðartækni, neysluvörur og orku-
og byggingartækni.
Nánari upplýsingar er að finna á bosch-pt.com
Viðskiptastjóri
ATVINNUBLAÐIÐ 5LAUGARDAGUR 6. nóvember 2021