Fréttablaðið - 06.11.2021, Blaðsíða 48
Lyf & heilsa er framsækið þjónustufyrirtæki með starfsemi víðsvegar um landið. Fyrirtækið leggur metnað
sinn í að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustu á sviði heilsu, heilbrigði og lífsgæða.
www.lyfogheilsa.is
Í starfinu felst fagleg ábyrgð
á afgreiðslu lyfja samkvæmt
lögum og reglugerðum
um lyfsölu.
Starfssvið
Hæfniskröfur
VI
Ð
HL
U
ST
U
M
Ef þú hefur háskólapróf í
lyfjafræði og gilt starfsleyfi,
brennandi áhuga á þjónustu,
ert jákvæður og opinn
einstaklingur, þá gætum
við verið að leita að þér.
LYFJAFRÆÐINGAR
ÓSKAST TIL STARFA
VILTU VERA MEÐ?
Upplýsingar um störfin veitir Guðbjörg Stefánsdóttir,
rekstrar- og mannauðsstjóri, gudbjorg@lyfogheilsa.is
Sendu umsókn merkta „lyfjafræðingur“, ásamt ferilskrá
á starf@lyfogheilsa.is
Starfsmaður í kjötvinnslu óskast.
Umsækjandi þarf að vera kjötiðnaðarmaður
eða vanur kjötskurði / meðhöndlun á kjöti.
Áhugasamir hafið samband við Bryndísi
bryndis@kjotsmidjan.is
Kjötsmiðjan ehf. / Fosshálsi 27-29 / 110 Reykjavík
SAMBAND ÍSLENSKRA SVEITARFÉLAGA
Starf sérfræðings í skólamálum hjá
Sambandi íslenskra sveitarfélaga
Samband íslenskra sveitarfélaga hyggst ráða sérfræðing í
skólamálum. Sérfræðingurinn mun starfa ásamt skólamálafull-
trúa, öðrum sérfræðingum sambandsins og fræðslumálanefnd,
að margþættum og síbreytilegum verkefnum, sem einkum varða
leik-, grunn- og tónlistarskóla, og vinna að hagsmunagæslu fyrir
hönd sveitarfélaga á þeim sviðum. Á meðal verkefna og áherslna
eru umsýsla með endurmenntunarsjóðum kennara og málefni
leikskóla.
Gerð er krafa um háskólapróf sem nýtist í starfi auk víðtækrar
reynslu og þekkingar á fræðslumálum og áhuga á málefnum
sveitarfélaga. Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er
æskileg. Gott vald á íslensku máli í ræðu og riti og hæfni í fram-
setningu upplýsinga er skilyrði. Góð kunnátta í a.m.k. einu öðru
Norðurlandamáli og ensku er æskileg. Góð tölvuþekking, bæði til
öflunar og úrvinnslu upplýsinga er skilyrði.
Leitað er að hæfum einstaklingi sem hefur til að bera frumkvæði,
sjálfstæði, ríka þjónustulund, hæfni í mannlegum samskiptum,
nákvæmni í vinnubrögðum og forystu- og skipulagshæfileika.
Um er að ræða fullt starf og æskilegt er að umsækjandi geti hafið
störf sem fyrst.
Föst starfsaðstaða getur verið utan höfuðborgarsvæðisins, að
þeirri forsendu uppfylltri að mögulegt verði að tryggja full-
nægjandi starfsaðstöðu nærri heimili umsækjanda en einnig á
skrifstofu Sambands íslenskra sveitarfélaga í Reykjavík.
Nánari upplýsingar veitir Guðjón Bragason, sviðsstjóri lögfræði-
og velferðarsviðs, netfang: gudjon.bragason@samband.is, eða
Valur Rafn Halldórsson sviðsstjóri rekstrar- og útgáfusviðs,
netfang: valur@samband.is eða í síma 515-4900.
Samband íslenskra sveitarfélaga er framsækinn vinnustaður sem
býður upp á opið vinnuumhverfi, samheldinn starfsmannahóp og
skapar starfsmönnum gott svigrúm til starfsþróunar. Samband
íslenskra sveitarfélaga er heilsueflandi vinnustaður og leggur
ríka áherslu á að vinnustaðurinn sé fjölskylduvænn. Boðið er
upp á góða vinnuaðstöðu og kost á fjarvinnu eftir því sem við á.
Umsækjendum er bent á að frekari upplýsingar um Samband
íslenskra sveitarfélaga eru á heimasíðunni, www.samband.is.
Þar er einnig að finna starfslýsingu fyrir starfið og mannauðs-
stefnu sambandsins.
Ferilskrá og kynningarbréf, merkt „Umsókn um starf sérfræðings
á lögfræði- og velferðarsviði“, berist eigi síðar en mánudaginn
22. nóvember nk. til Sambands íslenskra sveitarfélaga,
Borgartúni 30, pósthólf 8100, 128 Reykjavík, eða í tölvupósti til
samband@samband.is.
RÁÐUM EHF • Sími 519 6770
www.radum.is • radum@radum.is
Við ráðum
Ráðum býður upp á ráðgjöf og ráðningar
sniðnar að þörfum viðskiptavinarins.
12 ATVINNUBLAÐIÐ 6. nóvember 2021 LAUGARDAGUR