Heilsuvernd - 01.03.1952, Síða 30

Heilsuvernd - 01.03.1952, Síða 30
26 HEILSUVERND Ameríski læknirinn Rasmus Alsáker, höfundur greinar- innar um mataræði ungbarna í Nýjum leiðum II, segir svo frá í nýútkomnu hefti af tímaritinu Health Culture (Heilsu- rækt): „Fyrir 15 árum kom til mín maður um hálffimmtugt. Hann óttaðist, að hann væri að fá liðagigt, því að á morgn- ana voru hendur hans stirðar. Hann var 15—20 pundum of þungur. Hann hafði stóra vessandi vörtu utan til á öðrum fætinum. Að ráðum mínum fór hann að drekka meira vatn en áður og borða meira af aldinum og grænmeti. Hinsvegar hélt hann áfram að borða mikið af sterkjufæðu og sætind- um, þannig að hann léttist ekki. öll merki um byrjandi liða- gigt hurfu þó, og liðanin varð betri, en vartan vildi ekki gróa eða hverfa. Vorið 1950, er hann varð sextugur, fór hann loks að ráð- um mínum um að draga úr neyzlu brauðmatar og sætinda. Á mánuði léttist hann um 3 pund, og vessinn úr vörtunni rénaði. I lok annars mánaðarins hafði sárið minnkað. Eftir 5 mánuði hafði hann létzt um 16 pund, og sárið var alveg gróið. Húðin er falleg og mjúk, og í fyrsta sinn í 30 ár er tungan hrein. Það er eftirtektarvert, að sárið hélzt óbreytt í 15 ár, þrátt fyrir nokkra leiðréttingu lifnarháttanna. En gagngerð breyting mataræðisins og hæfileg megrun læknaði það á einum 5 mánuðum. Annan sjúkling hafði ég með sár á vinstra fótlegg út frá beinbólgu (osteomyelitis). Hann var alltof feitur. Ýmis lyf og skurðaðgerðir höfðu verið reyndar, .einnig penisillín, en sárið versnaði með hverju árinu, sem leið. Þegar hann kom til mín, var hann um 50 pundum yfir eðlilega líkams- þyngd. Fóturinn leit mjög illa út. Eg gaf sjúklingnum ekki mikla von, en hvatti hann til að megra sig og breyta fæði sínu. Árangurinn varð undraverður. Á 3 mánuðum náði hann eðlilegri þyngd, og sárið læknaðist til fulls.“

x

Heilsuvernd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.