Fréttablaðið - 06.11.2021, Síða 86
Nýr Aygo X er bæði
125 mm breiðari og
með 90 mm lengri
hjólhafi en áður en
bíllinn sjálfur er 235
mm lengri.
Notaðir bílar
Meira úrval á
notadir.benni.is Bílabúð Benna | Krókhálsi 9 | Reykjavík | 590 2035
Birt með fyrirvara um mynda- og textabrengl.
Opel Ampera-e Premium ‘19, sjálfskiptur,
ekinn 19 þús. km. Verð: 4.490.000 kr.
SsangYong Rexton Hlx ‘18, sjálfskiptur,
ekinn 94 þús. km. Verð: 5.290.000 kr.
SsangYong Tivoli Xlv Hlx ‘18, sjálfskiptur,
ekinn 60 þús. km. Verð: 3.490.000 kr.
591913 591915 446423100%
rafm
agn
4x4
Gott úrval notaðra bíla
SsangYong Tivoli Dlx ‘18, sjálfskiptur,
ekinn 64 þús. km. Verð: 2.850.000 kr.
191917 4x4
4x4
Toyota frumsýndi á fimmtu-
daginn nýja gerð Aygo sem
kallast einfaldlega X og tekur
við af Aygo smábílnum. X-ið
er borið fram sem Cross og er
það tilvísun í Cross útfærslur
Toyota eins og gert hefur
verið í Yaris og Corolla.
njall@frettabladid.is
Aygo var bíll sem áður var hann-
aður í samstarfi við Citroen og Peu-
geot, en nú er það samstarf fyrir
bí. Kemur Aygo X því á smækkaðri
útgáfu af TNGA-B undirvagninum
sem er undir Yaris. Með því næst
fram 125 mm breiðari bíll en áður
en hjólhaf hans hefur einnig aukist
um 90 mm. Nokkuð augljóst er að
veghæðin hefur aukist en bíllinn
mun nú einnig koma á 17 tommu
felgum sem staðalbúnaði. Aygo X
er 3.700 mm langur sem er 235 mm
lengra en Aygo var. Það hjálpar til
dæmis við að stækka farangurs-
rýmið sem nú er orðið 231 lítri.
Vélin í Aygo X verður eins lítra
bensínvél sem skilar 71 hestafli og
93 Nm togi. Sex gíra beinskipting
verður staðalbúnaður en einnig
verður hægt að fá hann með CVT
sjálfskiptingu. Engar áætlanir eru
Toyota Aygo X frumsýndur
Aygo X er stærri
bíll en Aygo
smábíllinn
og með meiri
veghæð, enda
kemur hann á 17
tommu felgum.
Allt að níu tommu upplýsingaskjár er í miðjustokki sem getur tengst öllum
gerðum snjallsíma. MYNDIR/TOYOTA
njall@frettabladid.is
Volkswagen frumsýndi um miðja
vikuna nýjustu rafrænu afurð sína,
VW ID.5 sem er kúpulaga jeppling-
ur. Bíllinn er byggður á sama MEB
undirvagni og ID.4 en það þýðir að
f lestar stærðartölur eru þær sömu,
en sportlegri áherslur eru í hönnun
hans sem gerir honum kleift að
keppa við bíla eins og Kia EV6, sem
dæmi.
Bíl l inn verðu r smíðaðu r í
Zwickau í Þýskalandi en þar eru ID.3
og ID.4 einnig smíðaðir. „Við fáum
fyrsta bílinn vonandi ef allt gengur
upp í janúar, síðan til afhendingar
mánaðamótin febrúar-mars,“ segir
Jóhann Ingi Magnússon, vöru-
merkjastjóri hjá Heklu. „Verðlistinn
er í vinnslu og fljótlega förum við að
taka við pöntunum,“ sagði Jóhann
og bætti við að verð bílsins yrði
klárt á næstu vikum.
Þar sem ID.5 er með minni loft-
mótstöðu en ID.4 er drægi hans
ívið meiri, eða 520 km, en aðeins
munar örlitlu. Hægt verður að velja
um þrjá rafmótora, grunngerðin
verður með 172 hestafla mótor fyrir
afturhjól, en einnig er hægt að fá
201 hestafla mótor við afturdrifið
líka. GTX útgáfan fær rafmótor við
framdrifið líka svo að aflið fer í 295
hestöf l, en drægið fer líka niður
í 490 km. Viðbragðið er þó mun
betra eða 6,3 sekúndur í hundraðið.
Bílarnir verða með sömu inn-
réttingu og ID.4 sem er sex tommu
skjár í mælaborði ásamt 12 tommu
skjá í miðjustokki. Farangursrými
er líka sex lítrum meira en í ID.4
og fer í 549 lítra. Að lokum kemur
hann með nýrri uppfærslu hug-
búnaðar sem meðal annars leyfir
hraðhleðslu allt að 135 kW í stað
120 kW áður í ID.4. Verður þá hægt
að hlaða bílinn í 80% hleðslu á 26
mínútum. n
Volkswagen ID.5
kemur í vor
Öll helstu mál eru þau sömu en
þakið er meira kúpulaga og loftmót-
staðan minni, eða 0,26 Cd.
um að koma með tvinnútgáfu
af Aygo eins og er, þrátt fyrir að
TNGA-B undirvagninn leyfi það í
Yaris. Sá búnaður tekur pláss sem
ekki er auðvelt að finna í smábíl
sem þessum. Innan í bílnum verður
7 til 9 tommu upplýsingaskjár eftir
hvaða útgáfa er í boði. Allar útgáfur
verða með Apple CarPlay og Andro-
id Auto. Einnig verður Toyota Safety
Sense árekstravörnin staðalbún-
aður. Toyota Aygo X verður aðeins
seldur í Evrópu og verður því fram-
leiddur í Tékklandi þar sem Aygo,
C1 og 108 bílarnir voru framleiddir.
Áætlað er að bíllinn fari í sölu næsta
vor og verð hans mun að öllum
líkindum hækka eitthvað frá fyrri
gerðum. n
Toyota Aygo X
er 50 mm hærri
en áður sem
hækkar stöðu
farþega um 55
mm ásamt því
að farangurs-
rýmið fer í 231
lítra.
BÍLAR FRÉTTABLAÐIÐ 6. nóvember 2021 LAUGARDAGUR