Fjarðarfréttir - 03.11.2016, Page 6

Fjarðarfréttir - 03.11.2016, Page 6
6 www.fjardarfrettir.is FJARÐARFRÉTTIR | FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2016 Á fundi sínum 6. október sl. sam­ þykkti bæjarráð að breyta viðmiðunar­ upphæð launa kjörinna fulltrúa Hafnar­ fjarðar. Í stað þess að ákveða sjálf við­ miðunarupphæðina sem var 604.909 kr. var ákveðið að miða við þingfarar­ kaup sem var 762.940 kr. Tryggt var að þetta breytti ekki upphæð launa kjörinna fulltrúa en laun bæjar full trúa urðu 26,165% af þing­ farar kaupi. Laun kjörinna fulltrúa eru nú: Bæjarfulltrúi: 199.620,­ Forseti bæjarstjórnar 299.460,­ Formaður bæjarráðs 362.945,­ Bæjarráðsmaður 308.504,­ Formaður ráðs 335.725,­ Sitji menn í nefndum og ráðum öðrum en sem hér hafa verið nefndar að ofan fá menn aukalega greitt fyrir það. Alm. ráðsmaður 90.736,­ Formaður hafnarstjórnar 99.810,­ Hafnarstjórnarmaður 55.540,­ Þá fá varamenn í bæjarstjórn og bæjarráði 24.196 kr. fyrir hvern fund, fyrstu 4 klst. HÆKKA LAUNIN SJÁLFKRAFA? Sé ekkert annað ákveðið hækka laun bæjarfulltrúa um 44,3% við úrskurð kjararáðs um að hækka laun forseta Íslands, þingmanna og ráðherra. Kjara­ ráð úrskurðaði að þing fararkaup verði 1.101.194 kr. á mánuði frá og með 30. október 2016. Í kjararáði sitja 5 fulltrúar. Þrír kosnir af Alþingi, einn skipaður af Hæstarétti og einn skipaður af fjármála­ og efna­ hagsráðherra. Formaður Kjararáðs er Jónas Þór Guðmundsson hæstaréttar­ lög maður í Hafnarfirði og formaður kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í suð vesturkjördæmi og fulltrúi þess í mið stjórn flokksins. HVER YRÐU LAUNIN? Samþykki bæjarráð ekki annað verða laun oddvita flokkanna eftirfarandi: Guðlaug Kristjánsdóttir 785.790,­ (forseti bæjarstjórnar, í bæjarráði og formaður fræðsluráðs) Rósa Guðbjartsdóttir 720.795,­ (formaður bæjarráðs og fræðsluráðs) Gunnar Axel Axelsson 288.127,­ (bæjarfulltrúi) Sverrir Garðarsson 419.092,­ (bæjarfulltrúi, í fræðsluráði) Væri Guðlaug að fá 241 þús. kr. hækk un og Rós 222 þús. kr. hækkun. Til viðbótar geta bæjarfulltrúar verið að fá greiðslur fyrir setu í stjórnum utan Hafnarfjarðar s.s. í stjórn Sorpu, í full­ trúaráði Samtaka sveitarfélaga á höfuð­ borgarsvæðinu og víðar. GAGNLEGT AÐ FARA YFIR MÁLIN OG GERA SAMAN­ BURÐ Á LAUNAÞRÓUN „Þessar breytingar kjararáðs sem nú hafa verið tilkynntar hafa ekki komið til umræðu í okkar hópi ennþá en ég held það gæti verið gagnlegt fyrsta skref að fara yfir málin og gera samanburð á launaþróun kjörinna fulltrúa og annarra undanfarin ár,“ segir Rósa Guð bjarts­ dóttir formaður bæjar ráðs í svari við fyrir spurn Fjarðarfrétta um viðbrögð við úrskurð kjararáðs Segir hún að það hafi verið ákveðið í júlí sl., að miða við þingfararkaup í kjölfar þess að Samband íslenskra sveitarfélaga birti nýja viðmiðunartöflu um laun kjörinna fulltrúa þar sem mælst var til að sveitarfélögin myndu öll taka mið af þingfararkaupinu. Segir hún flest sveitarfélög landsins gera það. „Fulltrúar sambandsins mættu á fund bæjarráðs þann 14. júlí sl. þar sem viðmiðunartaflan var kynnt og lögð fram. Í Hafnarfirði var ákveðið að fara að þeim tilmælum og tillaga forseta­ nefndar var samþykkt um að starfs­ hlutfalli kjörinna fulltrúa yrði breytt lítillega til að tenging við þingfar ar­ kaupið kæmi ekki til hækkunar,“ segir Rósa. BORGARSTJÓRINN Í REYKJAVÍK VILL EKKI HÆKKA Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur, hefur skorað á alla þing­ menn að grípa inn í úrskurð kjararáðs. Segir hann að samstarf stjórnvalda og verkalýðshreyfingar um þróun kjara­ mála sé í fullkomnu uppnámi verði ekkert að gert. Borgarstjóri hefur auk þess farið þess á leit við skrifstofustjóra skrifstofu borgarstjórnar að laun kjörinna fulltrúa í borgarstjórn, að honum meðtöldum, hækki ekki í samræmi við úrskurðinn frá 1. nóvember. Grunnlaun borgar full­ trúa eru 80% af þingfararkaupi en rúm 26% í Hafnarfirði. Hækka laun bæjarfulltrúa um 44,3% Bæjarráð samþykkti í október að miða launagreiðslur bæjarfulltrúa við þingfararkaup Rósa Guðbjartsdóttir. Mikill viðbúnaður var þegar tilkynnt var um eld í húðflúrstofu að Dalshrauni 11 um kl. 2 aðfaranótt þriðjudags. Töluverður eldur í húsinu þegar komið var að en mjög greiðlega gekk að slökkva eld inn og reykræsti slökkvi­ lið húsnæðið. Skemmdir eru töluverðar í húsnæðinu og ljóst að mikið verk bíður eigenda og rekstraraðila. Rúða var brotin og tívolíbombu var hent inn sem kveikti í húsnæðinu. Mynd af því náðist með öryggis mynda­ vél en Stundin var með myndefnið undir höndum og birti. Húðflúrstofan heitir Immortal Art en hún hafði opinberlega aðeins verið opin í einn dag. Stundin fullyrðir að eigendum fyrirtækisins hafi verið hótað undan­ farn ar vikur og hótanirnar tengist sam­ keppni á flúrmarkaðinum. Kveikt í húðflúrstofu Mikið tjón á Immortal Art sem hafði verið opin í einn dag Aðkoman var skelfileg í morgun, allt kolsvart inni og mikil eyðilegging. Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Hönnun & umbrot hhus@hhus.is | stofnað 1990 Smelltu á LIKE og skoðaðu myndir á Facebook síðu Fjarðarfrétta

x

Fjarðarfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjarðarfréttir
https://timarit.is/publication/1526

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.