Fréttablaðið - 06.11.2021, Blaðsíða 47
Sérfræðingur
í launa- og mannauðsmálum
Embætti ríkislögreglustjóra er lifandi vinnustaður þar sem starfa tæplega 200 starfsmenn sem sinna fjölbreyttum verkefnum. Við leggjum áherslu á opin og jákvæð samskipti,
markvissa starfsþróun og vinnum í samræmi við stefnu embættisins um samræmingu fjölskyldulífs og vinnu. Embætti ríkislögreglustjóra hefur hlotið jafnlaunavottun.
Umsóknarfestur er til 19. nóvember nk.
Umsóknum skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist til að sinna starfinu
í samræmi við þær hæfniskröfur sem fram koma í auglýsingu. Umsóknir skulu berast í gegnum Starfatorg (www.starfatorg.is) undir starfsauglýsingu embættisins
(Sérfræðingur í launa- og mannauðsmálum). Öllum umsóknum verður svarað að loknum ráðningum. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Í ljósi ríkjandi kynjahlutfalls innan lögreglu og jafnréttisáætlunar lögreglunnar, eru konur sérstaklega hvattar til að sækja um.
Embætti ríkislögreglustjóra er ríkisstofnun sem heyrir undir dómsmálaráðuneytið. Ríkislögreglustjóri hefur með höndum samhæfingu og samræmingu í störfum lögreglu og annast
ákveðna miðlæga þjónustu við lögregluembættin. Ríkislögreglustjóri hefur einnig með höndum sérstök verkefni samkvæmt lögreglulögum nr. 90/1996 og í samræmi við nánari
ákvörðun ráðherra.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðuneytis og hlutaðeigandi stéttarfélags. Vakin er athygli á því að samkvæmt 28. gr. a. lögreglulaga nr. 90/1996 má engan skipa, setja
eða ráða til starfa hjá lögreglu sem hefur hlotið fangelsisdóm fyrir refsiverðan verknað sem framinn var eftir að hann varð fullra 18 ára eða sýnt af sér háttsemi sem getur rýrt það
traust sem starfsmenn lögreglu verða almennt að njóta. Til þess að staðreyna þetta er lögreglu heimilt að afla upplýsinga úr sakaskrá og málaskrám lögreglu.
Nánari upplýsingar veitir
Ágústa H. Gústafsdóttir, mannauðsstjóri, agustah@logreglan.is - sími 444 2500.
Helstu verkefni og ábyrgð
Launavinnsla
• Umsjón með launaafgreiðslu í fjárhags- og mannauðskerfi ríkisins (Orri)
• Útreikningur á kjörum og réttindum starfsfólks skv. kjarasamningum
• Umsjón og eftirlit með skráningum í vaktaáætlunar- og viðverukerfi (Vinnustund)
• Túlkun kjara- og stofnanasamninga
• Tekur þátt í viðhaldi og þróun jafnlaunakerfis
Þróun mannauðs
• Tekur þátt í mótun mannauðsmála
• Tekur þátt í ráðningum, móttöku nýs starfsfólks og starfslokaferli
• Tekur þátt í kortlagningu þekkingar og mótun áherslna í starfsþróunarmálum
• Tekur þátt í gerð starfslýsinga og starfsþróunaráætlana
• Þátttakandi í þróun starfsumhverfis í samvinnu við stjórnendur og starfsfólk
Hæfniskröfur
• Menntun sem nýtist í starfi
• Reynsla af launavinnslu í fjárhags- og mannauðskerfi ríkisins (Orri)
• Reynsla af skráningu í Vinnustund
• Góð kunnátta og færni í Excel
• Reynsla á sviði mannauðsmála
• Jákvæðni, þjónustulund og seigla
• Mjög góð samskipta- og samstarfshæfni
• Nákvæmni og góð skipulagshæfni
• Hæfni til að vinna sjálfstætt sem og hluti af teymi
• Talnalæsi og reynsla af tölfræðilegri úrvinnslu
Embætti ríkislögreglustjóra leitar að öflugum einstaklingi
með reynslu af launaafgreiðslu og áhuga á að taka þátt
í mótun mannauðsmála í síkviku umhverfi.
ERT ÞÚ HRESS
BIFVÉLAVIRKI,
VÉLVIRKI EÐA
BIFREIÐASMIÐUR?
þá erum við að leita að
einstaklingi eins og þér
fyrir skoðunarstöð okkar
á höfuðborgarsvæðinu
Hátúni / Holtagörðum / Reykjavíkurvegi / Akureyri / sími: 414 9900
Nánari upplýsingar veitir
Birgir Hákonarson í síma 665-9900
Umsókn með upplýsingum um menntun og
reynslu skal skila á birgir@tekkland.is
Umsóknarfrestur til 20. nóvember 2021
Sveinsbréf í bifvélavirkjun,
vélvikirkjun eða bifreiðasmíði
Rík þjónustulund
Finnst gaman í vinnunni
HÆFNISKRÖFUR
Spennandi starf fyrir
markaðssnilling
Markaðs- og samskiptastjóri Menntavísindasviðs Háskóla Íslands
Laust er til umsóknar fullt starf markaðs- og samskiptastjóra á Menntavísindasviði Háskóla Íslands.
Starfið felur einkum í sér kynningu og markaðssetningu á námi á Menntavísindasviði, vísindamiðlun
og textagerð.
Starfssvið
· Skipulagning markaðsherferða
· Ábyrgð á námskynningum
· Fréttaskrif, textagerð og uppfærsla á heimasíðu
sviðsins
· Umsjón með gerð kynningarefnis, m.a.
myndbanda og ljósmynda
· Samskipti við fjölmiðla og aðra hagsmunaaðila
· Umsjón samfélagsmiðla
Menntunar- og hæfniskröfur
· Háskólapróf sem nýtist í starfi
· Haldbær reynsla og þekking á markaðs-
og samskiptamálum
· Mjög góð íslensku- og enskukunnátta, bæði
í töluðu og rituðu máli
· Reynsla af textagerð, fréttaskrifum og
fjölbreyttri miðlun
· Gott vald á upplýsingatækni og hæfni til
að tileinka sér nýjungar á því sviði
· Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
· Færni í samskiptum, sveigjanleiki og
rík þjónustulund Umsóknarfrestur er til og með 10. janúar 2022.
Sótt er um á vef Háskóla Íslands eða á starfatorg.is.
Nánari upplýsingar veitir: Lára Rún Sigurvinsdóttir,
mannauðsstjóri, lararun@hi.is.
Háskóli Íslands, Sæmundargötu 2, 102 Reykjavík
+354 525 4000, hi@hi.is, www.hi.is