Heilsuvernd - 01.09.1959, Síða 11

Heilsuvernd - 01.09.1959, Síða 11
HEILSUVERND 73 ir truflun á spírun fræja og myndun ávaxta, og uppsker- an verður lakari að gæðum. Og að því kann að koma von bráðar, að uppskeran bregðist með öllu og jarðveg- urinn glati gróðurmagni sínu. Þannig eru framtíðarhorf- urnar að áliti fræðimanna. M. a. hafa vísindamenn í Þýzkalandi og Frakklandi látið þá skoðun í Ijósi, að ef kjarnasprengjutilraunum verði haldið áfram, verði jörð okkar óbyggileg ekki síðar en að 20 árum liðnum, þá verði engu lífi vært á jörðinni. Franskur frumeindafræðingur, dr. Noel-Martin, skýrði svo frá fyrir nokkrum árum, að við kjarnasprengingar breyttist hluti af köfnunarefni loftsins í geislavirkt kol- efni, C14, og ennfremur að þegar hefði orðið vart stökk- breytinga hjá jurtum vegna geislaverkana. Síðan hafa fundizt breytingar á erfðastofnum hjá dýrum og mönn- um, auk annarra sjúklegra breytinga. Prófessor Miiller, frumeindafræðingur í Argentínu, hefir bent á aðra hættu af auknu geislamagni. Það er kunnugt, að lofthjúpur jarðar verndar allt líf á jörðinni gegn eyðandi geislum sólar. Nú hefir prófessor Múller fundið, að kjarnasprengingar draga úr þessum varnar- mætti gufuhvolfsins, og á þann hátt er öllu jarðnesku lífi einnig hætta búin af völdum sprenginganna. Timaritið Constance bendir á það í ritgerð, sem áður er vitnað í, að mælingar á geislavirkni andrúmsloftsins gefi ekki rétta hugmynd um hættuna af hinu síaukna geislamagni í umhverfi okkar. Ástæðan er sú, að hin geisla- virku efni safnast líka í vatn og matvæli og geta verið þar ekki aðeins í þúsundföldu heldur allt upp í milljón- földu magni miðað við andrúmsloftið. Þannig geta mjólk og mjólkurafurðir verið þúsund sinnum geislavirkari en loftið. 1 öðrum matvælum getur geislamagnið verið mörg- um sinnum meira, eins og nú skal sýnt. 1 útvarpserindi hefir Albert Schweitzer skýrt frá rann- sóknum á vatni úr Columbiafljóti í Norður-Ameriku, en grunur lék á auknu geislamagni þar vegna frárennslis frá

x

Heilsuvernd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.