Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2012, Page 71

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2012, Page 71
Útlagi borgaralegs þjóðfélags Nýr maður kom í plássið „En svo var það í stríðsbyrjun að nýr maður kom í plássið. Sá hafði verið á Spáni í her lýðveldissinna, barist gegn Hitler, Mússólíni og Frankó og skotið menn. Sjálfur bar hann ör eftir byssukúlur, miklu stærri en þau, sem Sunnlendingurinn úthlutaði forðum úr bauna- byssu sinni. Þetta var Halli heitinn Spánarfari. Og ofan á allar fyrrgreindar dáðir bættist svo haldgóð hnefaleikakunnátta með slíkri einurð og snerpu, að það skeði ávallt samtímis ef til bar, að einhver reiddi til höggs gegn honum, að sá hinn sami lá flatur undir kjaftshöggi. Við Halla Spánarfara tjóaði engum að slást. Hann hafði orðið mannsbani. Það var óvéfengjanlegt að Halli Spánar- fari var þá svalasti kall á Austurlandi og helzt eftirbreytniverður fyrir unga menn. Var þá ekki verið að hneykslast á því, fyrst út í það var komið á annað borð, þótt Halli Spánarfari væri frábitinn slarki. Menn höfðu nú gert annað eins á Norðfirði, til að teljast menn með mönnum, og það að vera alls- gáðir. Liðu ekki margar vikur frá heimkomu Halla Spánarfara áður en sú fregn barst út um gjörvalla Austfirði, að haldið hefði verið ball á Norðfírði og enginn sleginn niður. Að þeim tíðindum sannspurðum urðu menn ekki eins hissa er það fréttist enn nokkrum vikum síðar að dansleikur hefði verið haldinn á Norðfirði og enginn verið fullur. Vitaskuld var Halli Spánarfari mikill kommúnisti, sem prédikaði yfírNorðíjarðar- æskunni boðskap hinnar nissnesku byltingar og fullvissaði áijáða tilheyrendur sína um að þessháttar bylting yrði ekki gerð á fylliríi. An þess að varpa rýrð á hlut Lúðvíks alþingismanns, Bjarna bæjarstjóra né annarra forsprakka sósíalismans á Austurlandi, leyfí ég mér að staðhæfa, að Halli Spánarfari hafi átt drjúgan þátt í því geðeðlisfræðilega afreki, að lita sprittlogann, sem lengi hafði borið sína bláu birtu á mannlíf Norðfirðinga, rauðan.“6 Bjólfsgata 1 á Seyðisfirði, árið 2002. í nóvember 1942 var dvöl Hallgríms á Norðfírði hins vegar stutt. Fáeinum dögum eftir kaffifundinn var hann kominn til Seyðis- íjarðar til að hitta sitt fólk þar. Fundir á Seyðisfirði Stjórnarfundur var haldinn í Sósíalistafélagi Seyðisijarðar 9. nóvem- ber 1942. Fundurinn var haldinn hjá Steini Stefánssyni í Tungu (Bjólfsgötu 14), og má ætla af fundargerðinni, að í stjórninni hafí setið Níels SigurbjörnJónsson. c, Steinn Steíansson, kenn- ari, Ingvar S. Jónsson, verkamaður, Þorkell Bjömsson, verkamaður, Vilhjálmur Sveins- son, verkamaður og Baldur Guðmundsson. Auk stjómarinnar var Hallgrímur Hall- grímsson, erindreki flokksins, mættur á fundinn. Þarna voru rædd vetrarverkefni og samþykktar tillögur um fundartíma og fiindarstað framvegis, en varan- legan fundarstað skorti félagið. Fundarritari var Baldur Guðmundsson.7 Hallgrímur var einnig á öðmm fundi á Seyðis- IngiríðurÓskHjálmarsdóttir. firði þeSSa dagcl. 69
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.