Völundur - 01.04.1935, Síða 15

Völundur - 01.04.1935, Síða 15
VÖLUNDUR 13 Frá fjelögunum. Múrarasveinaf jelag Reykjavíkur hjelt aðalfund 2. mars s. 1. 1 stjórn voru kosnir: Gísli Þorleifsson, formaður. Guðbrandur Guðjónsson, ritari, Ársæll Jónsson, gjaldkeri. Varamaður: Guðjón Benediktsson. Múrarameistarafjelagið er stofnað 2. febrúar 1917. Stofnendur voru milli 30 og 40. Nú telur fjelagið 104 meðlimi. Það á allverulegan styrktarsjóð. Fjelag járniðnaðarmanna hjelt aðalfund 27. jan. s. 1. í stjórn voru kosnir: Loftur Þorsteinsson, formaður, Dagur Hannesson, ritari, Jón Sigurðsson, gjaldkeri. Meðstjórnendur: Sveinn Guðmundsson, Sveinn Ólafsson. Fjelag járniðnaðarmanna er stofnað 11. apríl 1920. Það telur nú um 100 meðlimi. Af óskiftum tekjum fjelagsins er greiddur reksturskostnaður. Afgangurinn skiftist milli tveggja sjóða: „Verkfalls- og verk- bannssjóðs" (sem fær %) og „Slysa- og sjúkrasjóðs“ (sem fær 1/3). Eignir Verk- falls- og verkbannssjóðs eru kr. 3821.93, en Slysa- og sjúkrasjóðs kr. 1100.97, samtals 4922 kr. í báðum sjóðunum. — Fyrir verk- fallið 1933 voru samanlagðar eignir þessara sjóða kr. 3924.00. Bakarasveinafjelag íslands hjelt aðal- fund 17. f. m. I stjórn voru kosnir: Guðm. B. Hersir, formaður, Guðmundur Bjarnason, fjehirðir, Þorgils Guðmundsson, ritari. Allir endurkosnir. Varastjórn: Stefán Thordarsen, Ásmundur Ásmundsson, Óskar Sveinbjörnsson. Bakarasveinafjelagið er stofnað 5. febr. 1908. Það er ekki mannmargt, 40 fjelagar nú. En það er eitt af traustustu fjelögum iðn- verkamanna. Það hefur allstóran atvinnu- leysisstyrktarsjóð, sem úr voru greiddar 1200 kr. síðastl. ár. En sum undanfarin ár hafa atvinnuleysisstyrkir til fjelagsmanna numið talsvert meiri fjárhæð. Crisli Porleifsson form. Múrarasveinafjel. Loftur Þorsteinsson form. Fjelags járniðnaðarm. Guöm. B. Hersir form. Bakarasveinafjel. ih.

x

Völundur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Völundur
https://timarit.is/publication/1623

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.