Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2012, Síða 31

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2012, Síða 31
Plíníus íslands illskeyttur og siðlaus. Spratt það út af heitkonu Guðmundar, sem var þjónustustúlka hjá Ólafí. Guðmundur ákærði Olaf í kirkju sinni fyrir að ætla að komast yfir stúlkuna, en þegar hann fékk því ekki framgengt hefði hann veikt hana með göldrum. Málið snerist í höndum Guðmundar, og leiddi til þess að Olafur fór að rifja upp galdrarykti Jóns og ákæra hann. Varð hann upp frá því helsti ofsækjandi Jóns lærða. Jón vandar honum ekki kveðjur og kallar hann Náttúlf o.fl. ónefnum í ritum sínum. Ólafur fékk Guðmund dæmdan frá embætti vorið 1630, og Jón „lýstan óalandi“ á leiðarþingi sama ár, sem þýddi að enginn mátti liðsinna honum, nema að viðlögðu straffí. Bú þeirra Sigríðar var rænt, og yngri synir þeirra tveir hraktir frá þeim. Munu þeir hafa látist ekki löngu síðar. Guðmundur hefur þá líklega gerst skrifari hjá Gísla biskupi Odds- syni í Skálholti, en Jón var fýrst á Kjalarnesi á vegum Arna lögmanns, síðan á hrakningi. Næsta sumar, 1631, skaut Jón málum sínum til Alþingis. Þar var hann ekki fund- inn sekur, en Ólafur flutti hann engu að síður í jámum til Bessastaða, og setti í dýflissu. Þar mátti Jón dúsa fram eftir sumri við ýmis harmkvæli og jafnvel pyntingar, að eigin sögn. Þann 1. ágúst 1631 skipaði umboðsmaður 6 presta og 6 bændur úr nágrenninu í dóm, og lét dæma Jón útlægan fyrir meðferð galdrakvers nokkurs, sem lagt var fram, og bar titilinn: Bót eður viðsjá við illu ákasti. Það mun nú vera glatað, en helstu efnisatriði em þekkt úr fyrr- nefndu riti Guðmundar prófasts á Staðastað. í kverinu var aðallega fjallað um varnarráð gegn hvers konar meinum, illum verkum og slysum, og til þess gefnar ýmsar formúlur og rúnir. Jón játaði að hafa ritað eða afritað kverið, en neitaði að hafa notað það öðrum til meins. Dæmt var eftir konungsbréfi „um ketterí“ frá 1617, sem margir efuðust um að gilti fyrir íslendinga. Á þessum tíma hafði aðeins einn maður verið dæmdur á bál fyrir galdra hér á landi, Jón Rögnvaldsson úr Svarfaðardal, 1625, og sá næsti var ekki brenndur fyrr en 1648. Telja fróðir menn, að hefði þessi dómur gengið um tveimur áratugum seinna, hefði Jón ekki sloppið við bálið. Þó sannaðist aldrei að hann hefði notað galdur til að gera öðmm mein. Auk þess átti Jón oftast hauka í homi meðal embættismanna, eins og fram hefur komið. Hann var því betur settur en ýmsir aðrir sem fengu á sig galdraorð. Ljóst er að þarna fóru konungsmenn fram með miklu offorsi vegna persónulegrar óvildar á Jóni og syni hans, svo mörgum Islendingum þótti nóg um, en fengu þó ekki rönd við reist. (Þess má geta að árið 1600 var Giordano Bruno brenndur fyrir ,villutrú‘, þá orðinn frægur heimspekingur og vísindamaður, og 1633 var Galileo Galilei neyddur til að að afneita sólmiðjukenningu sinni til að forðast að hljóta sömu örlög.) Afdrep á Austurlandi Eftirþennan ,Öskuhaugsdóm‘ á Bessastöðum, sem Jón kallar svo, fer hann „þessa troðnu sakamannagötu til Austurlands“, eins og Benedikt Gíslason orðar það, en hana hafa ýmsir gengið, bæði á undan og eftir honum, og fengið griðland. Svo virðist sem Austfirðingar hafi almennt verið umburðarlyndari gagnvart dómhörku aldarfarsins en aðrir landsmenn. Ef til vill skipti íjarlægðin frá miðstöð konungs- valdsins sköpum í því sambandi. Væri það verðugt rannsóknarefni. Jón var nú réttlaus maður, útlagi í eigin landi. Með þetta dapurlega vegamesti leggur hann í þessa nauðungarferð norður og austur um land, einn á hesti. „Á Langanes / til landsenda / skikkað var mér/ að skrölta þangað,“ segir Jón í ævikvæði sínu Fjölmóði (248 vísa), líklega vegna þess að lengra varð ekki komist á íslandi frá Bessa- stöðum! Á eftir þessum hendingum er eyða í Fjölmóði, og telja sumir að þar hafí um 20 vísur tapast, í þeim hefur hann lýst ferðalagi sínu um ókunnar slóðir. Guðbrandur biskup 29
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.