Heilsuvernd - 01.09.1959, Page 13
HEILSUVERND
75
inga, einkum áður en mönnum lærðist að verjast að
nokkru banvænum áhrifum þeirra.
Langt er síðan læknar byrjuðu á notkun röntgen- og
radíumgeisla. Til þess að fá hugmynd um áhrif þessara
geisla á afkomendur þessara lækna, hefir verið gerður
samanburður á nýfæddum börnum þeirra og annarra
lækna. Voru teknir 3000 læknar úr hvorum flokki. Rann-
sóknin sýndi verulegan mun á börnum almennu læknanna
og geislalæknanna, enda þótt þeir viðhafi nú orðið allar
venjulegar varúðar- og varnarráðstafanir gegn skaðlegum
áhrifum geislanna. Af börnum geislalæknanna fæddust
andvana 14 af þúsundi, en 12 af börnum hinna. Meðfæddir
gallar fundust hjá 6% barna geislalæknanna, en hjá 4.8%
af börnum hinna. Af börnum geislalæknanna voru 80%
heilbrigð, en af börnum hinna 83%.
Skýrslur frá Ameríku sýna, að meðal afkomenda geisla-
lækna er krabbamein helmingi tíðara en meðal annarra
stétta.
Það þarf ekki nema mjög lítið geislamagn til að valda
alvarlegum truflunum á afkomendum, ef það fær að verka
gegnum marga ættliði. Áhrifin geymast í erfðastofnunum
og aukast með hverjum nýjum ættlið, eins og sýnt hefir
verið með tilraunum á dýrum, m. a. á flugum, gegnum
fjölda ættliða. Á jurtum hafa einnig komið fram stökk-
breytingar af sömu orsökum. Og i dagblöðunum er stund-
um sagt frá vansköpuðum dýrum, t. d. afskræmdum frosk-
um, sem fundust í vatni einu í Hollandi, en í það féll af-
rennsli frá kjarnorkuveri, og frá vansköpuðum fiskum,
sem veiðst hafa í úthöfunum í grennd við staði, þar sem
kjarnasprengingar hafa farið fram.
----O-----
Albert Schweitzer bendir á, að fram til þessa hafi menn
aðallega komizt í kynni við heilsutjón af völdum geislunar
utan frá. Þá verða geislarnir að brjótast gegnum húð,