Fréttablaðið - 06.11.2021, Síða 96
Það er draumur í dós
að vinna með Helgu,
hún er gull í gegn.
Íslenska barnamyndin Birta
er komin í bíó og leikstjórinn
Bragi Þór Hinriksson segist
nú þegar vera orðlaus yfir við-
tökunum.
svavamarin@frettabladid.is
„Guð, við erum búin að fá svo góðar
viðtökur að við erum hálf lemstruð
yfir þessu, við fengum þakklát
viðbrögð alveg inn að beini,“ segir
Bragi Þór yfir þeim viðbrögðum
sem hann og konan hans og hand-
ritshöfundurinn, Helga Arnar-
dóttir, hafa fengið. „Við erum í
skýjunum og fólk er svo rosalega
ánægt.“
Að sögn Braga er fólk ekki aðeins
ánægt með að fá nýja barna- og fjöl-
skyldumynd, heldur einnig mynd
úr íslenskum raunveruleika sem
hægt er að samsama sig.
„Myndin virðist vera að koma
með réttan boðskap á réttum tíma
fyrir jólin, sérstaklega á tímum
neyslusamfélagsins sem við lifum
við í dag,“ segir Bragi.
Birta höfðar til Þjóðverja
Þegar Fréttablaðið heyrði í Braga
voru þau Helga nýlent í Þýskalandi
með Birtu í farteskinu og á leið með
hana á sína þriðju kvikmyndahá-
tíð þar í landi. „Þetta er ævintýri
líkast verð ég að segja,“ segir Bragi
afar léttur.
„Þjóðverjinn er ótrúlega hress
með myndina sem er ótrúlega
gaman,“ heldur Bragi áfram og
bætir við að þýskt dreifingarfyrir-
tæki hafi nú þegar keypt réttinn á
myndinni og að hún verði því þýdd
og talsett.
Hingað til hefur verið túlkur
með hljóðnema á öllum sýningum
og þýtt alla myndina „live“ þar
sem hún er á íslensku. Krakkar eru
vanir þessu en okkur finnst þetta
auðvitað mjög fyndið,“ segir Bragi.
Aðalleikkonurnar tvær, þær
Kristín Erla Pétursdóttir, tólf ára,
og Margrét Júlía Reynisdóttir, átta
ára, hafa báðar unnið til verðlauna
í Þýskalandi, hvor á sinni kvik-
myndahátíðinni.
Sannkölluð fjölskyldumynd
Myndin er í raun fjölskyldumynd
í tvennum skilningi þar sem hún
er búin til af fjölskyldum fyrir fjöl-
skyldur. Bragi og Helga eru í sam-
búð og dóttir hennar, Margrét Júlía,
leikur Katrínu yngri systur Birtu.
Bragi fer fögrum orðum um
Helgu sína og segir samstarfið hafa
verið frábært. „Það er draumur í
dós að vinna með Helgu, hún er
gull í gegn og ekki annað hægt að
segja en jákvæða hluti um samstarf
okkar,“ segir hann glaður í bragði.
Hvergi nærri hætt
Birta var frumsýnd í vikunni og
kemur síðan í sjónvarp Símans
Premium 25. nóvember og mun
ganga þar samhliða sýningum í
kvikmyndahúsum.
„Við ætlum að halda áfram að
gera bíómyndir á næstunni og
erum að skrifa handrit fyrir sjón-
varpsþætti,“ segir Bragi og bætir við
að hann ætli að gera spennumynd
næst. „Hún gerist í Þingholtunum,
en ég get ekki sagt neitt frekar um
það ennþá.“ n
Íslensku fjölskylduævintýri
tekið fagnandi í Þýskalandi
Kvikmyndir mánaðarins
fylgdu Fréttablaðinu í
fyrsta skipti í gær. Blaðið
er beintengt Bíóbænum,
nýjum kvikmyndaþætti,
sem verður á dagskrá
Hringbrautar vikulega.
Blaðið mun framvegis
fylgja Fréttablaðinu fyrsta
föstudag hvers mánaðar
með yfirliti yfir væntanlegar
frumsýningarmyndir kvik-
myndahúsanna. Fyrir mis-
tök boðaði blaðið frumsýn-
ingar myndanna Spencer
og House Of Gucci á næstu
tveimur vikum en hið rétta
er að báðar koma þær í bíó
26. nóvember. Beðist er vel-
virðingar á þessu. n
Nýtt bíóblað og sjónvarpsþáttur
Handritshöfundurinn Helga Arnardóttir og leikstjórinn Bragi Þór Hinriksson eru í skýjunum með viðtökur Birtu en
parið vann náið saman að gerð myndarinnar sem Bragi segir að hafi verið draumur í dós. MYND/ AÐSEND
Salka Sól leikur mömmu systranna sem óttast að geta ekki haldið almennileg
jól fyrir þær þannig að Birta tekur málin í sínar hendur með Kötu litlu systur.
56 Lífið 6. nóvember 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 6. nóvember 2021 LAUGARDAGUR