Fjarðarfréttir - 03.11.2016, Qupperneq 6
6 www.fjardarfrettir.is FJARÐARFRÉTTIR | FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2016
Á fundi sínum 6. október sl. sam
þykkti bæjarráð að breyta viðmiðunar
upphæð launa kjörinna fulltrúa Hafnar
fjarðar. Í stað þess að ákveða sjálf við
miðunarupphæðina sem var 604.909
kr. var ákveðið að miða við þingfarar
kaup sem var 762.940 kr.
Tryggt var að þetta breytti ekki
upphæð launa kjörinna fulltrúa en laun
bæjar full trúa urðu 26,165% af þing
farar kaupi.
Laun kjörinna fulltrúa eru nú:
Bæjarfulltrúi: 199.620,
Forseti bæjarstjórnar 299.460,
Formaður bæjarráðs 362.945,
Bæjarráðsmaður 308.504,
Formaður ráðs 335.725,
Sitji menn í nefndum og ráðum
öðrum en sem hér hafa verið nefndar að
ofan fá menn aukalega greitt fyrir það.
Alm. ráðsmaður 90.736,
Formaður hafnarstjórnar 99.810,
Hafnarstjórnarmaður 55.540,
Þá fá varamenn í bæjarstjórn og
bæjarráði 24.196 kr. fyrir hvern fund,
fyrstu 4 klst.
HÆKKA LAUNIN
SJÁLFKRAFA?
Sé ekkert annað ákveðið hækka laun
bæjarfulltrúa um 44,3% við úrskurð
kjararáðs um að hækka laun forseta
Íslands, þingmanna og ráðherra. Kjara
ráð úrskurðaði að þing fararkaup verði
1.101.194 kr. á mánuði frá og með 30.
október 2016.
Í kjararáði sitja 5 fulltrúar. Þrír kosnir
af Alþingi, einn skipaður af Hæstarétti
og einn skipaður af fjármála og efna
hagsráðherra. Formaður Kjararáðs er
Jónas Þór Guðmundsson hæstaréttar
lög maður í Hafnarfirði og formaður
kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í
suð vesturkjördæmi og fulltrúi þess í
mið stjórn flokksins.
HVER YRÐU LAUNIN?
Samþykki bæjarráð ekki annað verða
laun oddvita flokkanna eftirfarandi:
Guðlaug Kristjánsdóttir 785.790,
(forseti bæjarstjórnar, í bæjarráði og
formaður fræðsluráðs)
Rósa Guðbjartsdóttir 720.795,
(formaður bæjarráðs og fræðsluráðs)
Gunnar Axel Axelsson 288.127,
(bæjarfulltrúi)
Sverrir Garðarsson 419.092,
(bæjarfulltrúi, í fræðsluráði)
Væri Guðlaug að fá 241 þús. kr.
hækk un og Rós 222 þús. kr. hækkun.
Til viðbótar geta bæjarfulltrúar verið að
fá greiðslur fyrir setu í stjórnum utan
Hafnarfjarðar s.s. í stjórn Sorpu, í full
trúaráði Samtaka sveitarfélaga á höfuð
borgarsvæðinu og víðar.
GAGNLEGT AÐ FARA YFIR
MÁLIN OG GERA SAMAN
BURÐ Á LAUNAÞRÓUN
„Þessar breytingar kjararáðs sem nú
hafa verið tilkynntar hafa ekki komið til
umræðu í okkar hópi ennþá en ég held
það gæti verið gagnlegt fyrsta skref að
fara yfir málin og gera samanburð á
launaþróun kjörinna fulltrúa og annarra
undanfarin ár,“ segir Rósa Guð bjarts
dóttir formaður bæjar ráðs í svari við
fyrir spurn Fjarðarfrétta um viðbrögð
við úrskurð kjararáðs
Segir hún að það hafi verið ákveðið í
júlí sl., að miða við þingfararkaup í
kjölfar þess að Samband íslenskra
sveitarfélaga birti nýja viðmiðunartöflu
um laun kjörinna fulltrúa þar sem
mælst var til að sveitarfélögin myndu
öll taka mið af þingfararkaupinu. Segir
hún flest sveitarfélög landsins gera það.
„Fulltrúar sambandsins mættu á
fund bæjarráðs þann 14. júlí sl. þar sem
viðmiðunartaflan var kynnt og lögð
fram. Í Hafnarfirði var ákveðið að fara
að þeim tilmælum og tillaga forseta
nefndar var samþykkt um að starfs
hlutfalli kjörinna fulltrúa yrði breytt
lítillega til að tenging við þingfar ar
kaupið kæmi ekki til hækkunar,“ segir
Rósa.
BORGARSTJÓRINN Í
REYKJAVÍK VILL EKKI
HÆKKA
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri
Reykjavíkur, hefur skorað á alla þing
menn að grípa inn í úrskurð kjararáðs.
Segir hann að samstarf stjórnvalda og
verkalýðshreyfingar um þróun kjara
mála sé í fullkomnu uppnámi verði
ekkert að gert.
Borgarstjóri hefur auk þess farið þess
á leit við skrifstofustjóra skrifstofu
borgarstjórnar að laun kjörinna fulltrúa
í borgarstjórn, að honum meðtöldum,
hækki ekki í samræmi við úrskurðinn
frá 1. nóvember. Grunnlaun borgar full
trúa eru 80% af þingfararkaupi en rúm
26% í Hafnarfirði.
Hækka laun bæjarfulltrúa um 44,3%
Bæjarráð samþykkti í október að miða launagreiðslur bæjarfulltrúa við þingfararkaup
Rósa Guðbjartsdóttir.
Mikill viðbúnaður var þegar tilkynnt
var um eld í húðflúrstofu að Dalshrauni
11 um kl. 2 aðfaranótt þriðjudags.
Töluverður eldur í húsinu þegar
komið var að en mjög greiðlega gekk
að slökkva eld inn og reykræsti slökkvi
lið húsnæðið. Skemmdir eru töluverðar
í húsnæðinu og ljóst að mikið verk
bíður eigenda og rekstraraðila.
Rúða var brotin og tívolíbombu var
hent inn sem kveikti í húsnæðinu.
Mynd af því náðist með öryggis mynda
vél en Stundin var með myndefnið
undir höndum og birti.
Húðflúrstofan heitir Immortal Art en
hún hafði opinberlega aðeins verið opin
í einn dag.
Stundin fullyrðir að eigendum
fyrirtækisins hafi verið hótað undan
farn ar vikur og hótanirnar tengist sam
keppni á flúrmarkaðinum.
Kveikt í húðflúrstofu
Mikið tjón á Immortal Art sem hafði verið opin í einn dag
Aðkoman var skelfileg í morgun, allt kolsvart inni og mikil eyðilegging.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Hönnun
& umbrot
hhus@hhus.is | stofnað 1990
Smelltu á
LIKE
og skoðaðu myndir
á Facebook síðu
Fjarðarfrétta