Völundur - 01.04.1935, Síða 8

Völundur - 01.04.1935, Síða 8
6 VÖLUNDUR kaup skyldi hækka um 20 %, ef smásölu- verð í Reykjavík hækkaði um 20 %. Enn sögðu atvinnurekendur upp samning- um árið 1932, eftir beiðni útgerðarmanna (eftir því sem brjef þeirra bar með sjer), og skyldi nú launalækkun framkvæmd. Deil- unni, sem af þessu reis, lyktaði þó svo, að fjelagsmenn hjeldu fyrri samningi óskertum, en tókst að hækka kaup nemanna úr 35 aur. um klst. (byrjunarlaun) upp í 50 aura, hækkandi um 10 aura að hverju náms- ári loknu, og var Fjelag járniðnaðarmanna viðurkent sem samningsaðili fyrir hönd nemanna. En þetta átak kostaði fjelagið mánaðar- verkfall. Út úr þessu verkfalli gekk þó fje- lagið sterkara en það áður var. 25 fjelagar gengu inn meðan á deilunni stóð. Þau mál, sem fjelagið hefur samþykt að beita sjer fyrir, og telja má starfsskrá þess, eru þessi: Fullkomnar atvinnuleysistryggingar. Aukin atvinna fyrir fjelagsmenn. Bætt vinnuskilyrði. Aukið öryggi við vinnu. Barátta gegn launalækkun í hverskonar mynd. Fullkomið lýðræði innan fjelagsins. Að öllum þessum málum er nú verið að starfa, eftir því sem tími og aðstæður leyfa. Einna bestum árangri hefur fjelagið náð í baráttunni gegn atvinnuleysi, sem aðallega hefur að því hnigið, að allar viðgerðir á skipastólnum íslenska væru íramkvæmdar hjer á landi, en ekki erlendis. Fyrir ári síðan gerði f jelagið samning við Vjelstjórafjelag íslands, þar sem fjelögin heita hvort öðru gagnkvæmum stuðningi í deilum. Fjelagsmönnum hefur lengi verið það ljóst, hver nauðsyn það er, að iðnfélögin hafi samband með sér og vinni saman að sameiginlegum hagsmunamálum og styrki hvert annað í baráttunni fyrir bættum lífs- kjörum fjelagsmannanna. Stofnun Sambands iðnverkamanna á ekki hvað síst þangað rætur að rekja, en í því sambandi er Fjelag járniðnaðarmanna meðlimur. Fjelagið hefur nú komið sjer upp tiltölulega öflugum sjóðum, enda eru iðgjöld fjelags- manna til fjelagsins orðin talsvert há, 78 kr. á ári. Þátttakan í fjelagsskapnum hefur aukist ár frá ári. Við stofnun fjelagsins voru með- limir aðeins 20, eins og áður segir. Nú eru þeir um 100. Hjer hefur nú verið lýst starfsemi fjelags- ins í fáum dráttum, frá stofnun til þessa dags. En þetta yfirlit gefur enganveginn fullnægjandi hugmynd um alt það starf og alla þá fórnfýsi, sem margir af þess bestu mönnum hafa lagt fram til þess að gera fjelagið að því, sem það er orðið. Og barátt- unni verður haldið áfram, inn á við og út á við, uns Fjelag járniðnaðarmanna er orð- ið það, sem því er ætlað að verða — fyrir- mynd annara iðnfjelaga. Loftur Þorsteinsson. Atvinnuhorfur byggingamanna í Reykjavík. Hlutverk byggingamanna á hverjum tíma greinast í þrjá þætti: 1. Að byggja íbúðarhús vegna mannfjölg- unar í bænum, og hús vegna aukinnar verslunar og annara athafna af sömu ástæðu. 2. Að byggja hús í hlutfalli við rýrnun eldri bygginga. 3. Að byggja hús í hlutfalli við auknar kröfur um húsrúm og íbúðaþægindi og hlutfallslega aukna starfsemi, ef fyrir hendi er.

x

Völundur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Völundur
https://timarit.is/publication/1623

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.