Fréttablaðið - 06.11.2021, Page 104
frettabladid.is
550 5000
RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is
Óttars
Guðmundssonar
n Bakþankar
Egill afi minn Skallagrímsson
stjórnaði heimilishaldinu á Borg
með frekju og yfirgangi. Eftir
sviplegt fráfall Böðvars sonar síns
hótaði hann fjölskyldunni með
sjálfsvígi og lokaði að sér í lok-
rekkju í frekjukasti. Þorgerði dóttur
hans tókst með lagni að fá hann til
að hætta að haga sér eins óþekkur
krakki í sælgætisbúð. Frekjustjórn-
un, sem er nátengd píslarvættis-
stjórnun, er því gömul aðferð til að
ráðskast með umhverfi sitt. Donald
Trump var hinn mikli meistari
þessara stjórnunarhátta. Hann
skeytti skapi sínu á blaðamönnum
og sakaði þá jafnframt um ofsóknir
gagnvart sér.
Fólk beitir margs konar aðferðum
eins og fýlu, hótunum, reiðiköstum
og sjálfsvorkunn til að hafa stjórn
á umhverfi sínu. Góðum frekju-
stjórnanda tekst venjulega að gera
sig að þolanda og allt sitt umhverfi
að gerendum. Hriflu-Jónas og
Albert Guðmundsson stjórnuðu
gjarnan með skapsmunum sínum
og fóru jafnframt í hlutverk fórnar-
lambsins. Sigmundur Davíð gekk úr
Framsóknarflokknum í frekju-
kasti. Hann sagðist líka hafa orðið
fyrir grimmilegu samsæri. Nýlegt
upphlaup í Eflingu er gott dæmi
um mislyndan foringja sem missir
tökin á aðstæðunum en reynir að
ná þeim aftur með frekjustjórnun
og píslarvætti („starfsfólkið snerist
gegn mér með ofbeldishegðun!“)
Margir óttast að eldast og vilja
varðveita barnið í sjálfum sér. Góð
leið er að hverfa aftur til bernsk-
unnar og stappa niður fótum,
brýna raustina og fara hamförum á
facebook þegar heimurinn er ekki
eins og maður sjálfur vill. Hótana-
og blóraböggulsstjórnun er aftur-
hvarf til þeirra tíma þegar manni
leyfðist allt og meðvirkir foreldrar
uppfylltu hverja einustu ósk. Það er
svo gott og hollt að finna barns-
hjartað slá í góðu frekjukasti! n
Frekjustjórnun
As
tr
id
Li
nd
gr
en
Tryggðu þér gjafakort á borgarleikhus.is
H u n d u r í ó s k i l u m
N J Á L A
Á H U N D A V A Ð I
Fjölbreytt úrval
sýninga fyrir
þig og þína
ORKUNNI
JAFNAÐU
ÞIG HJÁ
Leggðu þitt að mörkum
í loftslagsmálum og byrjaðu
að kolefnisjafna á orkan.is.
Haltu jafnvægi
í rekstri
Bókhald í áskrift með
Business Central