Fréttablaðið - 06.11.2021, Qupperneq 43
KERECIS ÍSAFIRÐI
SUNDSTRÆTI 38
400 ÍSAFJÖRÐUR
+354 419 8000
KERECIS REYKJAVÍK
LAUGAVEGUR 77
101 REYKJAVÍK
+354 419 8000
HEFUR
ÞÚ ROÐ
VIÐ OKKUR?
Sérfræðingur í gæðadeild
Starfsmaðurinn mun vinna náið með gæðastjóra við að
stýra og þróa gæðakerfi Kerecis. Starfsmaðurinn mun
vinna að innri úttektum, skráningum, skjalastjórnun og
vinnslu úrbóta og fyrirbyggjandi aðgerða, ásamt öðrum
verkefnum.
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Mjög góð enskukunnátta
• Nákvæmni og gott auga fyrir smáatriðum
• Skipulagshæfileikar og drifkraftur
• Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
• Staðsetning: Ísafjörður
Upplýsingar veitir Heiða Jónsdóttir,
hjo@kerecis.com
Starfsmaður í framleiðsludeild
Starfsmaðurinn mun sjá um upplýsingagjöf, símsvörun
og móttöku, yfirferð skjala, skjalagerð, yfirferð
sölupantana og fylgiskjala auk utanumhald ýmissa
skráninga í framleiðslu. Starfsmaðurinn mun einning
taka þátt í ýmsum verkefnum í framleiðsludeild og
öðrum deildum Kerecis.
• Góð almenn tölvukunnátta
• Góð enskukunnátta
• Gott auga fyrir smáatriðum
• Áhugi og hæfni í textagerð
• Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
• Staðsetning: Ísafjörður
Upplýsingar veitir Guðbjörg Þrastardóttir,
gth@kerecis.com
Sérfræðingur í skráningardeild
Starfsmaðurinn mun koma að uppfærslum á tækni-
skjölum og skráningu upplýsinga í alþjóðlega gagna-
grunna er varða vöruöryggi, skráningum á ný
markaðssvæði, ásamt ýmiskonar öðrum verkefnum.
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Nákvæmni og gott auga fyrir smáatriðum
• Mjög góð enskukunnátta
• Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
• Staðsetning: Reykjavík
Æskilegt:
• Reynsla af skráningarvinnu á lyfjum
eða lækningartækjum
Upplýsingar veitir Hilmar Hilmarsson,
hh@kerecis.com
Verkefnastjóri í vöruþróun
Starfsmaðurinn mun vinna að vöruþróunarverkefnum
frá hugmynd að framleiðslu. Starfsmaður mun bera
ábyrgð á kostnaðargreiningu, uppsetningu verkefnis
og þeim prófunum sem þarf til að vara komist á
markað.
• Háskólamenntun í verk- eða tæknifræði,
raunvísindum eða heilbrigðisvísindum
• Góð enskukunnátta
• Áhugi á tækniþróun
• Skipulag, frumkvæði og drifkraftur
• Staðsetning: Ísafjörður
Æskilegt:
• Reynsla og þekking á þróun lækningartækja
Upplýsingar veitir Dóra Hlín Gísladóttir;
dkh@kerecis.com
Sérfræðingur í rannsóknum og þróun
Starfsmaðurinn mun hafa yfirumsjón með prófunum
og greiningum tengdum efnafræði og lífsamrýmanleika.
Starfsmaðurinn mun vinna náið með öðrum deildum,
ráðgjöfum og rannsóknarstofum víðsvegar um heiminn,
vinna að áhættumati, prófunum og tilraunum með vörur
Kerecis. Starfsmaðurinn mun vinna að vöruþróunar-
verkefnum frá hugmynd að framleiðslu.
• Háskólamenntun í efna- eða lífefnafræði
• Mjög góð enskukunnátta
• Áhugi á alþjóðlegri hópavinnu
• Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
• Staðsetning: Ísafjörður eða Reykjavík
Upplýsingar veitir Dóra Hlín Gísladóttir;
dkh@kerecis.com
Umsóknir sendist til hr@kerecis.com
fyrir 22. nóvember n.k.
Kerecis er það fyrirtæki sem vex hraðast í heiminum
á sviði meðferðar á vefjaskaða og byggir það tækni
sína á hagnýtingu á roði og fitusýrum. Vörur Kerecis
eru notaðar til að meðhöndla margskonar vefjaskaða,
s.s. húðvandamál, skurðsár, þrálát sár, brunasár,
munnholssár, heilabastsrof og til enduruppbyggingar
brjósta og kviðveggs.
Kerecis hefur vakið athygli á heimsvísu og á félagið í
samstarfi um þróun og notkun á tækni þess víða um
heim m.a. við bandarískar varnarmálastofnanir. Yfir
200 starfsmenn starfa hjá fyrirtækinu á Ísafirði, í
Reykjavík, í Sviss, í Þýskalandi og í Bandaríkjunum.
KERECIS USA
2200 CLARENDON BLVD
SUITE 1210
ARLINGTON
VIRGINIA 22201
(703) 287 8752
KERECIS SWISS
WEBEREISTRASSE 61
8134 ADLISWIL
+354 499 1566
KERECIS.COM