Fréttablaðið - 06.11.2021, Síða 45
Creditinfo – Höfðabakka 9 – 110 Reykjavík – s: 550 9600 – www.creditinfo.is
VÖRUSTJÓRI
Creditinfo leitar að drífandi og framsýnum vöru-
stjóra í teymi vöru- og verkefnastýringar félagsins.
Við sérhæfum okkur í sjálfvirkum ákvarðanatökum,
gagnaöflun og greiningum sem skapa virði fyrir yfir
1600 íslensk fyrirtæki. Við höfum brennandi áhuga
á að vera með vöruþróun á heimsmælikvarða og
hikum ekki við að prófa nýjar aðferðir eða hugmyndir.
Vörustjóri mun vinna með úrvalsliði sérfræðinga
og hafa áhrif á nánast allar hliðar fyrirtækisins.
Creditinfo er ört vaxandi, alþjóðlegt fyrirtæki á sviði miðlunar fjárhags- og viðskiptaupplýsinga.
Tilgangur Creditinfo er að auka virði upplýsinga í þágu einstaklinga, fyrirtækja og opinberra aðila
og stuðla þannig að réttri ákvarðanatöku og trausti í viðskiptum. Á Íslandi vinnum við í samhentu
teymi í verkefnamiðaðari vinnuaðstöðu. Starfsemin er ISO 27001 vottuð, allar okkar greiningar eru
unnar í vöruhúsi gagna og markmið okkar er bættur árangur á hverjum degi. Hjá félaginu starfa
um 40 manns hérlendis og rúmlega 400 manns úti um allan heim.
Nánari upplýsingar veitir Lára Hannesdóttir, forstöðumaður
vöru- og verkefnastýringar, lara@creditinfo.is. Umsóknir
ásamt ferilskrá sendist á netfangið atvinna@creditinfo.is
merkt „Vörustjóri“.
Umsóknarfrestur er til og með 15. nóvember 2021.
ÁBYRGÐ Í STARFI
Ábyrgð á vöruþróun Creditinfo, þ.m.t. framtíðarsýn,
forgangsröðun og kröfugerð.
Samskipti við viðskiptavini, þarfagreining og aðstoð
við innleiðingar.
Greiningar á notkun og markaðstækifærum.
Skilgreining og eftirfylgni hugbúnaðarverkefna sem
styðja við stefnu varanna.
HÆFNISKRÖFUR
UM OKKUR
Háskólapróf sem nýtist í starfi, t.d. verkfræði eða
tölvunarfræði.
Greiningarhæfni og góð færni í framsetningu gagna.
Góðir samskiptahæfileikar og frumkvæði.
Þekking á fjármála- eða tryggingastarfsemi er kostur.
ÁBYRGÐ Í STARFI
Ráðgjöf, þjónusta og aðstoð til viðskiptavina.
Afgreiðsla fyrirspurna og athugasemda.
Önnur tilfallandi verkefni.
HÆFNISKRÖFUR
Háskólamenntun eða önnur sambærileg menntun
sem nýtist í starfi.
Framúrskarandi samskiptahæfileikar og þjónustulund.
Sterkur liðsmaður í teymi.
Sjálfstæð vinnubrögð og lausnamiðuð nálgun við
úrlausn verkefna.
Vandvirkni og nákvæmni.
Mjög góð skrifleg og munnleg íslensku- og
enskukunnátta.
Góð tölvukunnátta.
Reynsla af sambærilegu starfi æskileg.
Áhugi og/eða reynsla af persónuvernd æskileg.
ÞJÓNUSTUFULLTRÚI
Creditinfo óskar eftir að ráða öflugan einstakling
í hóp þjónustu- og lögfræðiteymis félagsins. Við
leggjum mikið upp úr framúrskarandi þjónustu en
starfið er fyrst og fremst fólgið í vandaðri ráðgjöf,
þjónustu og aðstoð til viðskiptavina.
Nánari upplýsingar veitir Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir,
framkvæmdastjóri, hrefna@creditinfo.is. Umsóknir ásamt
ferilskrá sendist á netfangið atvinna@creditinfo.is merkt
„Þjónustufulltrúi“.
Umsóknarfrestur er til og með 15. nóvember 2021.