Heilsuvernd - 01.08.1948, Side 18

Heilsuvernd - 01.08.1948, Side 18
10 HEILSUVERND Einn daginn flutti frú Waerland erindi um sambandið milli sálar og líkama. Hún er afburða snjöll fyrirlesari, stór- gáfuð og menntuð kona, prýðilega skáldmælt og ritfær vel, og hin bezta stoð og stytta manns síns í baráttu hans og starfi. — Dan Áberg, einn fyrsti og bezti stuðningsmaður Waerlands í Svíþjóð, flutti erindi um föstur sem læknisráð, og í annað skipti sýndi einn þátttakandi námskeiðsins, hjúkrunarmaður frá Rauða krossinum, hjálp í viðlögum. Kl. 17 var drukkið te eins og að morgninum, og kl. 18 var svo snæddur kvöldmatur, sem var grænmeti, kartöflur, súrmjólk og súr undanrenna, brauð, smjör og ostar. Kart- öflurnar voru bæði soðnar og hráar, en allt annað var ósoð- ið: Salat, tómatar, gúrkur, hvítkál, blómkál, rifnar gul- rætur og rauðrófur, laukur, graslaukur, persille, gulrófur o. fl. Eftir kvöldmat skemmtu menn sér í leikfimishúsi skól- ans við söng og dans, aðallega hringdansa, sem enn eru í hávegum hafðir í Svíþjóð. Sum kvöldin voru umræðu- fundir um ýms mál varðandi kenningar Waerlands og viðhorf waerlandista til ýmissa vandamála. Tóku þau Waer- land og kona hans að jafnaði þátt í þeim umræðum, og blés Waerland alltaf lífi í þær með mælsku sinni og óbil- andi fyndni og fjöri. Á bak við leikfimishúsið hafði verið sett upp finnsk baðstofa: Með ofni af sérstakri gerð (nota má líka venju- legan ofn og jafnvel rafmagnsofn) er loftið í baðstofunni hitað upp í 80 stig á Celsíus eða meira. Vegna þess að engin gufa kemst að, svo að loftið er mjög þurrt, þola menn vel þennan hita, og eftir fáeinar mínútur brýzt svitinn út og rennur af manni í stríðum straumum. Þarna gátu 4-5 menn setið í einu, og var deginum skipt milli karla og kvenna. Þessi „þurru“ böð eru talin miklu betri og heil- næmari en gufuböð, og mun verða sagt nánar frá þeim síðar hér í ritinu. Síðasta dag námskeiðsins fór fram skriflegt próf, og áttum við að svara 10 spurningum. Þegar Waerland hefir

x

Heilsuvernd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.