Fréttablaðið - 06.11.2021, Blaðsíða 90
En það
verður að
vera líf í
textanum,
maður
verður að
hleypa
gandinum
á skeið, en
gæta þess
þó að girða
gandreið-
ina af.
Sextíu kíló af kjaftshöggum,
ný skáldsaga Hallgríms Helga-
sonar, er framhald af bók hans
Sextíu kíló af sólskini sem
fékk Íslensku bókmennta-
verðlaunin á sínum tíma.
Þessi nýja bók spannar árin 1903 til
1918. Aðalpersónan, Gestur Eilífs-
son, er átján ára í byrjun bókar og
þrítugur í lokin. „Þessi ár voru ævin-
týralegur tími í sögu landsins, allt
var hægt og allt að gerast, og ekkert
þurfti að fara í gegnum Reykjavík,“
segir Hallgrímur. „Þetta er áfram
saga af fátæku fólki sem er að berjast
fyrir sig og sína. Gestur er orðinn fyr-
irvinna fimm manna heimilis. Hann
eygir hins vegar tækifæri þegar hinir
glæsilegu Eviger-bræður vilja kaupa
gömlu jörðina þeirra, þá sem eydd-
ist í snjóflóði. Fósturfaðir Gests, Lási
gamli, vill hins vegar alls ekki selja.
„Maður selur ekki ógæfu sína.“ Þarna
takast á fortíðin og framtíðin.
Í þessari bók er líka nokkuð um
ástir og kynlíf, því nú er Gestur
kominn á sokkabandsaldurinn,
og líka slagsmál, eins og titillinn
gefur til kynna, því á þessum árum,
hinum svokallaða Norðmannatíma,
ríkti sannkallað villtavestursástand
á Siglufirði. Bærinn byggðist með
hraða gullgrafarabæjanna í Kali-
forníu og sumrin voru nánast ein
samfelld útihátíð. Þótt bærinn teldi
aðeins 50 hús voru þarna 23 leyni-
knæpur, jafnvel á sjálfum bannár-
unum. Og einn löggæslumaður
átti að halda aga á 3.000 norskum
sjómönnum og jafnmörgum inn-
lendum piltum og stúlkum. Mér
fannst þetta heillandi heimur að
vinna úr og niðurstaðan varð sú
að fyrir Norðmönnum var Segul-
fjörður eins konar suðurhafseyja
í norðurhöfum, slarkaraparadís.
Aloha Seglo!“
Kynni við dauðann
Vinnsla bókarinnar kostaði mikla
heimildavinnu. Hallgrímur er
spurður á hvaða hátt heimildavinn-
an skili sér í verkinu. „Hún skilar sér
alltaf. Í stóru og smáu. Ein örsmá
klausa í dagblaði frá 1911 getur gefið
3-4 kafla. Ég verð hins vegar alltaf að
passa mig að grúska ekki um of, bara
passlega mikið, því mér hættir til að
setja allt sem ég kem augum yfir inn
í textann með einhverjum hætti. Í
Seoul 2010 hitti ég Min Jin Lee sem
Heillandi
heimur að
vinna úr
Hver skrifuð
lína á að mynda
möskva í þá
síldarnót sem
sagan skal vera,
segir Hallgrímur.
MYND/SAGA SIG
Úr jólaljóðabók Hallgríms og Ránar Flygenring.
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb
@frettabladid.is
skrifaði síðar Pachinko, hún sagðist
hafa verið í strangri heimildavinnu
í sex ár og það með einni aðstoðar-
manneskju! Þetta gæti ég sjálfsagt
aldrei.“
Dauðinn er nánast eins og leiðar-
stef í byrjun bókar og í raunveru-
leikanum hefur Hallgrímur komist
í kynni við dauðann. „Það er rétt,
dauðinn hefur danglað í okkur
undanfarið. Haustið 2015 fæddi
dóttir mín andvana barn, þá dó
faðir minn fyrir ári síðan og amma
barnanna minna bara fyrir nokkr-
um dögum. Ég er með heila sýn-
ingu í Safnaðarheimili Neskirkju
núna sem fjallar öll um dauðann.
Svo rekst maður á eina setningu í
gamalli frásögn, um barnaveikina
í Ólafsfirði, sem geisaði akkúrat
árið sem Gestur fer þar um, og þá
er maður allt í einu farinn að skrifa
um sóttkví, sóttvarnir og barnslík,
og það áður en Covid skall á. En þá
gat ég gripið til reynslu minnar; ég
hafði séð kornabarn með svartar
varir. Þú sérð ekkert verra en það.“
Skepna með beisli
Blaðamaður hefur orð á að texti
Hallgríms virðist ótaminn. „Ég
vil nú meina að skepnan sé með
beisli,“ segir hann og bætir við: „En
það verður að vera líf í textanum,
maður verður að hleypa gandinum
á skeið, en gæta þess þó að girða
gandreiðina af, sérhver kaf li má
aldrei verða of langur og skal lúta
heildinni. Hver skrifuð lína á að
mynda möskva í þá síldarnót sem
sagan skal vera.“
Sextíu kíló af kjaftshöggum
er ekki eina bók Hallgríms fyrir
þessi jól. Hann sendir einnig frá
sér jólaljóðabókina Koma jól? þar
sem hann kveðst á við fræga bók
Jóhannesar úr Kötlum, Jólin koma.
Rán Flygenring gerir myndir bókar-
innar.
Af hverju að kveðast á við jól
Jóhannesar úr Kötlum? „Þetta kom
yfir mig þegar ég var veðurtepptur
með honum Dodda trommara á
Sigló fyrir síðustu jól. Að kvengera
jólasveinana og enduryrkja Jóla-
köttinn. Grýlukvæði átti ég svo til.
Ég er ekki einn um að hafa fengið
þessa hugmynd en hún greip mig
algerum heljartökum og þetta var
skemmtileg áskorun, að búa til 13
nýja jólasveina sem allir eru kven-
kyns, jólasystur og Grýludætur.
Þær þurftu að vera nýstárlegar og
fordildarlegar í senn, með dassi af
femínisma. Verkefnið var að prjóna
frjálst við þjóðtrúna, uppfæra hana
til nýrra tíma. Úr varð þetta per-
sónugallerí: Bjalla, Grýlurós, Litla
ljós, Fantasía, Stelpustoð, Tösku-
buska, Bokka, Tertuglöð, Fiturönd,
Augasteinastara, Áttavillt, Svanga-
töng og Kortasníkja sem Rán Flyg-
enring gerir svo skil í sínum geggj-
uðu dúkristum.
Síðan bætti ég við nokkrum
strang-einlægum jólakvæðum þar
sem ég lá þarna í heita pottinum
við Hótel Sigló eins og hver annar
Jóhannes í sínum Kötlum.“n
Organisti/Tónlistarstjóri óskast
Sóknarnefndir Brautarholts – og Reynivallasókna Kjalarnessprófasts-
dæmi auglýsa eftir organista/tónlistarstjóra í 30% fasta stöðu við
Reynivallaprestakall frá 1. janúar 2022.
Leitað er eftir einstaklingi sem:
• Hefur metnað fyrir tónlistaþætti helgihaldsins.
• Hefur áhuga á að viðhalda og efla enn frekar öflugan kirkjukór.
• Er tilbúinn í gott samstarf við sóknarprest prestakallsins.
Laun samkv. kjarasamningi organista hjá FÍH og launanefndar
Þjóðkirkjunnar.
Umsóknir skulu sendar rafrænt til bjorn@brautarholt.is
Umsóknarfrestur er til 1. desember n.k.
Allar upplýsingar um starfið gefa:
Björn Jónsson, formaður Brautarholtssóknar
892-3042 - bjorn@brautarholt.is
sr. Arna Grétarsdóttir, sóknarprestur
865-2105 - arna.gretarsdottir@kirkjan.is
50 Menning 6. nóvember 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ