Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2004, Síða 93

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2004, Síða 93
Bergur Hallsson frá Hryggstekk í Skriðdal um kvenhjálp þar á heimilinu um sinn. Það var svo á næsta vori 1861 að Björn tók sig upp frá Veturhúsum með fólk sitt, þar á meðal þau Berg og Kristínu, og flutti burt úr héraðinu, að Grímsstöðum á (Hóls)Fjöllum, hafandi búið 6 ár í Veturhúsum. Grímsstaðir á Fjöllum Hólsfjallabæir voru á þessum tíma fimm talsins: Hóll, Hólssel, Grundarhóll, Víðir- hóll og Grímsstaðir, og voru þeir taldir til Skinnastaðahrepps, og áttu kirkjusókn að Skinnastað sem er alldrjúg leið (15 tíma lestagangur) um Hólssand niður til Axarljarðar. (Síðar varð til Fjallahreppur með kirkju að Víðirhóli). A fyrri tíma voru Grímsstaðir að hálfu eign Skálholtsstóls, en árið 1785 var ákveðið að leggja niður biskupssetur og skóla og sclja jarðeignir stólsins, og skyldi andvirði þeirra renna í konungssjóð. Var Magnúsi Stephensen falið að sjá um sölu stólsjarðanna, og átti andvirðið að renna í konungssjóð. Skyldu menn eiga kost á afargóðum kjörum við kaupin, þ.e. löngum greiðslutíma eða borga eftir hentugleikum, eða jafnvel gleyma afganginum, sem hlýtur að hafa verið einsdæmi í viðskiptum á þeim tíma, en þó voru jarðirnar að seljast langt fram á 19. öld. í Jarðatali Johnsens frá 1847 kemur fram að Grímsstaðir séu bændaeign, en á jörðinni býr hins vegar einn leiguliði (Jón Sigurðsson). Fram kemur að hálflendan sé 6 hundruð að dýrleika, og stólshlutinn forni hafi verið rúm 6 hundruð, og ætti því heildarmat að hafa verið rúm 12 hundruð. Hinn 8. september 1798 var stólshlutinn seldur fyrir 70 ríkisdali, og mætti þá ætla að heildardýrleiki jarðarinnar hafi verið 140 ríkisdalir, sem er í lægri kantinum miðað við Möðrudal sem líka var seldur um svipað leyti íyrir 180 ríkisdali. Ekki kemur fram hver kaupandi var að jörðunum. í Jarðabókinni frá 1861 er matið á Grímsstöðum enn 6 hundruð forn, en nýtt mat komið í 35,2 hundruð, ásamt hjáleigu að nafni Nýibær, en ekki er getið um hvort jörðin er setin af eiganda eða leiguliða. Geta má þess hér til samanburðar að jörðin Breiðavað í Eiðaþinghá, sem var eign konungs og Skálholtsstóls að hálfu hvor, og var að fornu mati 12 hundruð að dýrleika, var seld hinn 9. september 1836 fyrir 864 ríkisdali samtals, sem er skrítilega hátt verð miðað við ýmsar jarðir víðs vegar, og hlýtur að vera einhver vitleysa. Ekki er að sjá að jörðin hafi vaxið að verðgildi undanfarin ár, því í Jarðabókinni frá 1861 er nýtt mat á Breiðavaði aðeins 13,8 hundruð sem varla er nema í meðallagi miðað við jarðir þar um slóðir og þó víðar sé leitað. í Sveitum og jörðum kemur fram að ýmsir ókostir fylgja jörðinni,- hún á ekki land til íjalls, þ.e. hefur vantað upprekstrarland, og vetrarbeit var í lakara lagi og engjaheyskapur var aðallega í blám. Allt þetta hlýtur og að hafa átt við á 19. öld. Einhverra hluta vegna fluttu þau gömlu Grímsstaðahjón Jón Sigurðsson og Guðrún Arngrímsdóttir (8138- 9506) burt þaðan, að Hauksstöðum í Vopnafirði vorið 1860, en í Grímsstaði komu bræður tveir frá Hauks- stöðum, þeir Sigfús og Jósep Jósepssynir með konur sínar og skyldulið, en geta má þess að Guðrún var föðursystir þeirra bræðra. Þessi skipan mála varð þó ekki langvarandi, því vorið eftir flutti fólkið til Vopnaljarðar á ný, en Jón og Guðrún komu aftur frá Hauksstöðum til síns forna býlis Grímsstaða. Það sama vor (1861) kom svo Björn Gíslason frá Veturhúsum í Grímsstaði ásamt sínu skylduliði. Ekki mun það hafa verið að ófyrirsynju að Björn Gíslason flutti í Grímsstaði, því raunar mun hann, áður en til þess kom, hafa 91
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.