Heilsuvernd - 01.03.1952, Side 18

Heilsuvernd - 01.03.1952, Side 18
14 HEILSUVERND er hún litlum vandkvæðum bundin, ef næg hráefni eru fyrir hendi. Blöndun þeirra lærist furðanlega fljótt. Áður en lengra er haldið í lýsingu á gerð safnhauga, vil ég fyrst gera nokkra grein fyrir því, hversvegna húsdýra- áburður er settur í safnhauga, en ekki notaður eins og hann kemur fyrir. Safnhaugaáburður er búinn til, svo að hinn lífræni áburð- ur fari ekki hrár út á landið. Með þessu er átt við það, að allur lífrænn áburður verður að ummyndast fyrir áhrif jarðvegsgerlanna, áður en hann getur komið jurtinni að gagni. Ef þessi ummyndun hefir átt sér stað, áður en á- burðurinn er borinn á landið, kemur hann gróðrinum þeg- ar að notum, ella fer hún fram í jarðveginum, að miklu leyti á kostnað komandi uppskeru. Hve vel haugurinn eigi að ummyndast, eru menn ekki á eitt sáttir um. Sumir hafa hann fullunninn, en aðrir hálf- unninn og láta hann fullvinnast á akrinum og telja landið hafa betra af. Þegar safnhaugaáburður er gerður úr jurtaleifum, verð- ur að gæta þess, að áburðurinn sé ekki notaður á sömu jurtategund og lagði til efnið í hann. Tómatar eru þó undan- tekning frá þessari reglu, og er sjálfsagt að nota úrgang frá tómötum sem áburð í tómatahús, og sé úrgangurinn fyrst settur í safnhaug, er engin hætta á sýkingu af hans völd- um. 1 safnhaug er hægt að nota allt, sem til fellur úr mat- jurtagörðum. Illgresi, skemmt hey og hálmur er notað í stórum stíl. Sag má einnig nota, en ekki meira en um 5%. Pappír er einnig notaður, en í prentsvertu og bleki eru sterk eiturefni, sem bezt er að ekki sé of mikið af. Þang er líka notað, og þar sem hægt er að hirða trjálauf, er mikill feng- ur í því. Slíkur tíningur borgar sig þó ekki nema við litla garðhauga. Bezt er að nota sem allra fjölbreyttastar tegundir af jurtaleifum í hauginn til að tryggja, að hinni alhliða efna- þörf jurtanna verði fullnægt.

x

Heilsuvernd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.