Fréttablaðið - 06.11.2021, Page 98
Í daglegu lífi mínu er
ég mjög hneigður til
svartsýni. Það er eitt-
hvað sem ég reyni að
forðast þegar ég skrifa
skáldskap.
Bandaríski rithöfundurinn
Ted Chiang kemur fram á
furðusagnahátíðinni IceCon
um helgina. Chiang er ein
stærsta stjarna vísindaskáld-
sagnaheimsins um þessar
mundir, en kvikmyndin
Arrival, sem gerð var eftir
sögu hans, vakti heimsathygli
á þessum annars hægláta og
hógværa höfundi.
tsh@frettabladid.is
Ted Chiang hefur sent frá sér tvö
smásagnasöfn, Stories of Your Life
and Others (2002) og Exhalation
(2019), og hafa smásögur hans og
nóvellur unnið til allra helstu verð-
launa fyrir vísindaskáldskap, þar á
meðal fjölmargra Hugo og Nebula
verðlauna. Ted spjallaði við blaða-
mann frá heimili sínu nálægt Seattle
í Bandaríkjunum og spurður hvað
heilli hann við hið stutta form segir
hann:
„Það voru færð rök fyrir því á 6.
og 7. áratugnum innan vísinda-
skáldsagnaheimsins að nóvellan
væri hin tilvalda lengd til að skrifa
vísindaskáldskap. Rökin voru þau
að nóvellan gæfi manni nægt rými
til að kanna eina hugmynd. Smá-
saga gæfi manni ekki nægilegt rými
og í skáldsögunni þarf maður meira
en eina hugmynd til að halda henni
uppi. Það eru ekki allir sammála
þessu en ég er nokkuð fylgjandi
þessum rökum og held að þau eigi
við um mig.“
Arrival hafði mikil áhrif á ferilinn
Þekktasta saga Teds er án efa nóvell-
an Story of Your Life, sem Holly-
wood-myndin Arrival frá 2016 eftir
Denis Villeneuve var byggð á. Ted
segir myndina hafa haft umtalsverð
áhrif á feril hans, enda sé kvikmynd
á vissan hátt 70 milljóna dollara aug-
lýsingaherferð.
„Ég held að velgengni myndarinn-
ar hafi stuðlað að því að ég náði til
víðari lesendahóps. Áður en myndin
kom út voru verk mín aðeins þekkt
hjá fólki sem les vísindasmásögur,
sem er mjög lítill lesendahópur. En
eftir að hún kom út voru verk mín
lesin af fólki sem hugsar ekki um sig
sem lesendur vísindaskáldskapar og
einnig af fólki sem hugsar ekki um
sig sem lesendur smásagna. Þannig
að kvikmyndin hafði mikil áhrif.“
Með heimsfaraldrinum undan
farin ár hefur heimsmynd okkar
orðið sífellt líkari vísindaskáldsögu.
Er erfitt að skrifa vísindaskáldskap
á slíkum tímum?
„Í raun held ég að á vissan hátt
hafi það verið erfiðara fyrir rit-
höfunda sem skrifa ekki vísinda-
skáldskap. Þegar heimsfaraldurinn
braust út voru margir rithöfundar
með skáldsögur í burðarliðnum,
annað hvort að skrifa skáldsögu eða
með skáldsögu í útgáfuferli, skáld-
sögur sem áttu að gerast í nútím-
anum, en minntust ekki á neitt í
líkingu við faraldurinn. Og allt í
einu virtust allar þessar skáldsögur
vera úreltar.“
Svartsýnismaður í daglegu lífi
Sögur þínar eru bjartsýnar að því
leyti að þær forðast þá tilhneigingu
vísindaskáldskapar nútímans að
fjalla um distópíu. Myndirðu skil
greina þig sem bjartsýnismann?
„Í daglegu lífi mínu er ég mjög
hneigður til svartsýni. Það er eitt-
hvað sem ég reyni að forðast þegar
ég skrifa skáldskap. Kannski er ein
ástæðan sú að þegar ég er að skrifa
sögu eyði ég miklum tíma í að hugsa
um hana og ég vil helst ekki þurfa
að eyða miklum tíma í að hugsa um
hræðilegar sviðsmyndir.
Það getur verið mjög auðvelt að
detta í svartsýni. Eins og ég sagði
þá hallast ég í þá átt sjálfur og mér
finnst mikilvægt að berjast gegn
því. Ég vona samt að verk mín séu
ekki einhvers konar blind afneitun
á mögulegum vandamálum,“ segir
Chiang og bætir við að hann vonist
þó til að verk hans sýni fram á að allt
í heimi hér sé hverfult og að það sem
við metum mest muni ekki hverfa. “
Ein af sögum þínum, The Life
cycle of Software Objects, fjallar um
gervigreind. Hefurðu áhyggjur af því
að vélar með gervigreind muni taka
yfir heiminn?
„Nei, ég hef það ekki. Ég held að
það sé miklu meiri hætta á því, og
við erum mjög, mjög nálægt því, að
kapítalismi taki yfir heiminn. Ég
held að þegar fólk talar um óumflýj-
anleika tækniframfara eða vaxandi
yfirráð tækninnar, þá sé það oft að
tjá sig í gegnum rök kapítalismans.
Mikið af þeim hlutum sem fólk segir
að séu framfarir eru í raun bara
öfgakenndara form af kapítalisma.“
Vildi geta skrifað hraðar
Ted Chiang mun ekki mæta í eigin
persónu á IceCon heldur ræða við
gesti hátíðarinnar á fjarfundi. Hann
hefur þó komið þrisvar til Íslands á
eigin vegum og segist kunna vel við
land og þjóð.
„Konan mín og ég elskum Ísland
og vonumst til að geta komið aftur.
Ég var vonsvikinn yfir að komast
ekki á IceCon í eigin persónu þetta
árið.“
Þótt hugmyndaauðgi Ted Chiang
eigi sér fáar hliðstæður er ljóst að
hann tekur sér langan tíma í að
vinna að hverri sögu. Spurður hve-
nær lesendur megi búast við næstu
bók eða sögu segir hann það alls
óvíst.
„Ég veit það ekki. Ég get sagt þér
að það er enginn sem óskar þess
heitar að ég skrifaði hraðar heldur
en ég. Ég vildi gjarnan skrifa hraðar
en ég get bara unnið á þeim hraða
sem ég skrifa. Ef ég get sætt mig við
mína hægu framleiðslugetu þá ætti
annað fólk að geta það líka.“ n
Hefur meiri áhyggjur af
kapítalisma en gervigreind
Ted Chiang við frumsýningu Arrival í Los Angeles 6. nóvember 2016. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Arrival, með Amy Adams, Jeremy Renner og Forest Whitaker, gerði mikið
fyrir feril Teds sem líkir henni við 70 milljóna dollara auglýsingaherferð.
GASTROPUB
HELGAR
BRUNCH
laugardaga og sunnudaga
11.30–14.30
SÆTA SVÍNIÐ // Hafnarstræti 1-3 / Sími 555 2900 / saetasvinid.is
Matseðill og borðapantanir á saetasvinid.is
Eggs benedict, amerískar pönnukökur, mega brunch
og fleiri girnilegir réttir.
NÝR OG
SPENNANDI SEÐILL
58 Lífið 6. nóvember 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ