Fjarðarfréttir - 03.11.2016, Side 4

Fjarðarfréttir - 03.11.2016, Side 4
4 www.fjardarfrettir.is FJARÐARFRÉTTIR | FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2016 Á kjörskrá í suðvestur kjördæmi voru 68.242 og kusu 54.667 eða 80,1% kjör­ sókn sem er sú lélegasta nokkru sinni. Af þeim skiluðu 1.197 auðu atkvæði eða 2,2% þeirra sem tóku þátt en ógild atkvæði voru 169 eða 0,3% atkvæða. Á landsvísu var kjörsókn aðeins 79,2%. Kjörsókn í suðvesturkjördæmi var næst best, aðeins í norðvestur kjör­ dæmi var kjörsóknin betri, 81,2%. Er þetta athyglisvert í ljósi þess að þessar snemmbúnu kosningar eru tilkomn ar vegna háværra krafna kjós­ enda! Fjölgað hafði á kjörskrá um 8,1% frá því 2013 en þá var kjörsókn 82,5%. Þá voru auðir seðlar 2,1% og ógildi 0,3% eins og nú. SEX FLOKKAR FENGU ÞINGMANN Sex flokkar náðu manni inn, Björt framtíð (2), Framsókn (1), Píratar (2), Sjálfstæðisflokkur (5) og Viðreisn (2). Þingmaður Bjartrar framtíðar er upp­ bótarþingmaður sem og annar þing­ maður Viðreisnar. PÍRATAR NÆR ÞREFÖLDUÐU FYLGI SITT Píratar bættu hlutfallslega mestu fylgi við sig í kjördæminu, nær þre­ földuðu fylgi sitt, juku fylgi sitt um 172% frá síðustu kosningum og fengu 2 þing menn en höfðu einn þingmann fyrir. Vinstri græn juku fylgi fylgi sitt næst mest eða um 51,9% en náðu ekki að bæta við sig þingmanni. flokkur atkvæði % 2013 kjörd. uppb. þingmenn Sjálfstæðisflokkur (D) 18.049 33,9% 30,7% 5 0 5 Píratar (P) 7.227 13,6% 5,0% 2 0 2 Viðreisn (C) 6.857 12,9% 1 1 2 Vinstri græn (V) 6.378 12,0% 7,9% 1 0 1 Björt framtíð (A) 5.458 10,2% 9,2% 1 1 2 Framsókn (B) 4.062 7,6% 21,5% 1 0 1 Samfylking (S) 2.532 4,8% 13,6% 0 0 0 Flokkur fólksins (F) 1.742 3,3% 0 0 0 Dögun (T) 893 1,7% 3,8% 0 0 0 Alþýðufylkingin (R) 103 0,2% 0 0 0 Bjarni Benediktsson Sjálfstæðisflokkur Bryndís Haraldsdóttir Sjálfstæðisflokkur Jón Þór Ólafsson Píratar Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Viðreisn Rósa Björk Brynjólfsdóttir Vinstri græn Jón Gunnarsson Sjálfstæðisflokkur Óttarr Proppé Björt framtíð Þórhildur Sunna Ævarsdóttir Píratar Vilhjálmur Bjarnason Sjálfstæðisflokkur Theodóra S. Þorsteinsdóttir Björt framtíð Jón Steindór Valdimarsson Viðreisn Óli Björn Kárason Sjálfstæðisflokkur Eygló Harðardóttir Framóknarflokkur Þingmenn suðvesturskjördæmis Hafnarfjarðarkaupstaður, Garðabær, Kópavogsbær, Seltjarnarnesbær, Mosfellsbær, Kjósarhreppur 80,1% kjörsókn í suðvesturkjördæmi Versta kjörsókn á landsvísu í kosningum sem fólkið krafðist! Björt framtíð jók fylgi sitt um 10,9% og náði að bæta við sig uppbótar­ þing sæti. Sjálfstæðisflokkurinn bætti við sig 10,4% fylgi og náði ekki að bæta við sig þingmanni. FRAMSÓKN OG SAMFYLKING TÖPUÐU NÆR 65% AF FYLGI SÍNU Framsókn og Samfylking guldu mikið afhroð í kosningunum og töpuðu 64,7% af fylgi sínu. Samfylkingin missti báða sína þing­ menn og Framsókn tapaði tveimur af þremur þingmönnum sínum. Dögun tapaði rúmlega helmingi af kjörfylgi sínu eða um 55,3% og fékk engan mann kjörinn frekar í síðustu kosningum. AÐEINS 4 ENDURKJÖRNIR EN SAMT AÐEINS 3 SEM EKKI HAFA VERIÐ ALÞINGISMENN ÁÐUR Af þeim 13 þingmönnum í suðvestur­ kjördæmi voru aðeins 4 þeirra þing­ menn kjördæmissins á liðnu kjör­ tímabili. Þó hafa aðeins 3 ekki gegnt þingstörfum áður, þau Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, Theodóra S. Þorsteinsdóttir og Jón Steindór Valdimarsson. Hin hafa öll setið á þingi sem varaþingmenn eða fyrir annað kjördæmi. Úrslit kosninganna í SV kjördæmi Viðreisn eini nýi flokkurinn sem náði inn þingmanni Næst besta kjörsóknin var í suðvesturkjördæmi af kjördæmum landsins. Lj ós m .: G uð ni G ís la so n

x

Fjarðarfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjarðarfréttir
https://timarit.is/publication/1526

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.