Heilsuvernd - 01.03.1952, Side 20

Heilsuvernd - 01.03.1952, Side 20
16 HEILSUVERND Þegar haugurinn er orðinn kaldur, sem oft er ekki fyrr en eftir 2 mánuði, er honum bylt við og þess gætt, að það, er áður sneri inn, snúi út. Eftir að haugnum hefir verið bylt, verða gerlarnir mun stórvirkari en áður. Hitinn hefir minnkað mikið, og þessir gerlar þurfa ekki súrefni úr loft- inu (anaerobia) og því ekki nauðsynlegt að skilja eftir op fyrir loft eins og í fyrra skiptið. Þegar haugurinn er orðinn fullunninn, er hann orðinn að fínni, lyktarlausri mylsnu. Safnhaugar hafa verið gerðir í hvaða stærð sem vera skal, allt frá smáhaugum í rimlakössum og bylt með gafli, upp í hauga, sem rúma þúsundir tonna og bylt er með jarðýtu. Framhald. AMERlSKUR LÆKNIR LEGGUR ORÐ I BELG. Við háskólann í Ohio i Bandaríkjunum var nýlega haldið þing, sem fjallaði um næringar- og heilbrigðismál. Þekktur læknir og rit- höfundur, dr. med. Philip Norman, komst þar að orði eitthvað á þessa leið: Orsakir langvinnra sjúkdóma og flestra annarra sjúk- dóma eru gerilsneyðing og suða matvæla, sigtun og hreinsun mjöls og sykurs og í einu orði sagt: mataræðið. Við læknar og næringar- fræðingar breytum ekki eftir því, sem. við vitum og segjum vera líkamanum fyrir beztu, og þessvegna erum við jafnsjúkir og sjúk- lingar okkar. Við gerum við og löppum upp á sjúka líkama, til þess að þeir megi endast lengur. En þótt við getum dregið úr þján- ingum og smitunarhættu með ýmsum ráðum, á það ekkert skylt við það að byggja upp hraustan líkama. Við langvinnum sjúkdómum getum við sáralítið, þótt sérfræðingar séu fyrir hvert líffæri og allskonar vísindaleg tæki og tækni. Þrátt fyrir þetta aukast hrörn- unarsjúkdómarnir, blóðþrýstingurinn hækkar, æðarnar harðna, hjart- að ofreynist og heilinn hrörnar. Og við læknar horfum upp á þetta án þess að reyna að stöðva hrörnunina. Við leggjum allan okkar metnað í að berjast við sjúkdómseinkenni, með sæg af skínandi á- höldum. Félög eru stofnuð og sjóðir fyrir berklasjúklinga, gigtar- sjúklinga, hjartasjúklinga, krabbameinssjúklinga o. s. frv. Og menn velta enn vöngum yfir orsökum þessara sjúkdóma, enda þótt merkir og kunnir vísindamenn frá ýmsum löndum hafi leitt að því gild rök og jafnvel sannanir, byggðar m. a. á vísindarannsóknum og langri reynslu í sjúkrahúsum, að daglegt viðurværi sé meginorsök flestra sjúkdóma. Ef við lifðum á ósigtuðum, nýjum kornmat, aldinum og grænmeti, að sem mestu leyti ósoðnu, ræktuðu með lífrænum að-

x

Heilsuvernd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.