Heilsuvernd - 01.08.1948, Qupperneq 14

Heilsuvernd - 01.08.1948, Qupperneq 14
6 HEILSUVERND Framþróun alls lífs byggist á samræmi og samstarfi. — Leiðin til heilbrigði liggur gegnum lifandi og heilbrigðan jarðveg og lifandi og heilbrigðar jurtir, sem eru hinar eðli- legu fæðutegundir mannsins. Jarðvegurinn er sem sé morandi af lífi, sé hann rétt hirtur. Þar eru gerlar, skordýr og lindýr, sem búa jurtun- um í hendur rétta og auðtekna næringu. En til þess þarf jarðvegurinn að fá réttan áburð. Nú hefir þessu samræmi verið raskað með því að ausa dauðum, tilbúnum áburði yfir jörðina í stað hins lífræna áburðar. Úr slíkum jarðvegi vaxa sjúkar jurtir, sem eru þess ekki megnugar að veita dýrum eða mönnum fullkomna heilbrigði. Ekkert annað en afturhvarf til náttúrlegra hátta getur bjargað við hinu dvínandi heilsufari. Og þá fyrst, er vís- indunum verður að því beint, að vinna í samræmi við lög- mál lífsins, getum vér orðið fullkominnar heilbrigði og lífssælu aðnjótandi. Nýsköpun er orð á hvers manns vörum hér á landi. En sú nýsköpun stefnir aðeins að útvegun og framleiðslu efnis- legra verðmæta, en ekki að eflingu líkamlegrar eða and- legrar heilbrigði eða að friðsamlegu samstarfi einstaklinga og þjóða. Vér megum aldrei gleyma því, að oss íslendingum, eins og öðrum þjóðum, hefir verið fenginn fjársjóður í hendur til þess að ávaxta og auka. Þessi fjársjóður er heilbrigði og þroski, samúð og manngöfgi. Bregðumst vér því trausti, sem oss er með þessu sýnt, höfum vér fyrirgert tilveru- rétti vorum til að lifa á þessari jörð. Önáttúrlegar lífsvenjur eru leiðin til sjúkdóma og al- deyðu. Leiðin til þroska og fullkomnunar er náttúrlegar lífs- venjur. Sjúkdómar eru engin tilviljun. Þeir eru ekki forlög, heldur álög eða ólög sjúkrar menningar, afleiðing vanþekk- ingar á því lögmáli, sem ríkir í alheimi, lögmáli framþróun- ar lífsins.

x

Heilsuvernd

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.