Fréttablaðið - 06.11.2021, Qupperneq 50
Starfs- og ábyrgðarsvið
• Almenn viðhaldsvinna kælikerfa
• Nýlagnir, uppsetning og þjónusta á kælikerfum
• Smíði á kælibúnaði á framleiðsluverkstæði
• Viðhald tækja og búnaðar
• Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
• Vélfræðipróf er æskilegt
• Reynsla af NH3 (ammoníak) kæli og frystikerfum
er kostur
• Reynsla af stýribúnaði og raflögnum er kostur
• Góð íslensku- og enskukunnátta er skilyrði.
• Góð þjónustulund og jákvæðni.
Vélfræðingur óskast í framtíðarstarf
í Vestmannaeyjum
Góð laun og möguleiki
á eignarhluti í félaginu
Norðursund 9 • 900 Vestmannaeyjum • www.kaelifelagid.is
Um Kælifélagið ehf
Kælifélagið sinnir allri almennri þjónustu á frysti- og
kælitækjum bæði á verkstæði okkar og hjá viðskiptavinum.
Eigendur Kælifélagsins eru KAPP ehf og Vélaverkstæðið Þór ehf.
Æskilegt er að umsækjendur séu
vélstjórar, vélfræðingar eða með
sambærilega menntun.
Umsækjandi þarf að búa yfir reynslu
af störfum við kælikerfi eða öðrum
frystikerfum sem eru um borð
í skipum og/eða í frystihúsum.
Í boði er fjölbreytt og áhugavert
starf með spennandi tækifæri fyrir
kraftmikinn einstakling.
Umsóknir ásamt ferilskrá
óskast sendar á
Sævald Hallgrímsson,
framkvæmdastjóra á netfangið:
saevald@kaelifelagid.is
eða í síma 898 7567
Umsóknarfrestur
er til og með 22. nóv.
Leikskólakennarar
óskast til starfa
Í leikskólann á Laugalandi vantar okkur leikskólakennara
í tvær 100% stöður.
Leitað er eftir áhugasömum, metnaðarfullum starfs-
mönnum, körlum jafnt sem konum, sem hafa góða hæfni
í mannlegum samskiptum og eru tilbúnir til að vinna eftir
sérstökum áherslum skólans.
Einkunarorð skólans eru Viska - Virðing - Vinátta.
Helstu áherslur í starfi eru m.a. snemmtæk íhlutun í
málþroska, leikur, útikennsla, slökun og fjölbreyttar
vinnustundir.
Mikil og góð samvinna er við grunnskólann sem er undir
sama þaki og leikskólinn.
Leikskólinn Laugalandi er tveggja deilda leikskóli og er
staðsettur að Laugalandi í Holtum. Umhverfi skólans
einkennist af fjölbreyttri íslenskri náttúru sem býður uppá
endalausa möguleika fyrir leik og nám.
Ef ekki fæst leikskólakennari eða starfsmaður með aðra
uppeldismenntun er heimilt að ráða annan hæfan í
stöðuna.
Ef þú hefur áhuga þá endilega hafðu samband.
Upplýsingar um leikskólann má finna á
https://leikskolinnlaugaland.ry.is en einnig má hafa
samband við leikskólastjóra, Sigrún Björk Benediktsdóttir,
í síma 488-7042 eða leikskolinn@laugaland.is
Umsóknir ásamt meðmælum skulu sendast á Leikskólann
Laugalandi, 851 Hella fyrir 26. nóvember eða á
leikskolinn@laugaland.is.
Vísir er mest lesni fréttavefur landsins. Lífið er stærsti dægurmálavefur landsins og lesa hann um 60 þúsund manns á dag.
Við hvetjum áhugasama af öllum kynjum til að sækja um í gegnum ráðningavefinn okkar, radningar.syn.is
Umsóknarfrestur er til og með 14. nóvember nk.
Hæfniskröfur:
• Brennandi áhugi á fólki
• Mjög gott vald á íslensku og ensku
• Hæfni í mannlegum samskiptum og öryggi í framkomu
• Frumkvæði og geta til að vinna hratt
• Reynsla af textaskrifum er æskileg
Vilt þú vera með okkur?
Við leitum að öflugum blaðamanni í fullt starf til að skrifa greinar og fréttir í Lífið á Vísi á
fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar. Í Lífinu er fjallað um dægurmál og fólk í einkalífi,
menningarlífi og samkvæmislífi. Starfið felst í að fylgjast vel með því sem er að gerast í
samfélaginu, á samfélagsmiðlum, vera í samskiptum við alls konar fólk – og segja af því
fréttir eða taka lengri viðtöl.