Fréttablaðið - 06.11.2021, Page 80

Fréttablaðið - 06.11.2021, Page 80
Okkar ástkæri Skúli H. Flosason lést 1. nóvember 2021. Útförin fer fram í kyrrþey. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Hollvinasamtök Sjúkrahússins á Akureyri. Þóra Björk Sveinsdóttir, Kristín Heiða, Eyrún og Nanna Hlín, makar, barnabörn og langafabarn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, Karl Bjarnason múrari, Klettabergi 34, Hafnarfirði, lést á heimili sínu 3. nóvember. Hildur Þorsteinsdóttir Auður Baldursdóttir Erling Pétur Erlingsson Þorsteinn Sveinn Karlsson Úlfhildur Jónasdóttir Svanhildur Karlsdóttir Anton Magnússon Lilja Guðríður Karlsdóttir Jónas Þór Oddsson Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæra Þórðar Sveinssonar Kórsölum 1. Sérstakar þakkir til starfsfólks Kríulundar Hrafnistu Boðaþingi. Hafdís Baldvinsdóttir Sigurður Pálmar Þórðarson Erna Sigurðardóttir Jóhanna Guðrún Þórðard. Bjarni Viggósson Ása Kristveig Þórðard. Jens Magnússon Svanhvít Þórðardóttir Eikland Erla Rúna Þórðardóttir Haukur Hrafnsson barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir, amma og langamma, Anna Ragnarsdóttir frá Stykkishólmi, lést á hjúkrunarheimilinu Eir, Grafarvogi, 3. nóvember. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 9. nóvember kl. 15. Aðstandendur þakka starfsfólkinu á hjúkrunarheimilinu Eir Grafarvogi fyrir einstaka umönnun og væntumþykju. Eyþór Sigurbergsson Turid Lismoen Ómar Sigurbergsson Sif Gunnarsdóttir Ívar Sigurbergsson Auður Ögmundsdóttir Edda Sigurbergsdóttir Ester Sigurbergsdóttir börn og barnabörn. Hjartans þakkir til ykkar allra sem sýnduð okkur samúð og virðingu við fráfall okkar elskaða eiginmanns og ættföður, Árna Vals Viggóssonar rafvirkja- og símsmíðameistara, Víðilundi 24, Akureyri. Starfsfólk Lyfjadeildar SAk og Grenihlíðar fær sérstakar þakkir fyrir hjartahlýju og kærleik. Fyrir hönd stórfjölskyldunnar, Unnur Þorsteinsdóttir Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Elín Jóhanna Ágústsdóttir (Ellý) frá Aðalbóli, Vestmannaeyjum, áður til heimilis að Kleppsvegi 62, andaðist á Hrafnistu 13. október. Jarðarförin fer fram frá Langholtskirkju þriðjudaginn 9. nóvember kl. 13. Bjarni Sighvatsson Auróra Friðriksdóttir Viktor Sighvatsson Jóna Margrét Jónsdóttir Ásgeir Sighvatsson Hilda Torres Elín Sighvatsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Guðrún Ragna Valdimarsdóttir (Stella) lést á hjúkrunarheimilinu Sléttunni þriðjudaginn 2. nóvember. Útför fer fram í Háteigskirkju fimmtudaginn 11. nóvember klukkan 13. Björn Kr. Gunnarsson Arndís Ármann Ásta Gunnarsdóttir Margrét Ármann Halldór Jensson Gunnar Óðinn Einarsson Valdimar Ármann Gunnar Friðrik Eðvarðsson Stella María Ármann Sigurður Stefánsson og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Már Bjarnason Bjarkarheiði 37, Hveragerði, lést á dvalarheimilinu Ási 26. október síðastliðinn. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Lára Kolbrún Þorsteinsdóttir Brynhildur Pálína Másdóttir Richard Moltzau Guðrún S. Másdóttir Forsberg Pål Forsberg Anna Jónína Másdóttir Sveinn Sigmundsson Holberg Másson Guðlaug Björnsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Elsku faðir minn, tengdafaðir, afi okkar og langafi, Jón Fr. Sigvaldason bifreiðasmiður, Faxatúni 32, Garðabæ, lést í faðmi fjölskyldunnar á líknardeild Landspítalans í Kópavogi laugardaginn 30. október. Útförin fer fram frá Vídalínskirkju, fimmtudaginn 11. nóvember kl. 13. Ragnheiður Edda Jónsdóttir Guðmundur Þ. Kristjánsson Líney Rut Guðmundsdóttir Jón Grétar Guðmundsson og langafastrákarnir. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, Ómar Örn Þorbjörnsson húsasmíðameistari, Efstasundi 31, lést þann 30. október á Landspítalanum. Hann verður jarðsunginn frá Áskirkju miðvikudaginn 10. nóvember kl. 11. Sigríður Elísabet Sturlaugsdóttir Auður Berglind Ómarsdóttir Guðmundur Ingi Jónsson Sturlaugur Aron Ómarsson Auðbjörg Njálsdóttir Hákon Örn Ómarsson Elísa Karen, Helena Bríet, Eydís Klara, Diljá og Freyr Anna Ragna Fossberg hlaut verð- laun Sparibollans fyrir handritið Hugfanginn. arnartomas@frettabladid.is Bókmenntaverðlaun Sparibollans, verð- laun fyrir fallegustu ástarjátninguna, voru veitt í þriðja skipti fyrr í vikunni. Verðlaunahandritið í ár var Hugfanginn eftir Önnu Rögnu Fossberg, sem gefin er út á vegum Króníku. „Bókin hefur í raun þrjú þemu, en hún er í senn ástar-, þroska- og hugsjóna- saga,“ segir Anna Ragna. Sagan gerist á einum sólarhring og segir frá Smára, miðaldra verkfræðingi, í kjölfar þess að hann greinist með hjarta- galla og f lettir upp gamalli frétt um andlát foreldra sinna, sem hann kynnt- ist aldrei. Hann þarf síðan að takast á hendur gönguferð um æskuslóðir sínar þar sem ýmislegt gott og slæmt rifjast upp. „Á þessum sólarhring gerir hann upp við æskuástina, höfnunina, ástarsorgina og hvernig hann lokaði sig af í kjölfarið. Hann áttar sig á því hvað hann hefur rammað líf sitt inn í þröngan kassa,“ útskýrir Anna Ragna. „Hann hefur til dæmis aldrei eignast fjölskyldu.“ Það fer að kvarnast úr þessum ramma þegar Smári skoðar kynhneigð sína, kynvitund og tengsl við eigin líkama. „Það breytist ansi margt hjá honum á þessum sólarhring,“ segir Anna Ragna. Ýkt útgáfa Níundi áratugurinn er í brennidepli í bókinni en Smári, eins og Anna Ragna sjálf, ólst upp á þeim tíma. Smári gengur í gegnum mikið þunglyndi en finnur tilgang með því að hella sér út í friðar- baráttu. „Þetta er á þeim tíma sem kalda stríðið var í algleymingi, en í dag er ungt fólk líka kvíðið fyrir framtíðinni út af loftslagsmálum,“ segir Anna Ragna. Persónan Smári á margt sameiginlegt með Önnu Rögnu sjálfri. „Ég tók sjálf þátt í friðarbaráttu á sínum tíma og er auk þess frekar mikið fyrir reglur og ramma, ef ég á að segja eins og er,“ segir hún. „En ég á fjölskyldu, svo Smári er mjög ýkt útgáfa af mér.“ Árið 2018 gaf Anna Ragna út bókina Auðnu sem hlaut mikið lof lesenda. Þar segir frá þremur systrum sem alast upp í Reykjavík á þriðja og fjórða áratug síð- ustu aldar, en bókin er saga móðurættar Önnu Rögnu skrifuð með skáldaleyfi. „Ég hafði ekki nægar heimildir til að skrifa hana sem sanna sögu, þótt hún hafi verið sannsöguleg,“ segir Anna Ragna. „Hugfanginn er aftur á móti skáldsaga, þótt ég byggi hana að ein- hverju leyti á mínu eigin lífi.“ n Ást, þroski og hugsjónir Hugfanginn er önnur skáldsaga Önnu Rögnu. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Ég tók sjálf þátt í friðar- baráttu á sínum tíma og er auk þess frekar mikið fyrir reglur og ramma, ef ég á að segja eins og er. 40 Tímamót 6. nóvember 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.