Fréttablaðið - 06.11.2021, Síða 70
Útgáfuhóf vegna smásagna-
safnsins Óratíma sem kom út
fyrr á árinu, verður í Bóka-
kaffinu í Ármúla í dag. Óra-
tími er safn vísindasmásagna
eftir átta höfunda sem eru
hluti af félaginu Smásögur.
sandragudrun@frettabladid.is
Hópur skálda tók sig saman árið
2011 og ákvað að gefa út smá-
sagnasafn. Þetta voru ólíkir
höfundar með mismikla reynslu
af ritstörfum en allir höfðu þeir
metnað til að skila frá sér góðum
sögum. Síðan þá hefur hópurinn
gefið út eitt smásagnasafn á ári. Í
ár kom út tíunda bókin, sem ber
nafnið Óratími og er þema hennar
vísindaskáldsögur.
„Við höfum alltaf eitthvað
þema. Það er alltaf skemmtilegra
þegar fólk fer að kaupa bók að vita
nokkurn veginn að hverju það
gengur, hvort það sé að fara að
lesa krimma eða gamanmál og að
bókin sé ekki öll í belg og biðu. En
það er spurning hvort maður ætti
að fara að gera konfektkassa, eitt-
hvað bland,“ segir Róbert Marvin
Gíslason, einn höfundanna í
hópnum.
„Við vinnum þannig að hvert
og eitt okkar skrifar smásögu sem
við skilum inn á rýnivef sem ég bjó
til. Við rýnum sögurnar hjá hverju
öðru en við setjum upp skema um
hver les hjá hverjum. Við miðum
við að hver saga sé rýnd af þremur
höfundum til að fá sem fjölbreytt-
ast sjónarhorn á hana. Við sem
erum hópstjórar þurfum að lesa
allar sögurnar. Við stingum svo
upp á lagfæringum og annað hvort
taka höfundar það til sín eða koma
með rök gegn því. Gagnrýnin er
ekkert meitluð í stein,“ útskýrir
hann.
Róbert segir að eftir margra ára
reynslu hópsins af útgáfu smá-
sagna séu þau komin með kerfi
sem gangi nokkuð smurt, en mark-
miðið er auðvitað að gefa út bækur
með góðum sögum.
„Við pössum alltaf upp á að
sögurnar sem eru sendar inn
passi í þemað, stundum er það á
mörkunum, þá leyfum við höfundi
að njóta vafans. Næsta bók verður
barnasögur, hugsaðar fyrir um það
bil 8-12 ára börn. Við erum í þeim
fasa að skrifa núna og svo skilum
við þeim í rýni á næstu dögum.
Eftir það fer bókin í prófarkalestur
og við gerum ráð fyrir að útgáfa
verði í vor,“ útskýrir hann.
Verðlaunahöfundar og nýir höf-
undar í bland
Höfundarnir í hópnum kjósa
um nafn á bókunum og fá líka að
spreyta sig á kápuhönnun, sem
einnig er kosið um. Bókin er því að
öllu leyti samstarf hópsins.
„Við getum alltaf bætt við nýjum
höfundum í hópinn, en það er
Leyfa skúffuhöfundum að spreyta sig
Róbert Marvin
segir tilganginn
með hópnum
að vekja athygli
á nýjum höf-
undum.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
skilyrði að fólk geti komið frá
sér almennilegum texta. Þegar
við byrjuðum buðum við hinum
og þessum skúffuhöfundum að
spreyta sig og taka þátt. Síðan þá
hefur ákveðinn kjarni haldist
í hópnum en það koma alltaf
einhverjir nýir inn. Við vinnum
þetta allt á internetinu og hitt-
umst eiginlega ekkert, svo fólk
þarf að vera svolítið virkt á netinu
ef það vill vera með. Það hafa ekki
allir góð tök á tækninni, en það er
þröskuldur sem fólk þarf að geta
yfirstigið. Við höfum leitt þá sem
eru nýir í gegn og þeir hafa verið að
skila af sér góðum sögum sem fólk
hefur haft gaman af,“ segir Róbert.
„Tilgangurinn með þessum hóp
er einmitt að vekja athygli á nýjum
höfundum. Það er vonandi að við
kveikjum einhverja bakteríu í
þeim og þeir haldi áfram og verði
góðir höfundar, jafnvel metsölu-
höfundar. En við erum ekki bara
með nýja höfunda, það er slatti af
verðlaunahöfundum í hópnum.
Einar Leif Nielsen gaf til dæmis út
Sýndarglæpi og vann samkeppni á
Storytel fyrir hana. Nokkrir innan
hópsins hafa líka gefið út smá-
sögur erlendis. Ég sjálfur hef gefið
út þrjár skáldsögur fyrir fullorðna,
sú síðasta var Stúlkan með rauða
hárið sem er aðgengileg á Storytel,
einnig hef ég gefið út bækur fyrir
unglinga og leikskólabörn, svo það
eru líka reynslumiklir höfundar í
hópnum.“
Róbert segir að ef fólk hefur
áhuga á að vera með í smásögu-
hópnum þá sé hægt að fara inn á
vefsíðu hans, smasogur.com og
lesa sér til um reglurnar, en þar eru
einnig upplýsingar um hvernig er
hægt að hafa samband. Hópurinn
er einnig með síðu á Facebook.
Róbert bætir við að allir sem hafi
áhuga séu velkomnir í útgáfuhófið
fyrir bókina Óratíma, sem verður í
Bókakaffinu Ármúla 42 í dag á milli
16.00 og 17.00.
Höfundar bókarinnar eru:
Árný Stella Gunnarsdóttir, Ásdís
Ingólfsdóttir, Einar Leif Nielsen,
Elísabet Kjerúlf, Hákon Gunnars-
son, Róbert Marvin Gíslason,
Jóhanna K. Atladóttir og María
Siggadóttir. n
Berum ábyrgð á eigin heilsu
www.nlfi.is
Sjálfbærni og umhverfisvernd
Af hverju skiptir þetta máli og hvað er hægt að gera?
Gunnar Dofri Ólafsson
Eyrún Gígja Káradóttir
Gunnar S. Magnússon
Stefán Gíslason
Sævar Helgi Bragason
Málþing Náttúrulækningafélags Íslands - Þriðjudaginn 9. nóvember kl.19:30
Fræðslunefnd Náttúrulækningafélags Íslands efnir til málþings á
Icelandair hótel Reykjavík Natura, þriðjudaginn 9. nóvember kl. 19:30
• Grænn lífsstíll • Innkaup
• Mataræði - kolefnisspor
• Heimilissorp - flokkun
• Umgengni
• Neysluósiðir
• Nýjasta nýtt í umhverfisvernd
Fundarstjóri: Gunnar S. Magnússon sviðsstjóri sjálfbærni
hjá Ernst & Young
Frummælendur:
Gunnar Dofri Ólafsson sérfr. í samskiptum og samfélagsvirkni hjá Sorpu
Endar þetta ekki bara allt í sömu holunni hvort eð er?
Sævar Helgi Bragason rithöfundur og stjörnufræðingur
Grænn lífsstíll og eigin reynsla af umhverfisvernd
Eyrún Gígja Káradóttir verkefnastjóri fræðslumála hjá Vistorku
Neysluhyggja og meðhöndlun úrgangs
Stefán Gíslason umhverfisstjórnunarfræðingur
Matur er ekki bara matur
Allir velkomnir - Enginn aðgangseyrir
6 kynningarblað A L LT 6. nóvember 2021 LAUGARDAGUR