Heilsuvernd - 01.03.1952, Síða 23

Heilsuvernd - 01.03.1952, Síða 23
HEILSUVERND Hálldóra Jóhannsdóttir: Sölnun og þurrkun drykkjarjurta. Undanfarna vetur hefir íslenzkt te verið framreitt á skemmtunum Náttúrulækningafélagsins í Reykjavík og við nokkur önnur tæki- færi. Hefir drykkur þessi þótt hinn ljúffengasti og standa fyllilega á sporði venjulegu tei. Auk þess er drykkurinn hinn heilnæmasti og inniheldur engin skaðleg efni, eins og kaffi eða venjulegt te. Ætti hann því skilið að verða útbreiddur og helzt að öðlast heiðurssessinn sem þjóöardrykkur Islendinga. Margir hafa spurt, hvar ofangreindar drykkjarjurtir fengjust eða hvernig hægt væri að afla þeirra. Þær hafa komið frá Sauðárkróki, og hefir höfundur þessarar greinar safnað þeim í tómstundum sin- um og látið þær í té fyrir sanngjarnt verð, en því miður ekki svo mikið, að hægt væri að hafa þær til sölu í verzlunum, Á fundi í NLFR skýrði Halldóra nýlega frá aðferðum sínum • við söfnun og þurrkun þessara jurta, og nú hefir hún góðfúslega orðið við tilmæl- um Heilsuverndar um að skýra lesendum frá þeim. Mætti þetta verða til þess, að sem flestir taki til við söfnun jurta næsta sumar og afli sér þannig á ódýran og handhægan hátt nægilegs vetrarforða. Þá eru það einnig tilmæli Heilsuverndar til lesenda sinna, að þeir safni slíkum jurtum til sölu. Síðasta verð, sem greitt var fyrir jurtir þess- ar, var 100 krónur fyrir kílógrammið. Og jafnvel þótt verðið væri hærra, mundi drykkurinn verða miklu ódýrari en kaffi og jafnvel útlent te. Síðastliðin fjögur sumur hefi ég fengizt við að safna í tómstundum mínum villtum jurtum. Fyrst í stað safnaði ég

x

Heilsuvernd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.