Fréttablaðið - 06.11.2021, Qupperneq 80
Okkar ástkæri
Skúli H. Flosason
lést 1. nóvember 2021.
Útförin fer fram í kyrrþey.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á
Hollvinasamtök Sjúkrahússins á Akureyri.
Þóra Björk Sveinsdóttir,
Kristín Heiða, Eyrún og Nanna Hlín,
makar, barnabörn og langafabarn.
Ástkær eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Karl Bjarnason
múrari,
Klettabergi 34, Hafnarfirði,
lést á heimili sínu 3. nóvember.
Hildur Þorsteinsdóttir
Auður Baldursdóttir Erling Pétur Erlingsson
Þorsteinn Sveinn Karlsson Úlfhildur Jónasdóttir
Svanhildur Karlsdóttir Anton Magnússon
Lilja Guðríður Karlsdóttir Jónas Þór Oddsson
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför okkar ástkæra
Þórðar Sveinssonar
Kórsölum 1.
Sérstakar þakkir til starfsfólks
Kríulundar Hrafnistu Boðaþingi.
Hafdís Baldvinsdóttir
Sigurður Pálmar Þórðarson Erna Sigurðardóttir
Jóhanna Guðrún Þórðard. Bjarni Viggósson
Ása Kristveig Þórðard. Jens Magnússon
Svanhvít Þórðardóttir Eikland
Erla Rúna Þórðardóttir Haukur Hrafnsson
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
Anna Ragnarsdóttir
frá Stykkishólmi,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir,
Grafarvogi, 3. nóvember.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju
þriðjudaginn 9. nóvember kl. 15.
Aðstandendur þakka starfsfólkinu á hjúkrunarheimilinu
Eir Grafarvogi fyrir einstaka umönnun og væntumþykju.
Eyþór Sigurbergsson Turid Lismoen
Ómar Sigurbergsson Sif Gunnarsdóttir
Ívar Sigurbergsson Auður Ögmundsdóttir
Edda Sigurbergsdóttir
Ester Sigurbergsdóttir
börn og barnabörn.
Hjartans þakkir til ykkar allra
sem sýnduð okkur samúð og
virðingu við fráfall okkar elskaða
eiginmanns og ættföður,
Árna Vals Viggóssonar
rafvirkja- og símsmíðameistara,
Víðilundi 24, Akureyri.
Starfsfólk Lyfjadeildar SAk og Grenihlíðar fær sérstakar
þakkir fyrir hjartahlýju og kærleik.
Fyrir hönd stórfjölskyldunnar,
Unnur Þorsteinsdóttir
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Elín Jóhanna Ágústsdóttir
(Ellý)
frá Aðalbóli, Vestmannaeyjum,
áður til heimilis að Kleppsvegi 62,
andaðist á Hrafnistu 13. október.
Jarðarförin fer fram frá Langholtskirkju þriðjudaginn
9. nóvember kl. 13.
Bjarni Sighvatsson Auróra Friðriksdóttir
Viktor Sighvatsson Jóna Margrét Jónsdóttir
Ásgeir Sighvatsson Hilda Torres
Elín Sighvatsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Guðrún Ragna
Valdimarsdóttir
(Stella)
lést á hjúkrunarheimilinu Sléttunni
þriðjudaginn 2. nóvember. Útför fer fram í
Háteigskirkju fimmtudaginn 11. nóvember klukkan 13.
Björn Kr. Gunnarsson Arndís Ármann
Ásta Gunnarsdóttir
Margrét Ármann Halldór Jensson
Gunnar Óðinn Einarsson
Valdimar Ármann Gunnar Friðrik Eðvarðsson
Stella María Ármann Sigurður Stefánsson
og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Már Bjarnason
Bjarkarheiði 37, Hveragerði,
lést á dvalarheimilinu Ási
26. október síðastliðinn.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Lára Kolbrún Þorsteinsdóttir
Brynhildur Pálína Másdóttir Richard Moltzau
Guðrún S. Másdóttir Forsberg Pål Forsberg
Anna Jónína Másdóttir Sveinn Sigmundsson
Holberg Másson Guðlaug Björnsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elsku faðir minn, tengdafaðir,
afi okkar og langafi,
Jón Fr. Sigvaldason
bifreiðasmiður,
Faxatúni 32, Garðabæ,
lést í faðmi fjölskyldunnar á líknardeild
Landspítalans í Kópavogi laugardaginn
30. október. Útförin fer fram frá Vídalínskirkju,
fimmtudaginn 11. nóvember kl. 13.
Ragnheiður Edda Jónsdóttir Guðmundur Þ. Kristjánsson
Líney Rut Guðmundsdóttir
Jón Grétar Guðmundsson
og langafastrákarnir.
Ástkær eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Ómar Örn Þorbjörnsson
húsasmíðameistari,
Efstasundi 31,
lést þann 30. október á Landspítalanum.
Hann verður jarðsunginn frá Áskirkju
miðvikudaginn 10. nóvember kl. 11.
Sigríður Elísabet Sturlaugsdóttir
Auður Berglind Ómarsdóttir Guðmundur Ingi Jónsson
Sturlaugur Aron Ómarsson Auðbjörg Njálsdóttir
Hákon Örn Ómarsson
Elísa Karen, Helena Bríet, Eydís Klara, Diljá og Freyr
Anna Ragna Fossberg hlaut verð-
laun Sparibollans fyrir handritið
Hugfanginn.
arnartomas@frettabladid.is
Bókmenntaverðlaun Sparibollans, verð-
laun fyrir fallegustu ástarjátninguna,
voru veitt í þriðja skipti fyrr í vikunni.
Verðlaunahandritið í ár var Hugfanginn
eftir Önnu Rögnu Fossberg, sem gefin er
út á vegum Króníku.
„Bókin hefur í raun þrjú þemu, en hún
er í senn ástar-, þroska- og hugsjóna-
saga,“ segir Anna Ragna.
Sagan gerist á einum sólarhring og
segir frá Smára, miðaldra verkfræðingi, í
kjölfar þess að hann greinist með hjarta-
galla og f lettir upp gamalli frétt um
andlát foreldra sinna, sem hann kynnt-
ist aldrei. Hann þarf síðan að takast á
hendur gönguferð um æskuslóðir sínar
þar sem ýmislegt gott og slæmt rifjast
upp.
„Á þessum sólarhring gerir hann upp
við æskuástina, höfnunina, ástarsorgina
og hvernig hann lokaði sig af í kjölfarið.
Hann áttar sig á því hvað hann hefur
rammað líf sitt inn í þröngan kassa,“
útskýrir Anna Ragna. „Hann hefur til
dæmis aldrei eignast fjölskyldu.“
Það fer að kvarnast úr þessum ramma
þegar Smári skoðar kynhneigð sína,
kynvitund og tengsl við eigin líkama.
„Það breytist ansi margt hjá honum á
þessum sólarhring,“ segir Anna Ragna.
Ýkt útgáfa
Níundi áratugurinn er í brennidepli í
bókinni en Smári, eins og Anna Ragna
sjálf, ólst upp á þeim tíma. Smári gengur
í gegnum mikið þunglyndi en finnur
tilgang með því að hella sér út í friðar-
baráttu. „Þetta er á þeim tíma sem kalda
stríðið var í algleymingi, en í dag er ungt
fólk líka kvíðið fyrir framtíðinni út af
loftslagsmálum,“ segir Anna Ragna.
Persónan Smári á margt sameiginlegt
með Önnu Rögnu sjálfri. „Ég tók sjálf
þátt í friðarbaráttu á sínum tíma og er
auk þess frekar mikið fyrir reglur og
ramma, ef ég á að segja eins og er,“ segir
hún. „En ég á fjölskyldu, svo Smári er
mjög ýkt útgáfa af mér.“
Árið 2018 gaf Anna Ragna út bókina
Auðnu sem hlaut mikið lof lesenda. Þar
segir frá þremur systrum sem alast upp
í Reykjavík á þriðja og fjórða áratug síð-
ustu aldar, en bókin er saga móðurættar
Önnu Rögnu skrifuð með skáldaleyfi.
„Ég hafði ekki nægar heimildir til að
skrifa hana sem sanna sögu, þótt hún
hafi verið sannsöguleg,“ segir Anna
Ragna. „Hugfanginn er aftur á móti
skáldsaga, þótt ég byggi hana að ein-
hverju leyti á mínu eigin lífi.“ n
Ást, þroski og hugsjónir
Hugfanginn er önnur skáldsaga Önnu Rögnu. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Ég tók sjálf þátt í friðar-
baráttu á sínum tíma og er
auk þess frekar mikið fyrir
reglur og ramma, ef ég á
að segja eins og er.
40 Tímamót 6. nóvember 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ