Fréttablaðið - 06.11.2021, Qupperneq 49
Rekstrarstjóri
Sveitarfélagið Langanesbyggð auglýsir eftir rekstrarstjóra til
starfa.
Rekstrarstjóri ber ábyrgð á verkefnum sem tengjast rekstri og
bókhaldi skrifstofu, ráðgjöf til stjórnenda varðandi rekstur og
eftirlit með nýtingu fjármagns sveitarfélagsins. Starfið felur í sér
ábyrgð ásamt öðrum á tekju- og/eða útgjaldaliðum og
fjárhagsramma, launum og launaútreikningum.
Rekstrarstjóri tekur virkan þátt í stefnumótun er varðar
fjárhagslega hagsmuni sveitarfélagsins.
• Tekur þátt í gerð árlegrar rekstraráætlunar fyrir
sveitarfélagið og hefur eftirlit með framkvæmd hennar.
• Eftirfylgni með rekstri, launakostnaði og innkaupum
sveitarfélagsins og deilda.
• Veitir deildarstjórum reglulegar upplýsingar um stöðu
rekstrar og upplýsir sveitastjóra ef deildir fara yfir
rekstraráætlun.
• Hefur umsjón með og annast samþykkt reikninga.
• Ber ábyrgð á að launaútreikningar séu réttir.
• Veitir leiðbeiningar til deildarstjóra og samstarfsfólks um
framkvæmd launaskráningar og viðverukerfis sem og
frágang launagagna s.s. ráðningarsamninga.
• Ber ábyrgð á yfirferð rekstrarreikninga.
• Annast skjölun og skráningu samninga.
• Annast samantekt gagna og öflun upplýsinga um rekstur.
• Hefur umsjón með tölvukerfi skrifstofu, ráðgjöf og þjónustu
við tæknilegan búnað.
• Hefur frumkvæði að því að leitað sé leiða til hagræðingar,
um leið og veitt er sem best þjónusta.
• Tekur þátt í faglegri framkvæmd verkefna á grunni
sérfræðiþekkingar sinnar.
• Annast móttöku gesta og símsvörun eins og við á.
Gerð er krafa um haldgóða menntun og góða þekkingu viðfangsefni
starfsins.
Nánari upplýsingar veitir sveitarstjóri í síma 468-1220. Einnig er hægt
að senda fyrirspurnir með tölvupósti á netfangið:
jonas@langanesbyggd.is.
Umsóknarfrestur er til og föstudagsins 25. nóvember 2021.
Umsóknir sendist á netfangið: jonas@langanesbyggd.is
Við hlökkum til að heyra frá þér!
Langanesbyggð er öflugt og vaxandi
sveitarfélag með spennandi
framtíðarmöguleika. Á Þórshöfn búa
um 400 manns í fjölskylduvænu
umhverfi. Skólinn var endurnýjaður
árið 2016 og er öll aðstaða og
aðbúnaður til fyrirmyndar. Nýr
leikskóli var tekin í notkun haustið
2019. Gott íbúðarhúsnæði er til
staðar og öll almenn þjónusta er á
Þórshöfn. Á staðnum er gott
íþróttahús og innisundlaug og stendur
Ungmennafélag Langaness fyrir
öflugu íþróttastarfi. Í þorpinu er mikið
og fjölbreytt félagslíf. Samgöngur eru
góðar, m.a. flug fimm daga vikunnar til
Reykjavíkur um Akureyri. Í næsta
nágrenni eru margar helstu
náttúruperlur landsins og ótal
spennandi útivistarmöguleikar, s.s.
fallegar gönguleiðir og stang- og
skotveiði.
Í Grunnskóla Þórshafnar eru 65
nemendur í hæfilega stórum
bekkjardeildum. Starfsemi skólans
einkennist af kraftmiklu og framsæknu
skólastarfi. Samhliða skólanum er
rekinn tónlistarskóli og hefð er fyrir
öflugu íþróttastarfi fyrir alla
aldurshópa skólans.
Langanesbyggð leitar að fólki á öllum
aldri, af báðum kynjum, með margs
konar menntun og reynslu. Í samræmi
við jafnréttisáætlun Langanesbyggðar
eru karlar jafnt sem konur hvött til að
sækja um störf hjá sveitarfélaginu.
VÉLAVERKFRÆÐINGUR
CRI auglýsir eftir vélaverkfræðingi með sérfræðiþekkingu á hreyfanlegum og föstum
vélahlutum, pípulögnum og lokum. Viðkomandi mun vinna í þverfaglegu teymi sem ber
ábyrgð á hönnun grænna metanólverksmiðja byggðum á ETL-tækni CRI. Vinnan mun ná
yfir hönnun og innkaup, ásamt eftirfylgni við smíði, prófanir, uppsetningu og gangsetningu
einstakra vélahluta, ferla og verksmiðja.
Hæfniskröfur:
+ Háskólamenntun í vélaverkfræði eða sambærileg menntun.
+ Starfsreynsla við hönnun og innkaup á vélhlutum í efnaiðnaði, orkuiðnaði eða gas- og olíuiðnaði er æskileg.
+ Góð þekking á notkun 3D teiknihugbúnaðar og annars hugbúnaðar við hönnun á vélahlutum og pípulögnum.
+ Mjög góð kunnátta í ensku, bæði skriflegri og munnlegri.
Umsóknarfrestur er til 19. Nóvember. Sótt er um á heimasíðu CRI carbonrecycling.is/careers
Carbon Recycling International (CRI) hefur frá árinu 2006 þróað Emissions-to-Liquids
(ETL) tæknina til framleiðslu á grænu eldsneyti og efnavöru úr koltvísýringi.
Á skrifstofu okkar í Kópavogi vinnur nú samheldinn hópur sérfræðinga að því að
hrinda í framkvæmd framsæknum verkefnum víða um heim.
w: carbonrecycling.is
CARBON
RECYCLING
INTERNATIONAL
Prentmet Oddi er framsækin prentsmiðja með höfuðstöðvar
að Lynghálsi 1 í Reykjavík og útibú á Akureyri og Selfossi
Vegna mikils álags óskar Prentmet Oddi
eftir starfsmönnum í 100% starf.
Vinnutíminn er frá 8:00-16:00 og til 15:30
á föstudögum. Möguleiki er á aukavinnu.
Prentsmiðir/grafískir miðlarar
í Reykjavík og á Akureyri
Helstu verkefni í Reykjavík:
Umbrot, hönnun og formhönnun.
Helstu verkefni á Akureyri:
Umbrot, hönnun og stafræn prentun.
Hæfniskröfur:
• Sveinspróf í prentsmíði / grafískri miðlun
• Góða tölvu- og tækniþekkingu í faginu
• Sköpunargleði, hugmyndaríki og lausnamiðuð
hugsun
• Góð skipulagshæfni, framúrskarandi samskipta- og
samstarfshæfni
• Gott vald á íslensku og ensku
Prentari á fjöllita offsetprentvélar
í Reykjavík
Helstu verkefni: Prentun á fjöllita prentvélar.
Hæfniskröfur:
• Sveinspróf í prentun
• Góð skipulagshæfni, samskipta- og samstarfshæfni
• Brennandi áhugi á að skila góðu verki frá sér
• Nákvæmni í vinnubrögðum og hæfileiki til þess að
meta gæði prentunar
• Mjög gott að viðkomandi tali íslensku, annars krafa
um enskukunnáttu
Nánari upplýsingar um starfið veitir framkvæmdarstjóri
mannauðsmála í isi@prentmetoddi.is, s. 8 560 601 og
https://prentmetoddi.is/um-okkur/atvinnuumsokn/.
Umsóknarfrestur er til 12. nóvember nk.
Prentmet Oddi er stærsta og framsæknasta prentsmiðja
landsins sem býður upp á heildarlausnir og hágæða prentun
þar sem hraði, gæði og persónuleg þjónusta fara vel saman
í framleiðslunni. Fyrirtækið er Svansvottað og framleiðir
pappírsumbúðir, bækur og allt almennt prentverk.
Lögð er rík áhersla á að starfsfólki líði vel á vinnustað.
STARFSFÓLK ÓSKAST
ATVINNUBLAÐIÐ 13LAUGARDAGUR 6. nóvember 2021