Heilsuvernd - 01.08.1948, Page 25

Heilsuvernd - 01.08.1948, Page 25
HEILSUVERND 17 mig þar, þótt kunningjar mínir fari alla leið suður til Flórída, til þess að hressa sig. Mér þótti gaman að horfa á Ara Guðmundsson synda og verða á undan Englendingnum og Pakistan í sínum riðli. En Ara og alla hina íþróttamennina okkar vantaði þrekið, orkuna, úthaldið, þegar á átti að herða. Ari var ágætur fyrstu 50 stikurnar, en svo varð hann slappari en hinir, sem hann keppti við; þeir áttu þrekið til þess að herða á sér, en það gat Ari ekki. G. E.: Hver er orsökin? S.P.: Hún er sú að mínu áliti, að hann og alla hina íþrótta- menn okkar og konur vantar betri og þróttmeiri næringu, ekki bara þessa dagana, sem þeir kepptu í London, heldur alla hina dagana og vikurnar, sem þeir eru að þjálfa sig og undirbúa undir hina miklu — hina mestu allra íþrótta- þrekrauna — ólympíuleikana. En úr því að menn og konur frá öðrum þjóðum geta afrekað þeim þrekraunum, sem þarf til þess að vinna á Olympíuvöllum, þá getum við það líka. Við höfum fuilkom- inn líkamsvöxt, æfingahús og velli — en okkur vantar bara þrekið, og leiknina. — G. E:. Þeir kvarta yfir slæmu mataræði? S. P.: Eg álít það vera smán fyrir ólympíunefndina, að hafa undirbúið förina svo slælega, að íþróttamennirnir okkar skyldu verða hungraðir í London. Ekki vantaði þá peningana til þess að kaupa matinn fyrir, og ekki vantaði þá flugsamgöngurnar, það voru stundum 2 fjögra hreyfla skýjakljúfar á dag. En ólýmpíunefndina hefir líklega vant- að annan ,,ambassadör“ en þann, sem hún hafði, til þess að hafa matinn handa íþróttafólkinu í lagi. Ekkert var hægara eða auðveldara, G. E.: Hvernig líkaði þér mataræðið? S. P.: Áður en eg fór, þá vissi eg hvaða mat Eng- lendingar nota og hvaða mat þeir hafa á boðstólum, og þó hefi eg ekki komið til Englands s.l. 10 ár. Eg hafði með mér til öryggis þorskalýsi, sem eg drakk

x

Heilsuvernd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.