Heilsuvernd - 01.08.1948, Qupperneq 35

Heilsuvernd - 01.08.1948, Qupperneq 35
Björn L. Jónsson: N/tt næringarefni fundið Langt fram eftir síðustu öld héldu læknar og næringar- fræðingar, að líkaminn þyrfti ekki á öðrum næringarefn- um að halda en eggjahvítu, fitu og kolvetnum, auk vatns. Þá uppgötvuðu menn þýðingu steinefnanna í fæðunni, og á fyrstu tugum 20. aldar fundust fyrstu fjörefnin. Þekkja menn nú að meira eða minna leyti fjörefni svo tugum skiptir, og enginn veit, hvenær séð verður fyrir enda þeirra. Þá hafa og fundizt efnakljúfar (enzym), og öll eru þessi næringarefni nauðsynleg til viðhalds líkamanum og full- kominni heilbrigði hans. Ef eitt þeirra vantar, fer eitthvað aflaga. Margir hafa spáð því, og hefir verið að því vikið hér í ritinu og öðrum bókum NLFÍ, að langt væri frá því, að öll kurl væru til grafar komin í næringarefnafræðinni. Það ætti langt í land, að þekkt væru öll þau efni, sem nauðsynleg eru lífi og heilsu og hægt er að afla sér í óspilltum matvælum,rétt framleiddum, nýjum og óskemmd- um. Þrátt fyrir öll hin dásamlegu afrek efnafræðinnar megnar hún ekki — og verður ef til vill aldrei fær um — að kanna til hlítar efnasamsetningu og aðra leyndardóma græna blaðsins, hveitikornsins, eplisins, mjólkurinnar. — Efnafræðingarnir geta ekki efnagreint lifandi vefi. Við efnagreiningu græna blaðsins fara forgörðum efni eða eig- inleikar, sem hafa sína þýðingu fyrir líf og heilsu. Tilvera sumra þessara viðkvæmu efna má finna með fóðrunar- eða næringartilraunum. Þannig hafa flest fjörefni fundizt með því að rannsaka, hvaða sjúkdómsbreytingar koma fram í tilraunadýrunum við vissa meðferð matvælanna, sem þeim eru gefin, eða visst val matvæla. Gallinn við allar

x

Heilsuvernd

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.