Heilsuvernd - 01.12.1979, Page 21

Heilsuvernd - 01.12.1979, Page 21
á öll þau íblöndunarefni, sem notuð eru í matvæli, ýmist til að fegra útlit þeirra (litarefni) eða breyta bragði þeirra. Mörg þessara efna hafa reynst skaðleg heilsu manna, einkum sem krabbameinsvaldar, og hafa verið bönnuð, en mjög er það mis- jafnt eftir löndum, sum eru bönnuð hér og önnur þar og því erfitt fyrir almenna neytendur að varast þau þegar þeir kaupa unnar matvörur fluttar inn frá öðrum löndum. Upplýsingar um efnainni- hald slíkra matvæla er oft að finna á umbúðunum, en hvergi nærri alltaf og alloft harla ófullkomnar. Tortryggni gagnvart unnum matvælum er því sjálfsögð varúðarráðstöíun og betra að halda sig við náttúrleg matvæli, sem matvælaiðnaðurinn hefir ekki farið höndum um. Heíurðu nokkurn tíma hugleitt hversvegna tannkrem er sætt, enda þótt sykur sé talinn óhollur fyrir tennurnar ? Það er vegna þess að í það eru sett sæt gerviefni eins og t.d. cyclamat, sem þó er bannað að nota í matvæli vegna þess að það er talið geta valdið krabbameini. En af hverju þá að blanda þvi í tannkrem? Það er vegna þess að tannkrem telst ekki matur — ekki frekar en bensínið sem þú lætur á bílinn þinn, ekki læturðu það þó ofan í þig! Þó er það staðreynd, að meira eða minna af tannkremi fer ofan í menn þegar þeir bursta tennurnar, ekki síst börnin. Gerbreytt umhverfi Nú kann einhver að spyrja: Hvernig í ósköpunum á ég að forðast öll þessi hættulegu íblöndunarefni sem geta valdið krabba- meini. Getur ekki allt valdið krabbameini ef grannt er skoðað, og er þá ekki eins gott að láta skeika að sköpuðu? Það er nú svo. Ekki veldur allt krabbameini — og íblöndunarefnin sem ég hef verið að ræða um, eru svo til öll yngri en 50 ára! Hugsið ykk- ur: Fæst í umhverfi okkar, allt frá straufríu skyrtunni sem þú ert í til plaststólsins sem þú situr á, frá litarefninu í tyggi- gúmíinu sem þú ert með uppi í þér til efnahaldsinnihalds máln- ingarinnar í svefnherberginu þínu, var ekki til á dögum afa okkar og ömmu. Allt hið nýja í umhverfi okkar, sem ekki var til fyrir 50 árum, eru efni sem við látum ekki ofan í okkur og því tiltölu- lega meinlaus í samanburði við hitt sem við borðum. En þetta HEILSUVERND 141

x

Heilsuvernd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.