Fréttablaðið - 06.11.2021, Blaðsíða 56
Bakkabraut 2-4, Bryggjuvör 1, 2, 3, Þinghólsbraut 77 og 79.
Breytt deiliskipulag.
Skipulagsráð Kópavogs samþykkti þann 18. október 2021 að kynna vinnslutillögu að breyttu
deiliskipulagi Bakkabrautar 2-4, Bryggjuvarar 1, 2, 3, Þinghólsbrautar 77 og 79. Svæði 13 á
þróunarsvæðinu á Kársnesi, ÞR-1 samkv. Aðalskipulagi Kópavogs 2012-2024 og samþykktu
Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040. Í vinnslutillögunni er gert ráð fyrir að núverandi atvinnu-
húsnæði á lóðunum víki og íbúðarhús rísi í þess stað. Skipulagssvæðið afmarkast af Þinghóls-
braut og lóðamörkum Þinghólsbrautar 73 og 75 í austri, fyrirhugaðri nýrri vegtengingu milli
Borgarholtsbrautar og Bakkabrautar í norðri, fyrirhugaðs nýs hafnarkants til vesturs og suðurs.
Gert er ráð fyrir að heildarfjöldi íbúða á reitnum verði að hámarki 160, á 2-5 hæðum þar sem 5.
hæðin verður inndregin. Gert er ráð fyrir 0,75-1 bílastæði pr. íbúð og að u.þ.b. 90% þeirra verði í
innbyggðum og niðurgröfnum bílageymslum. Fyrirhugað er að heildarbyggingarmagn á svæðinu
verði 26.675 m² ofan- og neðanjarðar með nýtingarhlutfalli 1,9. A-rými ofanjarðar 18.700m².
B-rými ofanjarðar 2.595m². A-rými neðanjarðar 2.180m². B-rými neðanjarðar - Bílakjallari -
3.800m².
Vinnslutillagan er sett fram á uppdráttum í mkv. 1:1000 og 1:500 ásamt greinargerð og skýr-
ingarmyndum dags. 15. október 2021. Vinnslutillögunni fylgir einnig minnisblað um samgöngur
frá VSÓ ráðgjöf dags. 17. febrúar 2021.
Nánar er vísað til kynningargagna.
Ofangreind vinnslutillaga er aðgengileg á heimasíðu bæjarins, www.kopavogur.is.
Ef óskað er eftir nánari upplýsingum um tillöguna er hægt að senda fyrirspurn á starfsfólk
skipulagsdeildar á netfangið skipulag@kopavogur.is.
Fimmtudaginn 18. nóvember 2021 milli kl. 17 og 18 verður starfsfólk skipulagsdeildar með
opið hús í sal Kársnesskóla þar sem vinnslutillagan verður sérstaklega kynnt þeim sem þess
óska. Áhugasamir eru beðnir að skrá komu sína með tölvupósti á netfangið
skipulag@kopavogur.is fyrir 16. nóvember nk.
Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Athugasemdir
og ábendingar skulu hafa borist skriflega til skipulagsdeildar, Digranesvegi 1, 200 Kópavogi eða
á netfangið skipulag@kopavogur.is eigi síðar en kl. 13:00 föstudaginn 17. desember 2021.
Skipulagsfulltrúinn í Kópavogi.
kopavogur.is
Auglýsing um breytt
deiliskipulag í Kópavogi.
Undirstöður - útboð
Öryggisfjarskipti ehf, óska eftir tilboðum í verkið:
Flugskýli Landhelgisgæslan – Undirstöður
Verkið felst í steypu á undirstöðum og botnplötu
vegna byggingar flugskýlis og aðstöðubyggingar fyrir
Landhelgisgæslu Íslands við Nauthólsveg á jaðri
Reykavíkurflugvallar.
Helstu magntölur eru eftirfarandi:
• Steypa 500 m3
• Bendistál 45.000 kg
• Mót 900 m2
• Fylling 2100 m3
Útboðsgögn verða afhent rafrænt af EFLU verkfræði-
stofu til þeirra bjóðenda sem þess óska frá og með
miðvikudeginum 10. nóvember 2021, kl. 10:00.
Tilboð verða opnuð fimmtudaginn 25. nóvember
2021 kl. 14:00 að viðstöddum þeim bjóðendum
sem það vilja.
Bjóðendur óski eftir gögnum hjá EFLU verkfræðistofu
með tölvupósti á bjarni@efla.is.
Tannlæknarými Til leigu í vesTurbænum
Tannlæknarými með stól og tækjum er laust til leigu.
Á stofunni starfa þrír tannlæknar og pláss er fyrir
þann fjórða. Fín aðstaða og góð staðsetning.
Hagstæð leigukjör í boði.
allar upplýsingar veitir garðar
í síma 863-0152 eða hbakki@simnet.is
Fyrirtæki
ársins 2021
hagvangur.is
Erum við
að leita að þér?
20 ATVINNUBLAÐIÐ 6. nóvember 2021 LAUGARDAGUR