Fjarðarfréttir - 03.11.2016, Síða 7
www.fjardarfrettir.is 7FJARÐARFRÉTTIR | FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2016
Flatahrauni 5a Hfj. Sími: 555 7030
Opið alla daga frá kl. 11:00 til 22:00
Kíktu á matseðilinn á
www.burgerinn.is
Nýlega færði Hlaupahópur FH
Krabbameinsfélaginu fjárstuðning að
upphæð 232 þúsund krónur sem
söfnuðust í Bleika hlaupinu, árlegu
hlaupi sem hlaupahópurinn stendur
yfir.
Í hlaupið mæta hlauparar víðs vegar
að, úr hinum ýmsu félögum og leggja
sitt að mörkum í söfnunarbauk. Allir
mæta klæddir í bleikt og leggja margir
mikið á sig til að gera búningana sem
skemmti legasta.
Þegar í mark er komið býður hið allra
glæsilegasta veisluborð sem félagar í
hópnum hafa útbúið og hlauparar njóta
góðra veitinga og sérstaklega skemmti
legs félagsskapar.
Hlupu í bleiku og
söfnuðu 232 þús. kr.
Hlaupahópur FH styrkti Krabbameinsfélagið
Fulltrúi Krabbameinsfélagsins tekur við peningagjöfinni úr hendi fulltrúa
Hlaupahóps FH, Brynju Bjargar Bragadóttur.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Maraþonkonur
Hildur Aðalsteinsdóttir úr Skokkhópi
Hauka varð fyrst kvenna í heilu mar
þoni í Haustmaraþon Félags mara þon
hlaupara sem haldið var fyrir skömmu.
Kom hún í mark á 3:41:41 klst. Var hún
að hlaupa sitt annað mara þon og bætti
hún tíma sinn um tæpar 47 mínútur!
Bryndís María Davíðsdóttir úr
Hlaupa hópi FH varð þriðja í flokki
kvenna á 3,46.30 klst.
Einar Eiríkur Hjálmarsson úr Hlaupa
hópi FH varð fremstur Hafnfirðinga í
heilu maraþoni en hann kom annar í
mark á 3,12.17 klst.
Veðrið var haustlegt og blautt og
nokkuð rok á hluta leiðarinnar en
hlaup ið var frá Elliðaárdal eftir Foss
voginum og vestur fyrir flugvöll og til
baka.
Hildur Aðalsteinsdóttir og Bryndís María Davíðsdóttir.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n