Fjarðarfréttir - 03.11.2016, Side 5

Fjarðarfréttir - 03.11.2016, Side 5
www.fjardarfrettir.is 5FJARÐARFRÉTTIR | FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2016 SÚRDEIGSBRAUÐ MEÐ fennel og sætum kartöflum hnetum og hvítu súkkulaði kardimommu og rúsínum trönuberjum BAKAÐ UM HELGAR Súrdeigs snittubrauð – ítölsk Súrdeigs hvítlauks snittubrauð S t r a n d g ö t u 4 9 - H a f n a r fi r ð i - S í m i 5 5 5 4 0 4 6 SÆLKERA SÚRDEIGSBRAUÐ bökuð eftir aldagömlum hefðum Verið ve lkomin Sl. mánudag samþykkti bæjarráð Hafnar fjarðar að vísa tillögu til fjár­ hagsáætlunar fyrir 2017 til fyrri umræðu í bæjarstjórn. Tillagan er þó ekki aðgengileg almenningi og hefur almenningur því ekki möguleika á að kynna sér tillöguna og koma með ábendingar eða fyrirspurnir fyrr en rétt áður en hún er tekin til fyrri umræðu. Bæjarfulltrúar fá ekki senda tillöguna fyrir en nk. mánudag, tveimur dögum fyrir fyrri umræðu í bæjarstjórn og fá því ekki mikinn tíma til að kynna sér tillöguna áður en til umræðu kemur. Ástæðu þessa segir bæjarstjóri vera skilyrði sem sett eru af Nasdaq kaup­ höllinni en 5,5 milljarða kr. skuldabréf gefið út af Hafnarfjarðarbæ og skráð í desember 2014 með lokadegi í maí 2044 er skráð í kauphöllinni. ÁKVÆÐI KAUPHALLAR­ INNAR EKKI HINDRUN Skv. upplýsingum forstöðumanns eftirlitssviðs Nasdaq Ísland er gerð krafa um að upplýsingar sem haft geta áhrif á gengi skuldabréfs séu tilkynntar kauphöllinni a.m.k. á sama tíma og þær séu gerðar aðgengilegar öðrum. Því er ekkert til fyrirstöðu að tillaga til fjárhagsáætlunar sé gerð opinber strax þegar bæjarráð hefur samþykkt að vísa henni til bæjarstjórnar svo fremi sem upplýsingunum sé samtímis komið til kauphallarinnar. Að sama skapi ætti heldur ekkert að vera því til fyrirstöðu að birta aðrar forsendur fjárhagsáætlunar fyrr með sama hætti. TVÆR UMRÆÐUR SÝNDARMENNSKA? Í sveitarstjórnarlögum eru ákvæði um að fjárhagsáætlun fái tvær umræður í bæjarstjórn. Í dag er raunin hins vegar sú að bæjarfulltrúar fá tillöguna senda tveimur dögum fyrir fund bæjarstjórnar og enga kynningu fyrr en strax fyrir fund bæjarstjórnar þar sem fyrri umræðan á að fara fram. Í flestum tilfellum hefur tillagan aðeins verið kynnt af bæjarstjóra og bæjarfulltrúar hafa almennt lítt tjáð sig um tillöguna og umræðum frestað. Við síðari umræðu er á einum og sama fundinum aðal umræðan um fjárhagsáætlunina og afgreiðsla hennar svo litlir möguleikar eru á að bregðast við athugasemdum sem fram gætu komið á fundinum. Það væri hægt ef tillagan fengi í raun tvær umræður og hún svo afgreidd á þriðja fundinum. LÍTIÐ SAMRÁÐ VIÐ ÍBÚA Engir kynningar­ eða samráðsfundir eru haldnir með bæjarbúum í aðdrag­ anda að gerð fjárhagsáætlunar. Í svari við rökstudda ósk Fjarðarfrétta um að fá tillöguna segir bæjarstjóri að vegna skilyrða Kauphallarinnar sé það ekki hægt fyrr en á mánudag þegar tillagan hefur verið send bæjarfulltrúum og Kaup höllinni. KYNNING MILLI UMRÆÐNA Upplýsir bæjarstjóri að haldinn verð i fundur með íbúum á milli um ræðna þar sem fjárhagsáætlunin verði kynnt bæjarbúum. Þrátt fyrir ítrekaðar fyrirspurnir hefur bæjarstjóri ekki svarað því hvers vegna ekki hafi verið hægt að opinbera tillögu til fjárhagsáætlunar strax eftir fund bæjarráðs sl. mánudags og senda hana um leið til kauphallarinnar. Tillaga að fjárhagsáætlun lokuð bæjarbúum 5,5 milljarða króna skuldabréf í Kauphöllinni sögð ástæðan Lj ós m .: G uð ni G ís la so n

x

Fjarðarfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjarðarfréttir
https://timarit.is/publication/1526

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.